Dagur - 04.03.1985, Síða 2

Dagur - 04.03.1985, Síða 2
2-DAGUR-4. mars 1985 Heldurðu að ríkis- stjórnin verði langlíf? Ingþór Sveinsson: Ég hef bara ekki spáð í það, mér er svo sem nokkuð sama. Sveinbjörn Adolfsson: Hún verður ekki langlíf nema með breyttum aðgerðum. Og ég á von á að stefnubreyting verði á störfum hennar. Stefán Björnsson: Ég get ekki sagt fyrir um það á þessu stigi. Það er svo margt sem spilar þarna inn í. ■mm Þorvaldur Aðalsteinsson: Nú veit ég ekki. Nei, ég reikna ekki með því. Hreppstjórinn á Krossum í Ár- skógshreppi, Snorri Kristjáns- son var að mála stofuna sína er blaðamaður Dags kom við hjá honum á ferð sinni um hrepp- inn nýlega. Snorri hefur verið hreppstjóri Árskógshrepps síð- an árið 1967, en áður var faðir hans, Kristján Eldjárn Krist- jánsson þar hreppstjóri. Móðir hans Sigurbjörg Jóhanusdóttir var frá Þönglabakka í Fjörðum. Á Krossum er tvöfalt vísi- tölubú sem kallað er, en „það er ekki verið að hossa þeim sem framleiða mikið núna“ segir Snorri. „Maður hefur verið að bauka við að byggja þetta upp af því að á sínum tíma fannst manni þetta vera þjóðhagslega brýnt og þarft verkefni. Það vantaði þessar vörur í íslenskt þjóðarbú, en nú hefur það breyst og þá harðnar á dalnum hjá okkur bændum. Það er Iítill skilning- ur á því verki sem bændur hafa unnið í þessu þjóðfélagi.“ Snorri og kona hans Sigurlaug Gunnlaugsdóttir hófu búskap á Krossum fyrir 30 árum og hafa rekið hefðbundið kúa- og sauð- fjárbú sfðan. Þau hafa ræktað tún og byggt yfir bústofninn. „Mitt áhugasvið hefur frá fyrstu verið tengt búfé og ræktun svo það var nánast sjálfgefið að velja hlutskipti bóndans enda tal- ið þjóðhollt á þeim tíma. Það stefnumið bóndans að stuðla að því að tvö grös vaxi þar sem áður óx eitt, virðist ekki lengur dyggð. Nú er því jafnvel afneitað að bóndi sé bústólpi og bú landstólpi og virðingin í samræmi við það. Við erum vanir því, bændur að okkar framleiðsla sé metin eftir gæðum aftur á móti finnst manni oft á tíðum að sú umfjöllun um málefni bænda sem sumir blaða- menn framleiða vera metin í öf- ugum hlutföllum við gæðin. Athyglisverður samnefnari fyr- ir þær hugmyndir sem hafa verið að gerjast í fjölmiðlum og víðar að undanförnu birtist nýskeð al- skapaður í framsetningu Baldurs Hermannssonar í útvarpinu. Þar eru öll framleiðsluvandamál til sjávar og sveita leyst með einu pennastriki. Aðeins að byggja nokkrar húsaraðir í Reykjavík og landsbyggðarfólkið sem Reyk- víkingar hafa haldið uppi flutt þangað í sólina og allsnægtirnar. Þá mætti gera ísland að allsherjar þjóðgarði fyrir þá Reykvíkinga sem ekki dvelja í sólarlöndum yfir sumarið.“ - Þið eigið stórt samkomuhús hér, er félagslífið gott? „Félagsmál hafa löngum stað- ið með nokkrum blóma í okkar litla samfélagi hér á Árskógs- strönd og þar hafa starfað margir góðir menn sem borið hafa góð mál fram til sigurs. Eitt gleggsta dæmið um síkt átak fyrr á tíma er bygging skóla og samkomuhúss að Árskógi fyrir meira en 40 árum, en að þeirri byggingu stóðu ungmennafélagið, kvenfé- lagið og sveitarsjóður. Þar hefur jafnan verið farsælt sambýli fé- laga og skólá. Á þessum stað voru fyrir nokkur byggð tvö önnur hús í tengslum við skólann. Nú er einnig farið að huga að viðbyggingu og endur- bótum á gamla húsinu. Myndar- legt íþróttahús hefur verið byggt á lóð skólans og ennfremur sund- laug með búningsaðstöðu í skóla- húsinu. Þessi góða aðstaða hefur stuðlað að aukinni íþróttaiðkun og ekki síst góðu gengi knatt- spyrnunnar. Nú í sumar er ráð- gert að starfrækja sumarbúðir í Árskógi á vegum U.M.S.E. Þá er stefnt að því að miðstöð félags- legrar þjónustu verði smám sam- an færð á þennan stað.