Dagur


Dagur - 08.03.1985, Qupperneq 6

Dagur - 08.03.1985, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 8. mars 1985 ,pað er mikíl að ska ipa - Dagur í heimsókn hjá Konráð og Soffíu á lífsfylling eiíthvað sjálfur u Sólvöllum, Árskógsströnd Staðurinn er Arskógs- strönd, rétt um kaffi- leytið og það erfremur hvöss suðvestanátt. Subarubifreið er ekið út í vegarkantinn hjá húsi því er Sólvellir heitir og út stígur blaðamaður Dags. Úti- dyrahurðin er eitt stórt listaverk, gestkomandi gleyma örugglega oft að knýja dyra. Sól- vallahjónin eru heima við og bjóða Dags- manni til stofu. Konráð er umsvifamikill út- gerðarmaður í plássinu og rekur ásamt sonum sínum fiskverkun- ina Sólrúnu og gerir út tvo báta, annar er 30 tonn og hinn 72. Soff- ía er hagleikskona mikil, slípar steina, stundar postulínsmálun og býr til myndir úr mosa og ýms- um hlutum sem hún finnur úti í náttúrunni. Við komum okkur fyrir í stofunni og Konráð segir mér undan og ofan af lífshlaupi sínu. „Ég er fæddur í Kjarna í Arn- arneshreppi fyrir 83 árum. Pegar ég var tveggja ára fluttum við að Bragarholti og þar var ég til 25 ára aldurs. Þá kemur að trúlofun- arstandinu og ég stunda sjóinn að vetrinum en er við heyskap á sumrin. Ekki fannst mér trilluút- gerð burðug á Eyjafirði á þessum árum, stærstu bátarnir voru 12 tonn. Við giftum okkur árið 1927 og veturinn þar á eftir bjuggum við í torfkofa sem stóð hér rétt fyrir neðan og það þótti lúxus að þar sem sofið var var trégólf, annars staðar í húsinu var mold- argólf. Þetta léti fólk ekki bjóða sér nú til dags, en okkur leið vel, enda nýgift. Við vorum tveir sem giftum okkur um svipað leyti og rérum við saman á árabát. Það kom að því að okkur þótti vistin þarna úti á Ströndinni heldur daufleg og fluttum við hjónin til Akureyrar. Þar leigðum við okk- ur íbúð. Ég var til sjós, en hún í landi og þannig gekk í þrjú ár. Þá fluttumst við aftur út á Ár- skógsströndina, þetta var ekkert líf, ég var alltaf á sjónum og við sáumst varla. Við hófum búskap á Selá, bjuggum þar mágar líklega í ein fjögur, fimm ár, þá fórum við til Hjalteyrar, en þar var þá hafin síldarbræðsla. Við eltum pening- ana allt okkar líf. Ég vann í bræðslunni, ja líklega ein fimm ár. Þá lá leiðin aftur til Akureyrar þar sem við keyptum húsið núm- er 11 við Bjarmastíg. Mest allt lífið fór í uppbyggingu. Jæja, við vorum þrettán ár þarna í Bjarma- stígnum og líkaði okkur mun bet- ur þar en í fyrra sinnið. Framan af var ég til sjós, en tók þá að mér að pressa föt hjá Saumastofu Gefjunar sem var uppi á loftinu í gamla Kaupfélagshúsinu. Á þessu tímabili eignuðumst við þrjá stráka og þeim hálfleidd- ist. Og svo sem ekki bara þeim, okkur leiddist öllum. Mér fannst ég innilokaður, það á ekki við mig að vinna hjá öðrum, en þarna var ég með reglulegan vinnutíma og hafði svo ekkert að hugsa um þegar heim kom. Það varð þá úr að við fluttum aftur út á Árskógsströndina, það var árið 1953. Þá byggðum við þetta hús. Hugmyndin var að gera út, en það var ákaflega erfitt að fá lán á þessurn tíma, ég gekk á milli bankastjóranna og var dreginn á asnaeyrunum, fékk aldrei af- dráttarlaust nei. Einhverju sinni hitti ég Magnús frá Mel, en hann þekkti ég frá því í síldarbræðsl- unni á Hjalteyri. Ég fór að segja honum frá vandræðum mínum, að ég eigi eina trillu en langi mik- ið að stækka við mig en hvergi fái ég lán. Ég sagði honum jafnframt að ég geti ekki fylgt honum í pól- itík, því samvisku minnar vegna gæti ég ekki kosið Sjálfstæðis- flokkinn. Hann sagði að það væri nú allt í lagi. Skömmu seinna fékk ég bréf með póstinum þar sem sagði að mér hefði verið veitt lán. Sonur minn hafði verið á ver- tíð í Grindavík og fengið góðan hlut og því varð úr að við létum Nóa bátasmið smíða fyrir okkur bát, þetta var 12 tonna bátur og var hann upphafið að okkar