Dagur - 27.02.1985, Blaðsíða 11
27. febrúar 1985 - DAGUR - 11
Minning:
Sveinn Brynjólfsson
vegaverkstjóri
F. 28. nóvember 1923 - D. 10. febrúar 1985
„Dáinn, horfinn. “ - Harmafregn.
Hvílíkt orð mig dynur yfir.
En ég veit, að látinn Iifir.
Pað er huggun harmi gegn.
Hvað er annars guðleg gjöf?
Geimur heims og lífið þjóða.
Hvað væri sigur sonarins góða ?
Illur draumur, opin gröf.
Þessar ljóðlínur Jónasar Hall-
grímssonar, komu fyrst í huga
mér þegar fréttist um fráfall
Sveins Brynjólfssonar. Hann var
Öxndælingur fæddur að Steins-
stöðum, en flyst þrettán ára að
Efstalandskoti, með foreldrum
sínum. Þar átti hann sína
bernsku og manndómsár í skjóli
hrikalegra fjalla, þar sem Landa-
fjall gnæfir í austri en í suðvestri
Þverbrekkuhnjúkur og Háafjall
með Hraundranga. Foreldrar
hans voru hjónin Brynjólfur
Sveinsson hreppstjóri og Laufey
Jóhannesdóttir og var hann einn
fimmtán barna þeirra.
Ungur vandist Sveinn vinnu
við búskap foreldra sinna og
einnig hjá vandalausum. Nám
stundaði hann í Alþýðuskólanum
á Laugarvatni og í Verkstjórnar-
skólanum. Mikið starfaði hann
fyrir Ungmennafélag Öxndæla og
var um tíma í stjórn þess. í sveit-
arstjórn Öxnadalshrepps var
Sveinn kjörinn árið 1954 og starf-
aði þar óslitið í níu ár, eða þar til
hann fluttist til Akureyrar.
Gott var að vinna með Sveini,
lundin var létt og grunnt á glað-
værð í vinahópi.
Árið 1951 giftist hann eftirlif-
andi konu sinni, Kristrúnu Jóns-
dóttur frá Tréstöðum, taldi hann
það mikið happ fyrir sig. Sama ár
hefja þau búskap í Efstalandskoti
og stunda hann til ársins 1963, er
fjölskyldan flyst til Akureyrar,
þar sem Sveinn tekur við vega-
verkstjórn hjá Vegagerð ríkisins.
Mest vann Sveinn að lagningu
nýrra vega og segja má að hann
hafi stjórnað mest allri vegagerð-
inni milli Akureyrar og Dalvíkur,
en þar fer nýbyggingu senn að
ljúka. Einnig stjórnaði hann
vegalagningu fyrir Ólafsfjarðar-
múla, auk annarra smærri verk-
efna.
Ekki var rekinn búskapur í
Efstalandskoti eftir að Sveinn
fluttist þaðan, en húsið var notað
sem sumarbústaður fyrir fjöl-
skylduna. Hingað var hvíldin
sótt, f dalinn góða.
Öxndælingar þakka störfin
sem þú vannst fyrir sveitarfélag-
ið, og senda eftirlifandi eigin-
konu og börnum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Steinn Snorrason.
Frá kjörbúð KEA
Byggðavegi
Vörukynning
verður í búðinni fimmtudaginn 28. febrúar
frá kl. 3-6 e.h.
Kynntar verða
Mastro-súpur
20% kynningarafsláttur.
Athugið. Föstudaginn 1. mars verður kynning
í versluninni á reyktri lambarúllupylsu
frá Kjötiðnaðarstöð KEA,
„f íber“brauðum frá Brauðgerð KEA og
Sanitas rnaltöli. Frábær kynningarafsláttur.
A söluskrá:
Seljahlíð: 4ra herb. raðhúsíbúð.
Norðurgata: 2ja herb. íbúð.
Þórunnarstræti: 150 fm íbúð ásamt bílskúr.
Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúðir.
Ásabyggð: 3ja herb. íbúð í tvíbýlishúsi ca. 112 fm.
Góð lán geta fylgt.
Keilusíða: 3ja herb. íbúð á 3. hæð.
Dalsgerði: 5 herb. raðhúsíbúð.
Munkaþverárstræti: 4ra herb. efri hæð í tvíbýli.
Hjalteyri: fbúð í tvíbýlishúsi.
Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 2. hæð.
Stórholt: 3ja herb. íbúð í eldra húsi.
Oddeyrargata: 3ja herb. íbúð í parhúsi.
Norðurgata: 3ja herb. íbúð. Góð greiðslukjör.
Lyngholt: 4ra herb. neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Lerkilundur: Einbýlishús á einni hæð með bílskúr.
Skipti á blokkaríbúð eða raðhúsíbúð koma til greina.
Reykjasíða: Fokheld 170 fm hús á einni hæð með
bílskúr.
Brekkusíða: Fokhelt 180 fm hús með rishæð og
bílskúr.
Akurgerði: Raðhús í byggingu.
Melasíða: 3ja herb. íbúð. Afhending samkomulag.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteignasalan hf opið trá
Gránufélagsgötu 4, . . _ _
efri hæð, sími 21878 5—' e.n.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur
Hermann R. Jonsson, sölumaður
Rafvirkjar
Okkur vantar rafvirkja vanan húsalögnum sem
fyrst. Uppl. hjá Óskari Eggertssyni eða hjá verk-
stjóra í síma 94-3092.
Póllinn hf. ísafirði.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Staða læknaritara
við Lyflækningadeild sjúkrahússins er laus til
umsóknar.
Góð vélritunarkunnátta nauðsynleg. Vinnutími er
kl. 13-17 e.h.
Upplýsingar um starfið veitir Ása Vilhjálmsdóttir,
læknafulltrúi, sími 96-22100.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra fyrir 15. mars
1985.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÍLAGA
Sparíð peninga og verslið ódýrt
og styðjið íslenskan iðnað.
Kjörbúð KEA
Byggðavegi
lónaðardeild ■ Akureyri
Starfsmaður óskast
í hönnunardeild skinnasaumastofu.
Æskilegt er að viðkomandi hafi einhverja
menntun í fatasaum eða fatahönnun.
Uppl. hjá starfsmannastjóra í síma 21900
(220 - 274).
r;r ^ msm
Glerárgata 28 • Pósthólf 606 Sími (96)21900