Dagur - 30.01.1985, Page 11
30. janúar 1985 - DAGUR - 11
Bridgefélag Akureyrar:
31 umferð lokið
í gærkveldi voru spilaðar átta
umferðir í Akureyrarmótinu í
tvímenningi, en alls hafa þá verið
spilaðar 31 umferð af 47. Röð
efstu para er þessi:
1. Eiríkur Helgas.-Jóhannes Jóns. 410
2. Pétur Guðjónss.-Stefán Ragnarss. 402
3. Páll Pálss.-Frímann Frímannss. 359
4. Ármann Helgas.-Jóhann Helgas. 287
5. Gunnl. Guðmundss.-Hreinn Elliðas. 283
6. Stefán Vilhj.ss.-Guðm. V. Gunnl. 280
7. Þorm. Einarss.-Kristinn Kristinss. 278
8. Soffía Guðmundsd.-Dísa Pétursd. 265
9. Arnar Daníelss.-Stefán Gunnlaugss. 191
10. Páll Jónss.-Þórarinn B. Jónss. 191
Alls spila 48 pör og er meðalár-
angur 0 stig. Næstu 8 umferðir
verða spilaðar í Félagsborg nk.
þriðjudagskvöld.
Svæðamót Bridgesambands
Norðurlands eystra var spilað að
Galtalæk um síðustu helgi. Alls
voru 8 sveitir skráðar til leiks og
var spilað um þátttökurétt einnar
sveitar til að spila á íslandsmóti.
Sigurvegari varð sveit Arnar Ein-
arssonar frá Akureyri sem hlaut
116 stig, sveit Páls Páls Pálssonar
108, Antons Haraldssonar 103.
Minningarmót B.A. um Ang-
antý og Mikael, tvímennings-
keppni, verður spilað á Akureyri
15.-17. febrúar og lýkur 7.
febrúar nk. Skráning stendur nú
yfir og lýkur 7. febrúar. Öllu
spilafólki er heimil þátttaka.
Fræðslu-
fundur
sálfræðinga
og félags-
fræðinga
Hópur félagsráðgjafa og sálfræð-
inga starfandi á Akureyri hefur
staðið fyrir röð fræðslu- og sam-
ræðufunda. Markmið þessara
funda er að þessir aðilar og ann-
að fagfólk miðli af þekkingu sinni
og reynslu til þeirra sem áhuga
hafa. Fundir þessir hafa verið
haldnir mánaðarlega frá því í
október 1984 og er ætlunin að svo
verði fram til vors.
Á fyrsta fundinum fjölluðu fé-
lagsráðgjafarnir Hrefna Ólafs-
dóttir og Unnur V. Ingólfsdóttir
um „fíkniefni - fræðsla í fyrir-
byggjandi skyni“. í nóvember
fjallaði Jón Björnsson sálfræð-
ingur um „Hjálparsambandið,
tilgang og markmið félagslegrar
og sálfræðilegrar aðstoðar í ljósi
spurninga um hjálp til sjálfshjálp-
ar og lært hjálparleysi". í des-
ember fjallaði Sigmundur Sigfús-
son geðlæknir um „Áfengi frá
sjónarhóli heilbrigðisfræði - ný
viðhorf". Næsti fundur er fyrir-
hugaður 30. janúar kl. 20.30 í
MA (aðalbyggingu), þá mun
Arnar Sverrisson sálfræðingur
flytja fyrirlestur sem hann nefnir
„Listin að temja unglinga“. 14.
febrúar mun Gyða Haraldsdóttir
sálfræðingur ræða um þjálfun
vangefinna ungbarna í ljósi rann-
sókna og kenninga tengdum
spurningunni um sérstök
„næmnisskeið".
í lok fyrirlestranna er boðið
upp á kaffi sem er innifalið í að-
gangseyri (100 kr.) og þá gefst
fólki kostur á að beina spurning-
um til fyrirlesara. Fundirnir hafa
verið nokkuð vel sóttir og að
loknum fyrirlestrum hafa skapast
líflegar umræður.
Fundirnir verða auglýstir
hverju sinni í Degi.
F.h. fræðsluhóps félagsráð-
gjafa og sálfræðinga á Akureyri.
Unnur V. Ingólfsdóttir
félagsráðgjafi FSA.
