Dagur - 11.02.1985, Side 11
11. februar 1985 - DAGUR - 11
t
Minning:
Anna Arnfríður Stefánsdóttir
Fædd 1. des. 1909 - Dáin 29. jan. 1985
Enn hefur brostið hlekkur í keðj-
unni sterku, sem tengir saman
ættmenn og vini. Enn hefur stórt
skarð verið brotið í frændgarð-
inn, Anna er dáin. Hún frænka
mín, sem frá fyrstu bernsku
minni hefur verið í sjónmáli. Oft
greiddi hún götu mína á einn og
annan hátt og margar kærar
minningar tengjast henni.
Stutt var milli bernskuheimil-
anna. Faðir minn bjó með fjöl-
skyldu sinni á Brautarhóli í
Svarfaðardal. En á næsta bæ, í
Gröf, bjó systir hans og mágur,
foreldrar Önnu. Túnin lágu sam-
an og vináttan var óvenju traust.
Mörg verk voru unnin í félagi, og
börnin voru eins og einn systk-
inahópur. í bernsku fannst mér
heimiíi mitt vera á báðum bæjun-
um, enda nefndi ég föðursystur
mína mömmu í Gröf. Þessa sam-
stöðu og kærleika fengu börnin í
arf, Anna þó líklega öðrum
fremur. Hún bar sterkt svipmót
ættar sinnar og uppruna. En auk
þess tók hún og eiginmaður
hennar við búsforráðum í Gröf af
foreldrum hennar. Hún var því
lengi á næstu grösum við okkur á
Brautarhóli.
Fegar ég var 18 ára að aldri var
ég eitt sumar hjá þeim hjónum.
Síðar, er þau voru nýflutt í
Böggvisstaði við Dalvík, bjó ég
á heimilinu heilan vetur. Og enn
seinna var ég næstum daglegur
gestur þeirra, er ég árlangt var
við störf á Dalvík. Heimilið og
heimilishætti þekkti ég því vel og
á margar indælar minningar
þaðan.
Anna var greind, fróð,
skemmtileg og mjög trygglynd en
þó dul á eigin tilfinningar. Hún
hafði til að bera mikinn persónu-
leika en var jafnframt hlý og
elskuleg. Ég vissi vel, að skap
hennar var talsvert, eins og hún
átti ætt til, en þess varð aldrei
vart. Hún var alltaf í jafnvægi,
róleg og traust.
Heimilið var stórt, þar sem
börnin urðu 9 talsins. Þar að auki
tóku þau hjónin að sér einstæð-
inga og gamalmenni, sem voru á
vegum þeirra til endadægurs.
Hús þeirra var ætíð opið gestum
og gangandi. Oft líktist það mest
hóteli, þegar nætur- og dvalar-
gestir komu þangað úr ýmsum
áttum. Allir fundu, að þeir voru
velkomnir. Glaðværð og gestrisni
húsráðenda laðaði fólk líka að.
Húsmóðirin á þessu stóra
heimili átti því oft annríkt. Þrátt
fyrir það gaf hún sér tíma til að
hafa í heiðri þá gamalgrónu ís-
lensku menningu, sem kvöld-
vökurnar á sveitaheimilum voru
löngum. Anna var mjög góður
upplesari. Enda dró hún að sér
bæði gesti og heimafólk, þegar
hún á vetrarkvöldum tók sér bók
í hönd og las upphátt fyrir þá,
sem hlusta vildu. Eg man vel, hve
ég flýtti mér að ganga frá stílum
og heimaverkefnum nemenda
minna til að geta farið niður og
hlustað á Önnu lesa. Oft var um
merk skáldrit að ræða, sem urðu
enn áhrifameiri, þegar hún flutti
þau. Meðan hún þannig skemmti
okkur öllum, gleymdi húsmóðir-
in og móðirin ekki öðrum hlut-
verkum sínum. Þó að hún væri að
lesa, gengu prjónarnir ótt og títt
í höndum hennar, svo að sokkur-
inn eða vettlingurinn á lítinn fót
eða hönd lengdist óðum.
