Dagur - 01.03.1985, Qupperneq 13
1. mars 1985- DAGUR - 13
Aðcdfundur
Varðbergs
Næstkomandi laugardag, 2.
mars heldur Varðberg, sam-
tök um vestræna samvinnu, á
Akureyri, aðalfund sinn í
Sjallanum.
Ræðumaður fundarins verð-
ur Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins og ræðir hann um
frumkvæði lslendinga í örygg-
is- og varnarmálum og aukna
þátttöku íslendinga í eigin
vörnum.
Fundurinn hefst ki. 12.30
með hádegisverði. Öllum er
heimil þátttaka.
endiuvakið
Vélflugfélag Akureyrar verður
endurvakið með aðalfundi
félagsins, sem haldinn verður í
Dynheimum í kvöld kl. 20.30.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa verður sýnd kvikmynd
frá flugsýningunni í Fan-
bourogh ’84 og rætt verður um
ýmis hagsmunamál flugvéla-
eigenda og flugáhugamanna á
Akureyri. M.a. verður rætt
um skipulag svæðis fyrir
einkaflugskýli á Akureyrar-
flugvelli og hugsanlegan flug-
dag í sumar. Allir flugáhuga-
menn eru velkomnir á
fundinn.
Maraþondans
í Dynheimum
Hin árlega maraþondans-
keppni hefst í Dynheimum
Knatíspymu-
deMÞórs
með
hlutaveltu
Knattspyrnudeild íþróttafé-
lagsins Þórs gengst fyrir hluta-
veltu, og verður hún í Húsi
aldraðra á Akureyri nk.
sunnudag og hefst kl. 15.
laugardaginn 2. mars kl. 10
f.h. Keppendur skulu mæta kl.
9 og hafa meðferðis vottorð
frá foreldrum ellegar lækni er
vottar að viðkomandi sé nógu
hraustur líkamlega.
Opið hús verður milli kl. 14
og 17 og eru þá allir velkomnir
að líta inn og fylgjast með.
Skráning fer fram í Dynheim-
um alla virka daga milli kl. 13
og 18. Frestur til að láta skrá
sig til keppni rennur út föstu-
daginn 1. mars kl. 18. Þess má
geta að 1. verðlaun eru 4.000
krónur, farandbikar og 8 frí-
miðar í Dynheima. Önnur
verðlaun eru 2.000 krónur og 8
frímiðar í Dynheima og þau
þriðju eru 1.000 krónur og
einnig 8 frímiðar.
Ársæll Magnússon og Gísli Eyiand við hluta af búnaðinum sem er á sýningunni.
Póstur og sínú
sýnir símatœki
Á vegum Pósts og síma á Ak-
ureyri er ákveðið að setja upp
sýningu á símabúnaði, sem er á
boðstólum árið 1985. Sýningin
verður haldin í Verkmennta-
skólanum, húsi tæknisviðs við
Þórunnarstræti, laugardaginn
2. mars og sunnudaginn 3.
mars og er opin frá kl. 14.00 til
18.00, báða dagana. Sýningin
hefur yfirskriftina „Símabún-
aður ’85“
Um helgina verður haldin
landbúnaðarráðstefna á
Hrafnagili í Eyjafirði. Það eru
Ungmennasamband Eyja-
fjarðar og Ungmennafélags-
hreyfingin á fslandi í samvinnu
við Búnaðarfélag Eyjafjarðar
og Búnaðarfélag íslands sem
gangast fyrir ráðstefnu þessari.
Aðalumræðuefnið verður
í dag er þróun í símaþjón-
ustu mjög ör á tæknilegu sviði,
sem býður viðskiptavinum,
bæði fyrirtækjum og heimil-
um, upp á verulega hagræð-
ingu í símanotkun.
Umdæmið vill, með sýningu
á árinu 1985 sem er lokaár
framkvæmda í sjálfvirkni í
sveitum, brjóta upp á nýjum
markmiðum, t.d. með því að
offramleiðsla í landbúnaði og
mögulegar leiðir út úr henni.
