Dagur - 01.03.1985, Blaðsíða 11
1. mars 1985 - DAGUR - 11
- Hvítu mávar, segið þið . . .
Helena Eyjólfs? Komdu
blessuð, hvað segirðu mér af
mávunum þínum hvítu?
„Þessir mávar ætla lengi að
loða við mig. Ég var 16-17 ára
þegar ég söng þá inn á plötu og
ég get sagt þér að það er alltaf
einn og einn sem biður mig um
að syngja þá á böllum, þannig
að það er eins gott að kunna þá
ennþá.“
- Er þetta fyrsta dægurlagið
þitt?
„Með því fyrsta, já það varð
strax vinsælt. Þetta lag hafði
verið vinsælt úti og ég fékk það
sent hingað og söng við norskt
undirspil. Skólabræður mínir í
Tónlistarskóla Reykjavíkur
voru ekki par hrifnir af þessu
uppátæki, þeir króuðu mig af úti
í horni og hundskömmuðu mig
fyrir að stela af þeivinnu.“
- Pú hefur auðvitað snarhætt
við að syngja við erlendt undir-
spil?
„Nei, ég gerði eitthvað meira
af því. Það var Tage Ammen-
drup hjá íslenskum tónum sem
stjórnaði þessu.“
- Þú hefur ekki verið með
neinar kröfur?
„Almáttugur nei, ég var svo
ung. Ég gerði bara það sem mér
var sagt að gera. Ég myndi vilja
hafa hönd í bagga núna.
- Aftur að mávunum, af
hverju urðu þeir svona vinsælir
heldur þú?
„Þetta er lítið fallegt lag,
ofurlítill vals og íslendingar eru
alltaf svolítið veikir fyrir
völsum. Nú, textinn er stílaður
til sjómanna og mörg slík lög
ná vinsældum."
- Þú hefur dálítið verið að
syngja til sjómannastéttarinnar,
er hún þér sérstaklega hugleik-
in?
„Ég hef litlu fengið að ráða
þar um, það eru útgefendurnir
sem það gera. Svona lög verða
oft vinsæl og komast inn í óska-
lagaþættina, það þýðir að platan
selst betur og það gefur meiri
peninga, þetta leiðir hvað af
öðru.“
- Þú söngst í Sjallanum
gamla í „den tíð“, saknar þú
hans?
„Það er langt síðan ég söng í
Sjallanum síðast. Það er alveg
ljómandi gott að syngja þar, en
ég myndi ekki vilja binda mig
þar tvö kvöld í viku. Við reyn-
um að taka þessu rólega og
binda okkur ekki allar helgar,
það eru allir hljómsveitarmeð-
limir með fjölskyldur og við vilj-
um stundum vera heima."
,/únmci
er cið
syngja
í Sjallanum“
- Helena Eyjólfsdóttir á línunni
- Segðu mér Helena, hefur
þig aldrei langað til að skipta um
hlutverk, segja sem svo við
trommuleikarann: Nú getur þú
sungið, ég ætla að spila á
trommurnar?
„Ha, ha, ha, ég hef aldrei ver-
ið nein ægileg kvenréttindakona
í mér. Eg hef samt spilað á
trommur. Það var í Alþýðuhús-
inu í eldgamla daga. Við skipt-
umst á að fara í kaffipásur, þeg-
ar trommuleikarinn fór í pásu
tók ég við kjuðunum, Ingimar
spilaði á píanó og Finnur á
bassa. Þegar við fórum í pásu
var spilað á harmoniku og
trommu. Ég gat spilað valsa og
tangóa, en var lítið fyrir hröð
iög.“
- Þú hefur ekki viljað leggja
trommuleikinn fyrir þig?
„Nei, ég hef engan áhuga á
því og ég myndi ekki taka í mál
að gera þetta aftur. Það eru svo
miklu, miklu meiri kröfur í
dag.“
- Þér hefur aldrei dottið íhug
að stofna kvennahljómsveit?
„Kvennahljómsveit. Nei, það
hefur mér aldrei dottið í hug.