útgerð. Þegar við komum hingað og byggðum þetta stóra hús og hóf- um hér útgerð spurði fólk hvort við værum að verða vitlaus. Það var allt á niðurieið þá, en síðan hefur þetta snúist til betri vegar. Fólk hefur það gott, en það er langur vinnudagur hjá því. Það hefði ekkert orðið úr þessu hjá mér ef strákarnir hefðu ekki ver- ið með mér í þessu, ég hef ekki verið að pjakka þetta einn allt lífið, konan hefur verið ansi seig. Það er manni mikiil styrkur. Syn- ir mínir, Sigurður og Gunnlaugur eru hvor með sinn bátinn. Ef börnin fara út í buskann verður ekkert úr framkvæmdum hjá þeim sem eftir eru.“ - Þú varst að byggja upp allt þitt líf, hver eru launin? „Það er afskaplega erfitt að vera að byggja upp allt lífið og enga fær maður aðstoðina hjá stjórnvöldum. Þau líta á okkur sem útkjálkamenn og við getum bara buslað áfram sjálfir. Það er aldrei hugsað út í það að við út- kjálkamennirnir sem stundum sjóinn færum þjóðarbúinu heil- miklar tekjur og hvar væru þessir menn staddir ef okkar nyti ekki við? Ef enginn vildi stunda sjóinn og verka fiskinn. Ég sé ekki eftir þessu lífsstarfi mínu, síður en svo, þó að stjórnvöld sýni því ekki skilning. Það er mikil lífs- fylling að skapa eitthvað sjálfur, mér hefur aldrei líkað almenni- lega að vera í vinnu hjá öðrum. Ekki það að ég vilji standa einn að mínu fyrirtæki, ég vil að fjöl- skyldan standi öll að því þá er ég ánægður. En það get ég sagt þér að ég sá enga peninga í öllu þessu basli, það var ekki fyrr en ég fékk ellistyrkinn minn að ég sá pen- inga.“ Meðan við drekkum kaffi spyr ég Soffíu hvernig það hafi komið til að hún fór að safna steinum og öðru slíku. „Bergþóra Eggertsdóttir bauð mér að koma á námskeið sem hún hélt og ég þáði það, ég sótti námskeið hjá henni í tvö ár. Síð- an leiddi eitt af öðru, ég fór á flosnámskeið og námskeið í postulínsmálun. Þetta hefur hlaðið utan á sig í gegnum árin.“ - Hvar leitarðu fanga? „Ég eignaðist bíl fyrir þremur árum og ég hef farið á honum út um allt land að leita mér að grjóti, ég hef mikið farið vestur á íand og einnig austur. Þetta er voða ósköp gaman, maður hefur þetta í hendi sinni þegar maður getur ferðast svona mikið.“ Soffía hefur lesið sér mikið til um steina og nefnir nöfn sem ég hef aldrei heyrt áður, auk þess sem hún þylur upp eiginleika hvers steins fyrir sig. Soffía er 79 ára gömul og lætur engan bilbug á sér finna, hún segist hafa byrjað á þessu fyrir 30 árum og alltaf dundað meira og minna við ein- hvers konar handavinnu. Fyrir nokkrum árum keypti hún í fé- lagi við aðra konu demantssög allmikla, en með henni sagar hún í sundur steina. „Jú, auðvitað er það hættulegt, það geta spýst á mann steinar og það er ekki mjög gott,“ segir hún er ég spyr hvort sögin sé ekki hættulegt verkfæri. „Ég veit ekkert skemmtilegra en að fara upp á fjöll og leita að steinum, það er alveg dýrlegt þegar maður finnur fágætan stein.“ Áður en ég kveð sýnir hún mér ýmsa muni sem hún hefur gert, myndir, lampa, slípaða steina og þannig mætti lengi telja. Það er ómögulegt að lýsa þessum mun- um í blaðaviðtali, [3að er gamli, góði sannleikurinn sem gildir. Sjón er sögu ríkari. Konráð vill sýna mér fiskverk- unarhúsið og við ökum niður að bryggju. Á leiðinni talar hann um skilningsleysi stjórnvalda í garð „útkjálkamannanna" sem stunda sjóinn og verka fiskinn. Við göngum í gegnum húsið, hvar unnið er við saltfisk. Hluti af hús- inu var leigður undir rækju- vinnslu, nú er hætt að vinna rækju á Árskógsströnd í bili og helmingur hússins auður. Þegar ég ek Konráði heim sýnir hann mér lítinn skúr niður við sjóinn. „Þarna byrjuðum við útgerðina," segir hann. Og ég ek aftur út í vegarkantinn í þetta sinn til að skila Konráði heim og þakka fyr- ir spjallið. - mþþ Soffia og Konráð við steinasafnið.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.