Dagur - 30.01.1985, Page 12

Dagur - 30.01.1985, Page 12
ÞJONUSTA FYRIR HÁÞRÝSTISLÖNGUR OLÍUSLÖNGUR og BARKA PRESSUM TENGIN Á FULLKOMIN TÆKI VÖNDUÐ VINNA Útboð hjá Verkmennta- skólanum I haust er búist við því að hægt verði að flytja inn í nýja bók- námsálmu Verkmenntaskól- ans. Þar með verður hægt að losa það húsnæði sem Verk- menntaskólinn hefur haft í íþróttahöllinni á Akureyri. Að sögn Hauks Árnasonar, formanns byggingarnefndar Verkmenntaskólans verður þriðji áfangi bóknámsálmunnar, gerð innréttinga og annar búnaður, boðinn út í byrjun febrúar. I þessum áfanga verða 13 kennslu- stofur en nú eru sex kennslustof- ur í íþróttahöllinni. Verkinu á að vera lokið fyrir 1. september nk. - ESE Margir um Bjama Herjólfsson „Við höfum ekki sett stífan eindaga á tilboðin, ég geri mér vonir um að geta lagt þau fyrir bankastjórnina á fimmtudag eða föstudag og ég á ekki von á að tekið verði við nýjum til- boðum eftir það,“ sagði Stefán Niðurstaða í Leimvegs- málinu í febrúar Mál Kjartans Ingvarssonar fyr- ir hönd verktakafyrirtækisins Gunnars og Kjartans á Egils- stöðum á hendur Vegagerð ríkisins vegna Leiruvegarins, verður væntanlega tekið fyrir hjá gerðardómi Verkfræðinga- félags íslands í byrjun næsta mánaðar. Eins og Dagur hefur skýrt frá stendur þessi málárekstur vegna þess að verktakinn telur að hann hafi orðið fyrir fjárútlátum vegna fyrsta áfanga Leiruvegarins, sem ekki hafi verið hægt að gera ráð fyrir miðað við útboðsgögn. Nemur upphæð þessi einum sjö hundruð þúsund krónum en það er gerðardóms Verkfræðingafé- lags íslands að kveða upp úr- skurð í málinu. - ESE Pétursson, lögfræðingur Landsbankans, spurður um til- boð í togarann Bjarna Herj- ólfsson, sem bankinn keypti á uppboði fyrir skömmu. Eins og fram hefur komið í Degi hefur Útgerðarfélag Akur- eyringa ákveðið að gera tilboð í skipið og Útgerðarfélag KEA hefur einnig sýnt því áhuga. Kristján Ólafsson vildi í gær ekk- ert segja um það hvort úr tilboði yrði, sagði málið á viðkvæmu stigi. Stefán sagði nokkur tilboð vera komin og margir hefðu spurst fyrir um skipið. Hann sagði ljóst, að bankinn þyrfti að fá 90-95 m.kr. fyrir skipið, til að „sleppa frá því skaðlaus“. En verður það selt hæstbjóðanda? „Það er bankastjórnin sem tekur ákvörðun um það, en ég reikna með að það verði tekið til- lit til getu bjóðenda, því bankinn vill síst fá skipið til baka aftur,“ sagði Stefán Pétursson. - GS Útgerðarfélagið ætlar Bjama Herjólfssyni að fylla í skarðið eftir Sólbak. Þær sögðust ekki alveg tilbúnar í listdansinn þessar skautadrottningar, en töldu að æfíngin skapaði meistarann. Mynd: GS „1 st reij aði um ð V i okla liðtil ir ge boðið ta 1“ - Framkvæmdir hefjast við vegagerð í Vaðlareit eftir mánuð „Viö ætlum að hefja fram- kvæmdir um mánaðamótin febrúar - mars, ekki seinna, en við höfum verið að gera tækin tilbúin í slaginn,“ sagði Stefán Árnason hjá Ytunni sf. á Ak- ureyri, en fyrirtæki hans, ásamt Reyni og Stefáni sf. á Sauðárkróki, sér um lagningu vegarins frá Leirunum norður í gegnum Vaðlareit. Verkinu á að vera lokið 28. júlí í sumar. Það vakti athygli þegar tilboð voru opnuð í verkið í sumar, að Ýtan sf. og Reynir og Stefán sf. voru með langlægsta tilboðið. Peir buðust til að framkvæma verkið fyrir 12,1 m. kr., sem er 45,5% af kostnaðaráætlun, en hún hljóðaði upp á 26,6 m. kr. Hvernig er þetta hægt? „Það má lengi þrasa um hvort kostnaðaráætlun Vegagerðarinn- ar