Haldnir verða fyrirlestrar um
þetta efni. 19 fulltrúar frá hin-
um Norðurlöndunum mæta á
ráðstefnuna og segja frá
ástandinu í sínum heima-
löndum og hvað þar er verið
að gera.
eiga frumkvæði að því að
kynna viðskiptavinum sínum
þær nýjungar, sem eru á boð-
stólum hverju sinni. Með því
brjótum við blað í þjónustu
okkar og komum til við-
skiptavina með kynningu á
okkar þjónustusviði.
Sýningu þessari er ætlað að
ná til stmnotenda í Eyjafirði,
þ.e. Akureyri, Dalvík, Ólafs-
firði, Hrísey, Grenivík og ef
vel heppnast ráðgerum við
kynningu á Húsavík, Sauðár-
króki, Blönduósi og jafnvel
fleiri stöðum.
Við væntum þess að við-
skiptavinir taki þessu vel -
sjón er sögu ríkari. Stöðvar-
stjórar og sérfræðingar okkar
verða til staðar á sýningunni
með upplýsingar og ráðgjöf og
munu taka við pöntunum eða
hafa samband síðar.
Þeir sem kjósa geta fengið
keypt nýjustu símatækin á
staðnum. Að öðru leyti vísast
til auglýsingar um sýninguna.
Umdæmisstjóri.
Jjmdbúnaðarráðstefna
að Hraýnagili
Margir góðir rnunir eru í
boði á þessari hlutaveltu. Má
nefna flugferð að eigin vali
með FN, máltíð fyrir 2 í Sjall-
anum og á Hótel KEA, matar-
úttekt á Bautanum, tölvu,
ávísanir á matvörur og fleira
og fleira.
Engin núll verða, miðaverð
35 krónur en þrír miðar seldir
saman á 100 krónur.
Martin Berkofsky á tón-
leikqferð norðanlands
Merkjasda
Náttúrulœkn-
ingafélagsins
Góðir Akureyringar!
Náttúrulækningafélagið á Ak-
ureyri vill vekja athygli á því,
að merkjasala félagsins fer
fram laugardaginn 2. mars nk.
Það verða nemendur úr
Menntaskólanum á Akureyri
sem annast söluna að þessu
sinni. Verið er að safna fyrir
útihurðum og gleri í gluggana
í hressingarhælinu í Kjarna-
skógi. Mjög er áríðandi að
hægt verði að Ijúka við verkið
sem fyrst, áður en innanhúss-
vinna hefst. Við væntum góðra
undirtekta bæjarbúa nú sem
fyrr, um leið og við þökkum
rausn ykkar á liðnum árum.
Stjórn N.L.F.A.
Píanóleikarinn Martin Berk-
ofsky heldur tónleika á fjórum
stöðum á Norðurlandi þessa
dagana.
Fyrstu tónleikar hans voru
að Ýdölum í Aðaldal fimmtu-
daginn 28. febrúar kl. 21, á
föstudagskvöld 1. mars leikur
hann á tónleikum í Víkurröst
á Dalvík kl. 21. Akureyringar
fá að hlýða á hann í Borgar-
bíói laugardaginn 2. mars kl.
17, en ágóði af þeim tón-
leikum rcnnur til sérstaks
hljóðfærakaupasjóðs fyrir
Tónlistarskólann á Akureyri.
Sunnudaginn 3. mars leikur
Martin Bcrkofsky í Safnahús-
inu á Sauðárkróki á vegum
tónlistarfélags staðarins og
hefjast tónleikarnir kl. 14.
Martin Berkofsky hefur
haldið tónleika víða um heim,
og á þessum vetri fór hann í
sex vikna tónleikaferð, þar
sem leiðir hans lágu um
Rússland, Tékkóslóvakíu,
Júgóslavíu, Tyrkland og
Kýpur. Mánudaginn 18.
febrúar sl. hélt Berkofsky tón-
leika í Þjóðleikhúsinu til
ágóða fyrir byggingu tónlistar-
húss, og þóttu þeir tónleikar
takast með afbrigðum vel.
