Dagur - 27.02.1985, Blaðsíða 3
27. febrúar 1985 - DAGUR - 3
Frá felagsraðsfundi KEA.
Mynd. ESE.
Félagsráðsfundur KEA:
Miskunnarlaus áróður grefur
undan litlu verslununum"
Sjóva-sveita-
hraðkeppni
Bridgefélags Akureyrar hefst nk. þriðjudag 5. mars kl.
19.30 í Félagsborg.
Spilaö veröur 4 þriðjudagskvöld. Þátttöku þarf að tilkynna í
síöasta lagi sunnudagskvöld 3. mars fyrir kl. 20 til stjórnarfé-
lagsins.
Maraþondansleikur
í Dynheimum laugardag 2. mars, hefst kl. 10 f.h.
Skráning hafin í síma 22710 eða í Dynheimum.
Munið skráninguna í Free-Style keppnina 8. mars.
‘Dtmkeimcin
______fstaður unga fólksins
Bifreiðaeigendur
Bifreiðastjórar
Eigum fyrirliggjandi:
Heildarvelta Kaupfélags Ey-
firðinga á Akureyri í aðal-
rekstri, á árinu 1984 var sam-
kvæmt bráðabirgðatölum,
rúmir tveir milljarðar króna.
Er það 29,56% aukning frá ár-
inu á undan. Velta afurða-
reikninga, þ.e. Mjólkursam-
lags, Sláturhúss og annarra
rekstursreikninga fyrir land-
búnaðarafurðir, var 739,4
millj. kr. sem er aukning um
34,54%. Heildarvelta félagsins
án samstarfsfyrirtækja var því
tveir milljarðar og rúmar 750
milljónir kr. sem er 30,84%
aukning frá árinu 1983. Á
sama tíma jókst launakostnað-
ur um 24,13% og var á árinu
318,2 millj. kr.
Þessar upplýsingar komu fram
í ræðu Vals Arnþórssonar kaup-
félagsstjóra á félagsráðsfundi
KEA sem haldinn var á Akureyri
í gær. Petta var 60. félagsráðs-
fundurinn frá upphafi og því
tímamótafundur eins og kaupfé-
lagsstjóri orðaði það í upphafi
máls síns.
í máli Vals Arnþórssonar kom
fram að samkvæmt framan-
greindu ætti rekstur félagsins að
vera nokkru betri en á árinu á
undan. Hins vegar væri vitað að
afkoma nokkurra rekstursgreina,
ekki síst sjávarútvegsins, hefði
versnað verulega af öðrum
ástæðum og því ekki hægt að full-
yrða á þessu stigi hvort afkoman
hefði verið betri en á árinu 1983.
Valur Arnþórsson lýsti yfir
þeirri skoðun sinni að æskilegt
væri að fjalla um afmörkuð efni
á þessum félagsráðsfundum þó
það væri e.t.v. erfitt vegna um-
fangs starfseminnar. Að þessu
sinni væru þó nokkur atriði sem
sjónir manna beindust sérstak-
lega að og nauðsynlegt væri að
ræða á þessum fundi. í brenni-
depli væri vörudreifingin í hérað-
inu, landbúnaðarmálin sem
snertu hag hvers einasta manns á
þessu svæði og upp í hugann
kæmu einnig sjávarútvegsmálin,
ekki síst vegna þeirrar stöðu sem
sjávarútvegurinn væri í í dag.
Síðast en ekki síst væru það upp-
byggingarmálin - hvernig félagið
gæti varið fjármunum sínum til
uppbyggingar á félagssvæðinu,
íbúunum til hagsbóta.
Verslunin
Kaupfélagsstjóri gerði matvöru-
verslunina að sérstöku umtals-
efni. Hann byrjaði á að nefna að
veruleg endurskipulagning hefði
verið framkvæmd í matvörudreif-
ingu félagsins á síðasta ári. Þá
hefði þrem matvöruverslunum
verið lokað, þar af einni vegna
þess að leigusamningur fékkst
ekki framlengdur á viðunandi
kjörum. Hinum var lokað til að
stuðla að hagkvæmni í rekstri
Matvörudeildar.