er raunhæf, en við teljum okk- ur geta staðið við þetta tilboð,“ sagði Stefán. „Vegagerðin reikn- ar með að nota mun minni tæki við verkið heldur en við ætlum okkur að nota, auk þess reikna þeir sprengingarnar mun kostn- aðarsamari en við teljum okkur geta komist af með. Reynslan hefur nefnilega leitt í Ijós á þessu svæði, að með stórvirkum ýtum er hægt að krafsa klappirnar niður, í stað þess að sprengja þær, og fyrrnefnda aðferðin er mun ódýrari. Það verður svo bara að koma í ljós hvort okkur tekst þetta,“ sagði Stefán Árna- son. Framkvæmdir hefjast um mán- aðamótin febrúar - mars, eins og áður sagði, og sagðist Stefán reikna með að byrjað yrði við annan hvorn endann, sunnan og neðan við Hallland eða á Leirun- um. Verkið felst að stærstum hluta í jarðvegsflutningum og sprengi- vinnu, eða hvaða aðferðir sem verktakinn notar við að fjarlægja klappirnar úr vegarstæðinu. Á parti þarf t.d. að skipta um jarð- veg í vegarstæðinu, aka mold í burtu og setja möl í staðinn, og víða eru verulegar uppfyllingar. Öllu efninu verður ekið í veginn, þar sem engum uppfyllingum verður ýtt upp til að valda sem minnstum umhverfisspjöllum í Vaðlareitnum. - GS Nú verður veðurspámaður Dags að fara að taka sig á. Það hafa verið frosthörkur í tíu daga samfleytt á Norðurlandi og þeir á Veðurstofunni í Reykjavík fullyrða að kulda- boli verði á kreiki og færist jafnvel í aukana a.m.k. fram að helgi. Það er spáð aukinni norðan- og norðaustanátt og éljagangi á annesjum. Hvort Siglflrðing- ar fara alveg á kaf í snjó kemur í Ijós á næstu sólarhringum. # Þjóðarstoltið Ef undan er skiiinn hinn frá- bæri árangur Víkinga og FH- inga í Evrópukeppnunum í handknattieik, þá hefur eng- inn íþróttamaður verið jafn mikið 1 sviðsljósinu að undanförnu og kraftakappinn Jón Páll Sigmarsson. Stór- kostlegur árangur Jóns Páls i keppni sterkustu manna heims, óþvinguð og skemmtileg framkoma hefur svo sannarlega skotið jötnin- um upp á stjörnuhimininn og ailt bendir til þess að hann geti átt glæsllega framtíð fyr- ir sér og yljað íslensku þjóð- arstolti um ókomin ár. Sjón- varpið ætti nú að bregða hart við eins og það hefur gert í fótboltamálunum og tryggja sér sýningarrétt á myndinni um sterkasta mann heims. # Lýsið gefur kraft Tilsvör Jóns Páls hafa mörg vakið mikla athygli eins og t.d. þegar hann var spurður af hverju lyftingamenn öskr- uðu svo mikið sem raun bærí vitnl. - Til að fela prumpið, svaraði Jón Páll og var ekkert að skafa utan af því. Eins komst hann skemmtilega að orði þegar Mbl. ræddi við hann eftir kraftakeppnina. Jón Páll lýsti því yfir að hann vaknaði oft á nóttunni og fengi sér lýsi á tóman belginn. Þetta gæfi honum mikinn kraft og smyrði auk þess liði og limi. Þegar þetta heyrðist varð hagmæltum kraftlyftingafé- lögum Jóns Páls á Akureyri að orði: Lýsið smyr limina lasna og fúna, heldur í heilsuna hrakta og snúna. # Nú mér líkar lífið Ekki verður heldur betur séð en að Jón Páll sé búinn að skáka Árna Johnsen og Magnamíninu hans i sjón- varpsaualýsingunni. Hætt er við að Arna biði Sigmunds- gálginn ef eiginkona Jóns Páls kæmi fram í sjónvarps- auglýsingu og segði: Þetta er allt annað líf eftir að Nonni fór að taka lýsi. Gefðu mann- inum þínum lýsi strax í nótt. Og þá urðu þessar línur til: Þó vakni oft um miðja nótt á orði hafði vífið. Lýsið gerir Jóni gott nú mér líkar lífið.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.