Önnu og systkinum hennar var
átthagatryggð í blóð borin. Þau
settust öll að á heimaslóðum. Það
hafa flest börn hennar gert líka.
Þegar ég á síðari árum hef komið
eins og farfugl norður á bernsku-
stöðvarnar, hef ég orðið vitni að
því, að enn var oft fjölmenni á
heimili þeirra hjóna. Samstaða er
mikil meðal barna, tengdabarna
og barnabarna, og enn virtist mér
móðirin, tengdamóðirin og amm-
an vera miðpunktur hópsins.
Þannig hafa vinsældir þeirra
hjónanna ætíð verið hinar sömu,
hvar sem þau hafa búið.
Anna fæddist að Völlum í Svarf-
aðardal 1. desember 1909. For-
eldrar hennar voru hjónin Filipp-
ía Sigurjónsdóttir frá Gröf og
Stefán Arngrímsson frá Þor-
steinsstöðum. Voru þau bæði
svarfdælskrar ættar að langfeðga-
tali. Árið 1911 fluttu þau með
Önnu að Þorsteinsstöðum, þar
sem þau stunduðu búskap á hluta
jarðarinnar í 2 ár uns þau fluttu
að Gröf vorið 1913. Þar andaðist
Stefán vorið 1945. En móðirin
var á heimili Önnu allt til æviloka
haustið 1958.
29. apríl 1934 giftist Anna
frænda okkar beggja, Jóni Jóns-
syni, sem þá var skólastjóri gagn-
fræðaskólans á Siglufirði. Fyrstu
2 hjónabandsárin áttu þau heima
á Völlum en fluttu að Gröf vorið
1936 og tóku við búsforráðum
þar. Á vetrum þurfti Jón að sinna
skólastjórastörfum sínum á
Siglufirði. Hvíldi þá umsjá bús og
barna á eiginkonunni. En frænka
hennar og foreldrar réttu hjálpar-
hönd og sáu alveg um búskapinn
einn vetur, meðan Anna dvaldi
á Siglufirði hjá manni sínum. Að
lokum fór svo, að Jón sagði upp
skólastjórastöðu sinni.
Þegar börnunum fjölgaði, varð
Gröf of lítil jörð til að framfleyta
svo stórri fjölskyldu. Þá fluttu
þau öll að Böggvisstöðum við
Dalvík. En jafnframt búskapnum
kenndi Jón við Dalvíkurskóla.
Því hélt hann áfram, er leiðin lá
síðar til Dalvíkur. En auk
kennslunnar gegndi Jón ýmsum
öðrum opinberum störfum.
Á Völlum fæddust þeim syn-
irnir Stefán og Gunnar. Stefán er
búsettur á Dalvík, en Gunnar er
bóndi í Brekku í Svarfaðardal.
í Gröf fæddust börnin Jón
Anton, Helgi, Filippía, Gerður
og Kristján Tryggvi. Þau búa öll
á Dalvík, nema Kristján, sem
flutti til Reykjavíkur vorið 1984.
Yngstu dæturnar Svanfríður og
Hanna Soffía eru fæddar á
Böggvisstöðum og eru báðar bú-
settar á Dalvík. Börnin eru öll
gift og eiga afkomendur. Hópur-
inn þeirra Önnu og Jóns er því
orðinn stór. En hann var þeim
líka til gleði, því að allt er þetta
dugnaðar- og mannkostafólk.
Hin síðari ár átti Anna við
heilsubrest að stríða. Einnig því
tók hún með jafnaðargeði og var
alltaf glaðleg og hress í tali.
Börnin hafa reynst foreldrunum
vel eins og Jón og Anna reyndust
foreldrum hennar.