Bingó - Félagsvist
verður í Freyjulundi föstudaginn 1. febrúar og hefst kl 21.00
stundvíslega. Kaffisala.
Nefndin.
Tilboð óskast
í Mözdu 323 árg. 1985, skemmda eftir árekstur.
Bifreiðin er til sýnis hjá Brunabótafélagi íslands
Glerárgötu 24.
Tilboðum sé skilað á sama stað fyrir 5. febrúar
nk.
A söluskrá:
Dalsgerði: 5 herb. raðhúsíbúð. Laus strax.
Munkaþverárstræti: 4ra herb. efri hæð í tvíbýli.
Hjalteyri: (búð í tvíbýliShúsi.
Kjalarsíða: 2ja herb. íbúð í blokk með svalainngangi.
Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Stórholt: 3ja herb. íbúð í eldra húsi.
Oddeyrargata: 3ja herb. íbúð í parhúsi.
Norðurgata: 3ja herb. íbúð. Góð greiðslukjör.
Lyngholt: 4ra herb. neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Sólvellir: 4ra herb. íbúð í 5 íbúða húsi. Skipti á 2ja herb.
íbúð.
Lerkilundur: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Skipti á blokkaríbúð eða raðhúsíbúð koma til greina.
Reykjasíða: Fokhelt 170 fm hús á einni hæð með
bílskúr.
Brekkusíða: Fokhelt 180 fm hús með rishæð og
bílskúr.
Akurgerði: Raðhús í byggingu.
Melasíða: 3ja herb. íbúð. Afh. samkomulag.
Langholtsvegur í Reykjavík:
6 herb. íbúð. Verð kr. 3,4-3,5 millj. Skipti æskileg á 5
herb. íbúð með bílskúr á Akureyri á svipuðu verði.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf opið frá
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878 kl. 5—7 e.h.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur
Hermann R. Jónsson, sölumaður
Offsetskeytingamaður
óskast til starfa í vor.
Ennfremur starfsmaður við
tölvuinnskrift
hálfan daginn nú þegar.
Upplýsingar gefa Jóhann Karl Sigurðsson og
Guðjón H. Sigurðsson.
Óskum að ráða
starfsmann
til þess að sjá um framreiðslu á morgunverði.
Nánari upplýsingar veita hótelstjórar á hótel-
^Hótel KEA.
Fjölhæfur
prentari óskast
helst offsetprentari. ^
Simi 22844
úalprent
Glerárgötu 24,
Akureyri.
Ungur, áhugasamur og
laghentur starfsmaður
óskast sem fyrst til afgreiðslustarfa og aðstoðar
á verkstæði.
Upplýsingar ekki veittar í síma. iVk
'ttdíOVINNUSTOFAN
KAUPANGI
Framsóknarvist
Annað spilakvöld í þriggja kvölda keppni verður
í kvöld miðvikudag 30. janúar að Hótel KEA kl. 20.30.
Síðasta spilakvöldið verður miðvikudaginn 13. febrúar.
Heildarvinningur: Flugfar fyrir tvo til Reykjavíkur.
Einnig verða góð kvöldverðlaun.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
AÐALHEIÐAR AXELSDÓTTUR,
Þórunnarstrtæti 130.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsliðs Lyfjadeildar F.S.A. fyrir
frábæra umönnun í veikindum hennar.
Óskar Óskarsson,
Þórdís Óskarsdóttir, Benedikt Sigurðsson,
Einar Óskarsson, Gunnhiidur Björgólfsdóttir,
Hannes Óskarsson, Ásta Eggertsdóttir
og barnabörn.
Einlægar þakkir fyrir samúö og vinarhug við andlát og jarðar-
för
PÁLS SIGURÐSSONAR,
fyrrv. kennara og skólastjóra,
Gilsbakkavegi 5, Akureyri.
Vilborg Sigurðardóttir,
Guðrún Rósa Pálsdóttir, Eiríkur Eiríksson,
Margrét Kristrún Pálsdóttir, Helgi Þórðarson,
Sigrfður Guðný Pálsdóttir,
Álfhildur Pálsdóttir, Bárður Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug samúð og vinsemd við andlát og úttör móður
minnar og tengdamóður,
ÁLFHEIÐAR JÓNSDÓTTUR,
Suðurbyggð 6.
Atli Benediktsson, Steinþóra Vilhelmsdóttir.