Dagur - 04.03.1985, Blaðsíða 3

Dagur - 04.03.1985, Blaðsíða 3
4. mars 1985 - DAGUR - 3 Gífurleg fjárbinding í birgðum hjá KEA: „Við verðum að spyma við fótunT - segir Valur Amþórsson, kaupfélagsstjóri - Það er mikið áhyggjuefni hvað fjárbinding í birgðum er orðin gífurleg. Það er Ijóst að við verðum að spyrna við fótum. Forðast aukna fjár- bindingu, draga úr fjárfesting- um og halda fast um útlán. Þetta sagði Valur Arnþórsson, kaupfélagsstjóri m.a. í yfirliti sínu um þróun vörubirgða hjá Kaupfélagi Eyfirðinga á Akur- eyri á félagsráðsfundi félagsins sem haidinn var á Akureyri fyrir skömmu. Orðrétt sagði Valur: „Vörubirgðir félagsins í verslun, iðnaði og þjónustu voru í árslok 1984 240,6 m.kr. og höfðu aukist um 34,5% frá fyrra ári. Er hér um óafskrifaðar birgð- ir að ræða. Birgðir félagsins í sjávarafurðum voru að fram- leiðsluverðmæti 169,5 m.kr. og höfðu aukist um 44,3% frá fyrra ári. í heild má reikna með að kostnaðarverð vörubirgða hafi hækkað milli áranna um 97,8 m.kr. og er þar að sjálfsögðu um mjög stóra upphæð að ræða. Hækkun vörubirgða er í sjálfu sér hvergi óeðlileg miðað við verðbólguþróun nema þá í sjáv- arútvegi, en þar eru birgðir mjög þungar.“ - ESE Blomberq Stílhrein hágæða heimilistæki 2ja ára ábyrgð Komið og gerið kjarakaup í nýju versluninni Raf í Kaupangi. NYLAGNIR VIOGERDIR VERSLUN Kaupangi v/Mýrprveg. Sími 26400. Verslið hjá fagmanni. Hitaveita Akureyrar: Gjöldin af nýju mælunum borguð með skuldabréfum Fjármálaráðuneytið hefur ákveðið að heimila Hitaveitu Akureyrar að greiða aðflutn- ings- og sölugjald af heita- vatnsmælunum sem keyptir verða, með skuldabréfi til tíu ára. Þetta er mjög mikið hags- munamál fyrir veituna því kostnaður er áætlaður fjórar milljónir króna. Hitaveitustjórn hefur fagnað þessari ákvörðun ráðuneytisins enda þarf ekki að greiða fyrstu afborgun af skuldabréfinu fyrr en eftir fimm ár og vextir reiknast frá þeim tíma. - Þetta sýnir viðleitni stjórn- valda til að styðja við bakið á þeim hitaveitum sem reyna að Markaðsvika í Giýtu 4. mars - 9. mars nk. 10% afsláttur af öllum vörum ★ Postulín ★ Glervara ★ Stálvörur ★ Trévörur ★ Tágavörur ★ Plastvörur Grýta Líttu inn í Grýtu Sunnuhlíð, sími 26920. Búsáhöld, tómstundavörur bjarga sér sjálfar, sagði Böðvar Bjarnason, tæknifræðingur hjá hitaveitunni en hann sagði stjórn- endur hitaveitunnar að vonum ánægða með þessa farsælu lausn. - ESE Fasteignaskattur lækkaður á Dalvík - hjá lífeyrisþegum Bæjarstjórn Dalvíkur hefur samþykkt viðmiðunartölur vegna lækkunar eða niðurfell- ingar á fasteignaskatti hjá elli- og örorkulífeyrisþegum. Eru tekjumörkin talsvert lægri en t.d. á Akureyri, þannig að því leytinu til ætti að vera auð- Álversandstæðingar: Blað í 60 þús. eintökum Á næstu dögum verður blaði sem álversandstæðingar við Eyjafjörð gefa út, dreift á flest öll heimili í landinu. Upplag þessa blaðs er ekki lítið eða 60 þúsund eintök. Að sögn Steinars Þorsteinsson- ar, tannlæknis, eins þeirra sem standa að þessari útgáfu, er blað- ið 12 síður að stærð. - Þetta er blað um atvinnumál sem snerta hvern einasta mann og auðvitað koma sjónarmið ál- versandstæðinga þar skýrt fram, sagði Steinar Þorsteinsson í sam- tali við Dag. - ESE veldara að vera gamall á Akur- eyri. Viðmiðunartölur Dalvíkur eru annars þessar: Fasteignaskattur fellur alveg niður ef tekjur einstaklings eru lægri en 137.198 kr. og tekjur hjóna lægri en 212.974 kr. Fasteignaskattur fellur niður að tveim þriðju hlutum ef tekjur eru lægri en 157.198 hjá einstakl- ingi og 252.974 hjá hjónum. Loks var ákveðið að fella fast- eignaskatt niður að einum þriðja hjá þeim einstaklingum sem þén- uðu minna en 177.198 kr. og hjónum sem höfðu minna en 292.974 í árslaun. Að sögn Snorra Finnlaugsson- ar, bæjarritara nær þessi lækkun eða niðurfelling til mun fleiri að- ila nú en í fyrra. Snorri benti einnig á að ekki þótti ástæða til að setja inn ákveðin eignarmörk líkt og gert er á Akureyri. ACTIGENER SJOLEIÐIIM BORGARSIC AKUREYRI MIÐSTÖÐ FLUTNINGA A NORÐURLANDI Þarftu að flytja vörur innanlands? Til útlanda? Frá útlöndum? Við erum með umboð fyrir þrjú skipafélög og marga sérleyfisbíla á Norður- og Austurlandi. Þinn ákvörðunarstaður er í okkar áætlun. Hafðu samband. RÍKISSKIP 23936 HAFSKIP HF. SAMBANDSSKIP 25730 21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.