Dagur - 01.03.1985, Síða 3

Dagur - 01.03.1985, Síða 3
1. mars 1985 - DAGUR - 3 Sbeið Élizi Við sögðuni frá því hér í Degi á dögunum, að til stæði að fá listdans- meyna Lizi til Akureyrar um aðra helgi til að skemmta á kútmaga- kvöldi Lionsmanna. Nú er þetta endanlega ákveðið; hún kemur, hún kemur, hún kemur . . . Einhverra hluta vegna er stúlkan auglýst sem nektardansmey fyrir sunnan. Ég held að það hljóti að vera einhver misskilningur, sem stafar af því hversu léttklædd stúlkukindin hefur verið á myndum, en ég hef það fyrir satt, að það sé ekki til siðs í hennar heimalandi að stúlkur gangi mikið dúðaðar. Hún kemur nefni- lega frá Nígeríu blessunin, alin þar upp á skreið frá íslandi. Og það er akkúrat þess vegna sem Lionsmenn fá hana hingað, sem fulltrúa skreið- arneytenda, enda eru eingöngu fisk- réttir á borðum á kútmagakvöldinu. Koma hennar á kútmagakvöldið á sem sé ekkert skylt við nekt eða þá staðreynd að kútmagakvöldið er eingöngu fyrir karlmenn. Eins og segir í fyrirsögninni: „Skreið til Lizi,“ þá fær stúlkutetrið eingöngu skreið fyrir þetta viðvik, enda nóg til af henni. Eða tók ég vitlaust eftir? Gæti allt eins hafa átt að vera: Skreið til Lizi - og grátbað hana að koma norður! Hver verður mótleikur kvenmnm? Það verður fleira gert til að lyfta geði karla á kútmagakvöldinu, m.a. ætlar Svavar Gests að stjórna þar stórfeng- legu málverkauppboði og fagrar meyjar koma til með að svífa um sal- inn og selja happdrættismiða. En nú velta menn fyrir sér hver verði mót- leikur kvenna, því þær hafa undan- farin ár staðið fyrir svonefndum „krúttmagakvöldum“, eingöngu fyrir konur, sem mótvægi við kútmaga- kvöldin. Nú hef ég heyrt á götunni, að þær hyggist fá listdansarann Jón Pál til að troða upp á krúttmaga- kvöldinu! Hringanóri hringarág -umhöfinblá Svakalega var þetta skáldleg fyrir- sögn, sem kom eins og hugljómun yfir mig þegar ég fór að hugleiða málefni hringanórans, sem kom á Akureyrarflugvöll á miðvikudaginn. Þar var eðlilega tekið á móti honum með mikilli viðhöfn. Þetta mun vera í þriðja skiptið sem selur kemur til Akureyrar, flugleiðis alla leið frá Hollandi. Frumkvæðið að þessum ferðalögum mun hafa verið hjá sel- verndunarmönnum, en síðan hefur Arnarflug gefið farseðilinn, enda fær félagið góða auglýsingu út úr öllu saman. Hollenska pressan gerir mál- inu eflaust góð skil og hringanórarnir hafa komist í flesta fjölmiðla hér á landi. Þessir hringanórar hafa að því er mér skilst villst inn í síkin í Hollandi og verið bjargað þaðan af fallega hugsandi fólki. Hins vegar er ef til vill svolítið afstætt að flytja þá til íslands, þar sem menn eru verð- launaðir fyrir að drepa sel. Enda sagði mér Gróa nokkur á Leiti, að allir þessir hringanórar hefðu farið í refafóður hér út með firði. Þetta gæti því orðið arðvænlegt fyrir selveiði- menn, ef Hollendingar fara að fljúga hingað með seli í stórum stíl. Það er því engin tilviljun, að Hollendingur- inn fljúgandi verður sunginn í Reykjavík á næstunni. Onnur Gróa á Leiti sagði mér, að þetta væri alls ekki rétt. Hún sagðist nefnilega hafa fyrir því