Dagur - 30.01.1985, Page 7
6 - DAGUR - 30. janúar 1985
30. janúar 1985 - DAGUR - 7
Heimsokn
Brauðgerð KEA
Brauðgerð KEA var stofn-
uð árið 1930. Kaupfélagið
hafði þá tekið á leigu brauð-
gerðarhús Axels Schiöth í
Hafnarstræti 23, og þar
starfaði Brauðgerðin til árs-
ins 1935 er hún flutti í eigið
húsnæði sitt á annarri hæð í
Hafnarstræti 87 en það hús
var þá nýbyggt.
Starfsaðstaða Brauðgerð-
arinnar var þá hin fullkomn-
asta, enda sniðin að bestu
sænsku fyrirmyndum þess
tíma þótt eflaust þætti sú að-
staða ekki boðleg brauð-
gerðarmönnum í dag.
í þessu húsnæði var
Brauðgerðin allt fram undir
árslok 1981 er hún flutti í
nýtt og glæsilegt húsnæði í
Kaupvangsstræti. Við þenn-
an flutning má segja að bylt-
ing hafí orðið hvað varðaði
alla aðstöðu starfsmanna,
Páll Stefánsson.
„Ein af best útbúnu
brauðgerðum landsins“
- segir Páll Stefánsson brauögeröarstjóri
Þeir eru ekki margir sem
verða að vakna til vinnu
klukkan fjögur á nóttinni, en
ein stétt manna má þó láta
sig hafa það. Þetta eru
bakarar, en vinnutími þeirra
er ólíkur því sem gerist hjá
öðrum stéttum. Þannig hefja
bakarar hjá Brauðgerð KEA
vinnu klukkan fimm á
morgnana, þegar aðrir svífa
um í draumaheimi heima
hjá sér.
Brauðgerð KEA sem starfrækt
hefur verið í rúmlega hálfa öld
flutti fyrir nokkrum árum í nýtt
húsnæði í Gilinu svokallaða á
Akureyri, í brekkunni fyrir ofan
höfuðstöðvar KEA. Þar er allt
komið í gang klukkan fimm á
morgnana, og því var vinnudag-
urinn löngu hafinn hjá bökurun-
um þar er mig bar að garði einn
morguninn í síðustu viku með
stírurnar í augunum. Ég settist
niður hjá Páli Stefánssyni brauð-
gerðarstjóra KEA og fyrst spurði
ég hann hvort það væri ekki erfitt
að vakna svona snemma og fara
til vinnu.
„Nei ekki finnst mér það og ég
man varla eftir því að ég hafi
mætt of seint þann tíma sem ég
hef starfað við þetta. Það má
segja að mannskapurinn sé alltaf
kominn á réttum tíma klukkan
fimm, en auðvitað er einstaka
maður sem á alltaf erfitt með að
vakna á þessum tíma. Vinnudag-
urinn hjá bökurunum er frá
klukkan 5 á morgnana og fram
yfir hádegi, það fer eftir því
hvernig miðað hefur með þau
verkefni sem ákveðið var að
ljúka við þann daginn.“
- Hver er meginmunurinn á
þessari glæsilegu aðstöðu sem þið
starfið í hérna og því gamla
brauðgerðarhúsnæði í Hafnar-
stræti 87 sem Brauðgerðin var í
áður?
„Hún er gífurleg. Húsnæðið
sjálft er auðvitað allt annað og
betra og svo er kominn til mjög
aukinn vélakostur. Þá má ekki
gleymast að nefna mjöltankana
sem við höfum nú, en öllu mjöli
er dælt beint úr þeim ínn í kerin
þannig að nú þurfa menn ekki
lengur að rogast með þunga sekki
í fanginu. Þessi útbúnaður er í
fjórum eða fimm brauðgerðum á
landinu. Ég myndi telja að
Brauðgerð KEA sé ein af allra
best útbúnu brauðgerðum lands-
ins í dag.“
- Hvert fara þau brauð og
kökur sem þið bakið?
„Það sem við bökum fer í allar
kjörbúðir KEA á Akureyri, og í
útibúin á Hauganesi, Hrísey,
Grímsey og Grenivík. Einnig fer
talsvert suður til Reykjavíkur til
birgðastöðvar SÍS, til Vopna-
fjarðar og reyndar nokkuð víða.“
- Getur þú gefið okkur ein-
hverja hugmynd um það hversu
mikið þið bakið á hverjum degi?
„Já, við notum hér um 1,5 tonn
af méli á hverjum degi. Við erum
með 18 tegundir af matarbrauð-
um og á hverjum degi bökum við
2 000-2 400 matarbrauð fyrir
utan allt annað, en framleiðslu-
númerin hjá okkur eru um 170
talsins þótt ekki bökum við það
allt á hverjum degi.
Til samanburðar get ég nefnt
að hér áður fyrr bökuðum við
ekki nema þrjár tegundir af mat-
arbrauðum reglulega, fransk-
brauð, rúgbrauð og heilhveiti-
brauð og þá voru franskbrauðin
um 80% af öllum brauðunum. 1
dag þegar við bökum 2 400 brauð
á dag þá eru franskbrauðin ekki
nema 400-500 þannig að neyslu-
venjurnar hafa breyst verulega.
f dag eru það sojabrauðin sem
eru langsamlega vinsælust og við
bökum 1 400 slík á dag þegar
mest er.“ gk-.
þeir fóru úr þröngu húsnæði
í stórt og bjart húsnæði og
vélakostur allur var stórauk-
Brauðgerðarstjórar frá
upphafi hafa verið Paul
Svendsen, J.Chr.C. Niels-
en, Sigurður Bergsson, Ein-
ar Jónsson, Höskuldur
Steinsson, Jóhannes Guð-
jónsson, Arnaldur Guð-
laugsson, Jóhann Franklín
og Páll Stefánsson sem er
brauðgerðarstjóri í dag. í
Brauðgerð KEA starfa 28
manns.
Jónas Hallgrímsson.
„Fjölbreytt
starf og
skemmtilegt“
„Það er alveg búið að vera að
það sé erfiðisvinna að vera
bakari, það heyrir fortíðinni til
sem betur fer,“ sagði Jónas
Hallgrímsson bakari hjá
Brauðgerð KEA er við spjöll-
uðum stuttlega við hann. Jón-
as lærði baksturinn hjá KEA
og var meistari hans Jóhann
Franklín þáverandi brauðgerð-
arstjóri. Jónas hóf nám 1964
og hefur síðan bakað á Akur-
eyri utan tvö ár er hann vann í
Reykjavík og á Dalvík við
baksturinn.
„Þetta er fjölbreytt starf og
skemmtilegt, þaö er ekki hægt að
segja annað,“ sagði Jónas. „Það
eina sem ég get fundið að því er
vinnutíminn. Það er oft erfitt að
rífa sig upp urn miðjar nætur, t.d.
í skammdeginu en ætli maður
verði ekki að segja að þetta venj-
ist eins og allt annað.
Það er mjög gott að geta lagt
sig þegar maður kemur heim úr
vinnunni, að geta þá sofnað í
einn til tvo tíma bjargar miklu.
Síðan taka félagsstörfin við (Jón-
as starfar mikið fyrir Þór og er
m.a. framkvæmdastjóri knatt-
spyrnudeildar félagsins) og á
kvöldin reynir maður að fara
snemma að sofa, svona kl. tíu til
hálf ellefu.“