Það er huggun harmi gegn, að
Jón á marga og góða að, þegar
hann er nú einn í íbúð þeirra á
heimili aldraðra að Dalbæ á
Dalvík, mjög farinn að líkams-
kröftum. Ég er þess fullviss, að
minningarnar mörgu og hlýju frá
meira en 50 ára farsælli sambúð
eiga líka eftir að verma hann á
ókomnum dögum. En missirinn
er mikill, það veit ég vel. Svo vill
löngum verða hjá þeim, sem mik-
ið hafa átt.
Símtölin mín við Önnu frænku
mína verða ekki fleiri. Ég harma
það að geta ekki farið norður að
útför hennar og kvatt hana þann-
ig í hinsta sinn. En með þessum
fátæklegu orðum langar mig að
þakka einlæga vináttu hennar og
tryggð við foreldra mína og alla
fjölskylduna frá Brautarhóli. Mig
langar líka að þakka þann kær-
leika, sem þau hjónin auðsýndu
eiginmanni mínum, sem látinn er
fyrir nokkrum árum. Hann mat
bæði Önnu og Jón að verð-
leikum.
Að lokum bið ég Guð að
styrkja ykkur öll, sem nú eruð
harmi slegin. Guð blessi þig, Jón
minn, og ástvinina þína. Þið eigið
öll dýrmætan arf í minningunni
um elskulega, góða og mikilhæfa
konu.
Lilja S. Kristjánsdóttir.
Framsóknarvist
Síðasta spilakvöldið í þriggja kvölda keppninni verður
miðvikudaginn 13. febrúar að Hótel KEA kl. 20.30.
Heildarvinningur: Flugfar fyrir tvo til Reykjavíkur.
Einnig verða góð kvöldverðlaun.
Félag málmiðnaðarmanna
Akureyri
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri heldur
námskeið í ræðumennsku og fundar-
sköpun, dagana 15., 16. og 17. febrúar nk.
Námskeiðið verður haldið í Þingvallastræti 14 og
hefst kl. 20.30 föstudaginn 15. febrúar.
Leiðbeinendur verða Snorri Konráðsson varafor-
maður M.S.Í. og Signý Pálsdóttir leikhússtjóri LA.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að taka þátt í
námskeiðinu og láti skrá sig á skrifstofu félagsins í
síma 26800 milli kl. 9 og 11 f.h.
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Óseyri 4, Akureyri, þingl. eign Haga hf.,
fer fram eftir kröfu bæjarsjóðs Akureyrar, Iðnlánasjóðs, Sigríð-
ar Thorlacius hdl., Iðnþróunarsjóðs, Framkvæmdastofnunar
rikisins, Sambands almennra lífeyrissjóða og Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík, á eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985
kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 93., 95. og 97. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Gránufélagsgötu 19, e.h., Akureyri, þingl. eign
Stefáns Hermannssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl. og veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstu-
daginn 15. febrúar 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Skarðshlíð 25a, Akureyri, þingl. eign Sig-
urbjörns Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl., bæjarsjóðs Akureyrar og Steingríms Eiríkssonar hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Grenilundi 7, Akureyri, þingl. eign Tryggva
Pálssonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka fslands,
Gunnars Sólnes hrl., Ragnars Steinbergssonar hrl. og inn-
heimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 15.
febrúar 1985 kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Kaupangi v/Mýrarveg, A-hluta, Akureyri,
þingl. eign Tryggva Pálssonar, fer fram eftir kröfu Iðnlána-
sjóðs og Gústafs Þórs Tryggvasonar hdl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 15. febrúar 1985 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 66., 67. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Kaupangi v/Mýrarveg, O-hluta, Akureyri, þingl.
eign Verslunarmiðstöðvarinnar hf., fer fram eftir kröfu Ragn-
ars Steinbergssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 15.
febrúar 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Akureyrar.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Kaupangi v/Mýrarveg, H-hluta, Akureyri,
þingl. eign Smára hf., fer fram eftir kröfu Ragnars Steinbergs-
sonar hrl. og Iðnlánasjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 15.
febrúar 1985 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.