“ - Hvað segir þú mér af at- vinnulífinu í hreppnum? „Aflabrögð báta í verstöðvum hér hafa verið mjög léleg síðustu árin einkum hvað þorskinn áhrærir. Sumir hafa reynt að bæta sér það upp með því að sækja til annarra verstöðva. Kvótinn hefur því verið í lág- marki. Rækjan hefur bjargað þeim er sótt hafa í hana. Þannig var hafist handa við rækjuvinnslu á sl. vori í Árveri. Fór sú fram- kvæmd vel af stað og hefur verið starfrækt uppihaldslítið þar til fyrir skömmu að hráefni skorti. Um sinn er Árver í leiguhúsnæði á Árskógssandi, en fyrirhugað er að byggja yfir það á iðnaðar- svæði, þar sem fyrir eru tvö verk- stæðishús, og horfur á frekari uPPbyggingu. Eftir að þorskafli glæddist hafa allir bátar skipt yfir í þorskanet og nú undanfarna daga hefur meiri afli borist á land en dæmi eru til á þessum árstíma. Það má því teljast mikil kaldhæðni ef verkföll stöðva sóknina til lang- frama. Alls eru 8 vélbátar gerðir út héðan, frá 30-180 lestir. Verk- efni hafa því verið yfrið nóg fyrir allar vinnufúsar hendur. En at- vinnuástand hefur verið í sæmi- lega góðu horfi á liðnu ári og nokkrar byggingaframkvæmdir á vegum einstaklinga og sveitarfé- lags. Veruleg fjölgun hefur orðið í hreppnum á árinu, um 7-8% og eru nú um 340 manns búsettir hér.“ - Þú ert sáttur við þitt hlut- skipti sem bóndi, þrátt fyrir hinn neikvæða Reykjavíkurtón sem þú kallar svo? „Já, ég er það, þetta er gott starf fyrir þá sem hafa gaman af ræktun. Það er alltaf eitthvað að gerast í lífi bóndans, þó hver dag- ur sé öðrum líkur. Það er alltaf einhver tilbreyting á hverjum degi. Ég er sáttur við mitt lífs- starf og hef alltaf haft ánægju af því og stefndi alltaf að því að verða bóndi.“ - mþþ Lækkun útsvars - kjarabót Mikið hefur verið rætt um nýlega hækkun fasteignagjaldanna á Akureyri. Þykir mörgum sem bæjaryfirvöld seilist heldur djúpt í vasa skattborgaranna að þessu sinni. Eftir viðtal Dags við Sigurð Jóhannesson sl. mánudag, þar sem fram kom að útsvarsálagning verður aðeins 10,4% í ár, sett- umst við hjónin niður, ásamt kunningjum okkar í næstu íbúð og reiknuðum út peningaleg áhrif þessara breytinga á fjölskyldur okkar. Ef álagning fasteignagjaldanna hefði verið óbreytt frá í fyrra hefði það sparað þessum tveimur heimilum í heild tæplega 3.000 krónur en fasteignamat íbúðanna er samtals um 2,9 milljónir króna. Við, sem hér um ræðir, keyptum íbúðir okkar fyrir nokkrum árum, skuldum ennþá mikið og vinnum þar af leiðandi eins mikið og færi gefst á til að standa skil á skuldbindingum okkar. Ef tekjur þessara heimila á árinu 1984 hefðu verið álagðar með 11% útsvari, eins og heimilt er, í stað 10,4% hefði það kostað þau meira en tvisvar sinnum hærri upphæð en þá sem af hækk- un fasteignagjaldanna leiðir. Þeir sem miklar eignir eiga sjá e.t.v. ofsjónum yfir hækkun fast- eignagjaldanna en fyrir okkur, sem teljum hverja krónu fram, er útsvarsíækkunin mun hagstæðari. Það er á allra vitorði að fjölmarg- ir í þessu þjóðfélagi hafa umtals- verðar tekjur sem hvergi eru taldar fram. Ýmsir byggja sér vegleg einbýlishús og aka um á dýrari tegundum bíla en greiða á sama tíma „vinnukonuútsvar". Hækkun fasteignaskatta og lækk- un útsvars er leið til að minnka þetta óréttlæti og væri óskandi að núverandi forystumenn í ríkis- stjórn landsins fylgdu fordæmi flokksbræðra sinna á Akureyri í þessum efnum; af nógu er að taka. Við þökkum bæjaryfirvöldum á Akureyri þessar aðgerðir; þær eru launþegum í hag á kostnað stóreignamanna. Tvenn hjón á Brekkunni.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.