sannanir, að hér væri alltaf um sama hringanór- ann að ræða. Hann væri á mála hjá dýraverndunarsamtökunum hol- lensku og Arnarflugi, þannig að til- efni gæfist til vel auglýstrar píla- grímsferðar til íslands einu sinni á ári. Hún sagðist hafa þekkt hringa- nórann sem kom á miðvikudaginn, og hagaði sér nú orðið eins og kvik- myndastjarna fyrir framan mynda- vélina. Hún sagðist hafa séð hann synda út allan fjörð og eflaust væri hann kominn langleiðina til Hollands aftur. Sem sagt, á sama tíma að ári kemur hann fljúgandi aftur, sagði Gróa. Rasandiá þessari tíð Menn eru að verða rasandi á tíðinni, enda ekki furða, þvf dæmi eru þess að sést hafi 15 stig á hitamælum í febrúar. Það þótti bjartsýni, þegar spámaður okkar á Degi taldi vetur- inn búinn í janúar, en spá hans stendur enn. Það er ekki hægt að tala um vetrartíð.þótt snjóföl nái rétt upp fyrir ökkla og nefbroddurinn roðni örlítið í frosthörku í endaðan janúar á Norðurlandi. Spámaðurinn okkar sagði líka til um lægðarápið yfir land- ið að undanförnu og hann spáði þeim hlýindum sem við höfum notið síð- ustu daga. Ég ætla ekki að segja ykk- ur hverju hann spáir um framhaldið, þið getið lesið það í mánudagsblað- inu. En annar spámaður, mér hand- genginn, spáir góðviðri fram að ára- mótum, nema þegar kólnar, hvessir, snjóar og rignir. Oftast þess á milli verður blíða. Og veðurblíðan hefur orðið mörgu góðskáldinu yrkisefni, eins og sjá má af eftirfarandi sýnishorni: Lít ég eftir lóunni því loftið ber þess merkin, að gott muni a' góunni að gera sumarverkin. Kveðja frá Brynjólfi Margir urðu klumsa undir geðveikis- legu erindi Baldurs Hermannssonar Um daginn og veginn. Raunar finnst mér alltaf svolítið gaman af svona mátulega rugluðum skemmtiþáttum, sem eru á vitlausum stað í dag- skránni, en það er greinilegt að geð- lækninum Brynjólfi Ingvarssyni hef- ur orðið um og ó. Hann kvað: Baldur Hermannsson, hættu nú! Er Hitlcr risinn að nýju? Hvernig í ósköpum ælir þú upp svona drullugri spýju? Hríslast og læsist um hrellda sveit hrollur af ræðunni þinni. Var þér alvara ? Enginn það veit, órótt er mörgum í sinni. Hún ma' nú vara sig, þessi þjóð, ef þínir líkar /a' völdin kyrjandi botnlausan ofstækisóð yfir landslýð a' kvöldin. Gottað Bka ryðgaða Bim Margir iðka sund sér til hressingar og heilsubótar. Fríðir flokkar karla og kvenna mæta í laugarnar stundvís- lega á hverjum morgni, en aðrir nota hádegið til þeirra hluta. Þar hittist sama fólkið dag eftir dag, syndir mis- jafnlega langt, en lætur síðan pottana um að mýkja grjótharða vöðva. Ar- lega heldur þessi hádegisklúbbur sitt þorrablót og eitt slíkt er nýlega af- staðið. í það skiptið syntu flestir stutt, en síðan var veisla í pottinum. Hörður Tuliníus er ókrýndur for- maður klúbbsins, en eftir sund hans þorrablótsdaginn orti Þórhallur frá Djúpalæk Einarsson: Ei skal líkamsræktin rengd, ryðgaðir liðkast skrokkar. Synti í flýti flöskulengd, formaðurinn okkar. Hm áriega útsala okkar hefet á mánudaginn kl. 13.00 í Siinnuhlíð Þú gerír reyfarakaup á útsölunni okkar

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.