- Félagið er í þeirri erfiðu að-
stöðu að keppa annars vegar við
stórmarkaði en hins vegar að
halda uppi hæfilegri þjónustu í
hverfum og minni byggðum.
Þetta hlutverk er ekki fjárhags-
lega hagkvæmt fyrir viðkomandi
rekstur, þegar keppt er við aðila,
sem ekki skeyta um þjónustu-
hlutverkið í smábúðunum og litlu
byggðunum. Það er hins vegar al-
veg ljóst, að verulegur sársauki
fylgir lokun smábúða, sem hafa
mikið gildi bæði þjónustulega og
félagslega, en ef viðvarandi halla-
rekstri er haldið áfram verða að
sjálfsögðu að lokum engar búðir,
hvorki stórar eða smáar. í þessu
efni verður félagið því að velja og
hafna. Miskunnarlaus áróður
varðandi verðsamanburð milli
verslana, sem alls ekki eru
samanburðarhæfar, hefur átt sinn
þátt í því að draga viðskipti frá
litlu búðunum og grafa undan
rekstursgrundvelli þeirra, sagði
Valur Arnþórsson og bætti því
við að þetta ætti ekki síst við um
smærri staðina. Það væri orðið
augljóst að verslun streymdi í
miklum mæli frá minni stöðum
eins og Grenivík, Hrísey og
Hauganesi, þannig að tvísýnt
væri um framtíð svo fjölþættrar
verslunar sem félagið rekur þar
nú.
Valur Arnþórsson benti á að
félagsmenn og íbúar á þessum
stöðum hefðu nú örlög þessara
verslana í sínum höndum. Þeir
gætu tryggt framtíð þeirra með
því að beina þangað viðskiptum
sínum.
Kaupfélagsstjóri sagði það
engum vafa undirorpið að hin
harkalega samkeppni sem væri í
verslun á Reykjavíkursvæðinu
hefði teygt hingað anga sína. Því
til staðfestingar benti hann á að
vísitala neysluvöruverðlags hefði
aukist á síðasta ári um 31% en
samkvæmt könnun verðlagsyfir-
valda hefði það sem þeir nefndu
„jólasteikina" og algeng matvara
- 26 atriði, aðeins hækkað um
12-15% í Hrísalundi á sama
tíma.
í gögnum þeim sem lögð voru
fram á fundinum kom fram að
verslun hjá félaginu á Dalvík
jókst um 33,15%, um 24,74% á
Grenivík, 4,33% í Grímsey,
31,54% á Hauganesi, 32,57% í
Ólafsfirði, 16,40% í Hrísey en
42,68% á Siglufirði sem væri
mjög gott.
Á Akureyri jókst verslun í
krónum talið um 32,68% í Hrísa-
lundi en markaðshlutdeild þeirr-
ar verslunar miðað við aðrar
verslanir félagsins er tæp 42%. í
Hrísalundi var selt fyrir um 145,2
millj. kr. en heildarsala Matvöru-
deildar var rúmar 346 millj. kr.
- ESE
★ Topplugur
★ Skíðaboga
★ Þokuljós
★ Vinnuljós
★ Afturljós
★ Topplyklasett
★ Bílmottur
★ Þurrkublöð
★ Þurrkumótora
★ Útispegla
★ Flautur
★ Felgulakk í brúsum
★ Rafsuðuvélar
★ Logsuðusett
★ Rafsuðuþráð
og margt fleira.
Tilboðið stendur í viku frá 27/2 til 6/3.
Tðboð
á herraúlpum og stökkum
Margar gerðir.
Einnig
dúnstakkar.
SÍMI
(96)21400