Sem konsertpíanisti hefur
Martin Berkofsky leikið í 4
heimsálfum. Hann hefur leikið
með Berlínar- og Lundúnasin-
fóníunni og leikið í meir en 70
útvarps- og sjónvarpsþáttum
og einnig á listahátíðum.
Fyrstu tónleika sína á fs-
landi hélt hann á Akureyri, og
þar hefur hann haldið marga
tónleika ásamt píanónám-
skeiðum, jafnframt því sern
hann stofnaði sjóð við Tónlist-
arskólann á Akureyri til að
styrkja efnilega píanónemend-
ur við skólann.
í þessari tónleikaferð leikur
nann tvær efnisskrár: Á Akur-
eyri og að Ýdölum flytur hann
tónlist eftir Liszt. Á Dalvík og
á Sauðárkróki leikur hann auk
3ja tónverka eftir Liszt, són-
ötu op. 54 eftir Beethoven,
sónötu nr. 28 eftir Thomas
Ogden og prelúdíu og fúgu í a
moll eftir Bach, sem Liszt hef-
ur umskrifað.
Martin Berkofsky er nú bú-
settur á íslandi og kennir við
Tónlistarskólann í Garðabæ.
Blakað í
Glerárskóla
Tveir blakleikir verða í
íþróttahúsi Glerárskólans um
helgina. í kvöld leika KA og
Víkingur í meistaraflokki
kvenna kl. 20.15 og á morgun
kl. 15.00 leika sömu lið. Að
þeim leik loknum leika KA og
HK í meistaraflokki karla.
Hermanns-
mótiðum
helgjna
Hermannsmótið, eitt mesta
skíðamót vetrarins verður
haldið í Hlíðarfjalli um helg-
ina. Mótið er bikar- og
punktamót, og allt besta
keppnisfólk landsins í alpa-
greinum mætir til leiks.
Keppnin hefst í fyrramálið
kl. 10 og verður þá keppt í
svigi kvenna og stórsvigi karla
og er reiknað með að keppn-
inni Ijúki um kl. 14. Á sunnu-
dag keppa svo karlarnir í svigi
og konurnar í stórsvigi.
Eins og fólki er kunnugt er
snjór ekki of mikill í Hlíðar-
fjalli. en þó nægur til þess að
hægt verður að halda mótið og
er ástæða til þess að hvetja
fólk til að fjölmenna í Fjallið
og sjá allt besta alpagreinafólk
landsins í keppni.
Tekst Þór
að verjast
falli
Tekst Þór að bjarga sér frá
falli í 2. deild í handknattleik
kvenna? Svar við þeirri spurn-
ingu gæti fengist í íþróttahöll-
inni á morgun, en þá á Þór að
leika þar gegn Víkingi kl. 14.
Staða neðstu liða í deildinni
er sú að Akranes er á botni
deildarinnar með 2 stig, Þór
hefur 3 stig en ÍBV 4 stig. ÍBV
á aðeins eftir einn leik, gegn
Val, og má telja víst að Valur
sigri í þeirri viðureign. Þór og
Akranes eiga hins vegar eftir
að leika báða leiki sína inn-
byrðis svo sjá má að mögu-
leikar Þórs á að halda sætinu
eru talsverðir, og sigur í kvöld
mvndi færa liðið mun nær því
marki.
Vistog
,jéttara hjd“
aðJaðri
Undanfarin föstudagskvöld
hafa kylfingar setið yfir spilum
í klúbbhúsi sínu að Jaðri og
spilað félagsvist.
Þátttaka hefur verið mjög
góð og í kvöld geta menn enn
mætt á staðinn til þess að
handleika spilin og reyna að
klekkja á náunganum.
„Dísa vist“ sem hefur yfir-
umsjón með þessum spila-
kvöldum tjáði Helgar-Degi að
vegleg verðlaun væru í boði,
og eftir að spilavistinni lýkur
væri ætlunin að taka upp „létt-
ara hjal". Golfarar í Golf-
klúbbi Akureyrar vita því
væntanlega hvað til þeirra frið-
ar heyrir í kvöld. en byrjað
verður að spila kl. 20.30.