Það hafa verið stofnaðar
kvennahljómsveitir og með góð-
um árangri, en það er ekkert
fyrir mig. Ég hef svo til allt mitt
líf unnið með karlmönnum og
líkar það prýðilega. Það er
meira að segja svo, að stundum
eftir langar æfingar segi ég áður
en ég veit af: Við strákarnir!!“
- Þú ert orðin amma, er það
ekki?
„Jú, jú og það er alveg óskap-
lega gaman, mikið skemmti-
legra en ég hélt. Ég átti nú ekki
von á þessu strax, en það er bara
enn ánægjulegra.“
- Hvernig er að vera syngj-
andi amma, eða ef við orðum
það dálítið hátíðlega, amma
mín, dægurlagasöngkonan,
hvernig er tilfinningin?
„Það er ágætt að vera syngj-
andi amma. Það hefur verið sagt
í gríni að ég verði syngjandi
langamma svo enn á ég töluvert
eftir. Einhvern tíma var það líka
sagt að barnabarnið mitt ætti
eftir að segja við vini sína: Kom-
ið þið í Sjallann, amma er að
syngja.“
- Já þú hefur verið lengi að.
„Það er hægt að endast í
þessu ef maður tekur þetta sem
vinnu og vinnur skynsamlega en
umfram allt verður að hafa
ánægju af þessu. Mér finnst
miklu skemmtilegra að syngja
núna en áður þegar það var eina
starf mitt utan heimilis. Þetta er
svo ólíkt öllu öðru sem ég geri,
þetta er hvíld frá öllu hinu. En
það þarf stundum að spretta
hressilega úr spori, það eru
æfingar tvisvar í viku og ég sæki
tölvunámskeið hin kvöldin. En
ég tími ekki að sleppa þessu
alveg."
- Að lokum Helena, megum
við eiga von á fleiri plötum frá
ykkur í Hljómsveit Finns Ey-
dal?
„Það væri gaman að gera eina
plötu áður en maður hættir
þessu alveg. Við erum að leggja
drögin að einni, við eigum mörg
góð lög sem við teljum að eigi
erindi inn á plötu og þar kennir
margra grasa.“
- Einhver vals?
„Enginn vals, og þó þetta er
ekki alveg fullmótað ennþá,
aldrei að vita hvað getur komið
upp á.“
- Jæja, ætli ég kveðji ekki í
bili og vona að hvítu mávarnir
flögri út til okkar útvarpshlust-
enda eitthvað lengur.
„Vertu blessuð og þakka þér
fyrir." - mþþ
Maritaðsvika í Grýtu
4. mars - 9. mars nk.
10%
afsláttur
af öllum
vörum
★ Postulín
★ Glervara
★ Stálvörur Líttu inn i
★ Trevörur n
★ Tágavörur UtytU
★ Plastvörur
Grýta
Sunnuhlíð, sími 26920.
Búsáhöld, tómstundavörur
Viönám gegn veröbólgu
Gerið litlu krónuna stóra
Rymingarsala
hefst mánudag 7. mars
Dæmi um verð:
Barnaflauelsbuxur.
Stærðir 104-152.
Verð áður kr. 425,- Nú kr, 300.
Fóðraðar barnabuxur.
Árður kr. 570,- Nú kr. 430,-
Auk þess annar fatnaður í mjög miklu úrvaii.
Komið og gerið góð kaup.
Mikill afsláttur
_ M Póstsendum.
lii Eyfjörð
Hjalteyrargöta 4 ■ simi 22275
Vomrumar streyrm inn
Chaplin-bolir
í þrem litum.
Stærðir 2-12.
Verð kr. 532,-
Stretchbuxur,
rauðar og svartar.
Stærðir 2-14.
Skyrtur,
stærðir 140-176. Verð kr. 853,-
Eigum von á frábærum glansgöllum
í Ijósum litum. Gott verð.
Wother Doks regnfatnaður
fyrir yngri börnin.
Fallegur, lipur og ótrúlega sterkur.
Ath! Tilboðsverð á öllum skíðafatnaði
og jökkum. 30% afsláttur.
Póstsendum.
Verslunin
IDA
Skipagötu 14, sími 24991.