Dagur - 08.03.1985, Blaðsíða 13
8. mars 1985 - DAGUR - 13
Íslandsmeisíaramót
í frjálsum dansi
Kínversk hljómsveit
Fjórða íslandsmeistara-
keppnin í frjálsum dönsum er
á næsta leiti. Æskulýðsráð
Reykjavíkur stendur að
keppninni fjórða árið í röð. ís-
landsmeistarakeppnin hefur
mælst mjög vel fyrir og verður
keppt um titilinn „íslands-
meistari unglinga 1985“ og
fylgja vegleg verðlaun þeim
titli. Keppnisflokkar eru tveir:
Einstaklingsdans, hópdans
(hópur er minnst 3 einst.).
Allir íslenskir unglingar á
aldrinum 13-17 ára þ.e. fæddir
1968-1971 hafa rétt til þátt-
töku.
Laugardaginn 9. mars fer
forkeppni fram um land allt.
Alls verður keppt á sex
stöðum og þurfa þátttökutil-
kynningar að hafa borist í
Dynheima fyrir kl. 16.00 laug-
Kolbeinn Bjarnason flautu-
leikari heldur tónleika í sal
Tónlistarskólans á Akureyri
sunnudaginn 10. mars og hefj-
ast tónleikarnir kl. 17.
Kolbeinn Iauk burt-
fararprófi í flautuleik frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík
árið 1979, en síðan hefur hann
numið hjá Manúelu Wiesler,
hjá japanska flautuleikaranum
Kioshi Kasai, hjá Robert Dick
og Julius Baker í New Yofk,
og einnig í Bloomington hjá
Harvey Sollberger. Jafnframt
því að hafa verið við nám í
Toronto hjá hinum heims-
Hin sívinsæla og síbreytilega
hljómsveit Skriðjöklar tekur
fótskriðu á betri fætinum til
Siglufjarðar í kvöld. Par munu
„jöklarnir" kynda undir
stemmningunni á geysifjörug-
um dansleik á Hótel Höfn og
Skíðamót
íFjalIim
Þið ráðið hvort þið trúið því
eða ekki. Það verður haldið
skíðamót í Hlíðarfjalli um
helgina; Akureyrarmót í stór-
svigi. Á laugardaginn kl. 11
mæta 7, 8 og 9 ára keppendur
til leiks, en klukkan 12 hefst
keppni í karla- og kvenna-
flokkum og síðan reyna 15 og
16 ára unglingar getu sína. A
sunnudaginn fara 10 og 11 ára
keppendur í brautina kl. 11 og
kl. 12 hefst keppni 12,13 og 14
ára.
ardaginn 9. mars.
Úrslitakvöldið verður í
Tónabæ laugardaginn 16. mars
kl. 20.00 með miklu brambolti
og verða nýir Islandsmeistarar
krýndir úr hópi þeirra 10 hópa
og 10 einstaklinga sem komust
áfram úr forkeppnum.
Að öllum líkindum verður
sjónvarpað frá úrslitakvöldi
keppninnar.
Verðlaun fyrir úrslita-
keppnina sem fram fer í Tón-
abæ fyrir aldurinn 13-17 ára
eru sem hér segir. Einstakling-
ar: 1. verðlaun: Ferð til Rho-
dos með Samvinnuferðum-
Landsýn. 2. verðlaun: Fataút-
tekt. 3. verðlaun: Aðgöngu-
miði á Litlu hryllingsbúðina.
Hópdans: 1. verðlaun: Fataút-
tekt. 2. verðlaun: Aðgöngu-
miðar á Litlu hryllingsbúðina.
3. verðlaun: Óákveðið.
kunna flautuleikara Robert
Aitken.
Efnisskrá Kolbeins er mjög
sérstæð því á henni eru tón-
verk eftir kennara hans eða
tónverk sem hafa verið samin
sérstaklega fyrir þá. Nýlega
flutti hann sömu tónleika í
Reykjavík, sem voru mjög vel
sóttir og fengu Ijómandi undir-
tektir. Kolbeinn skýrir út tón-
verkin á tónleikunum þannig
að fólk fái betur notið þeirra.
Tónleikar þessir eru liður í
kynningu á íslenskri og er-
lendri tónlist á Tónlistarári
Evrópu.
er haft fyrir satt að færri muni
komast að en vilja.
Á laugardag verður svo hin
sívinsæla og síbreytilega
hljómsveit Flugmenn í H-100
og er takmarkið það að lyfta
fjörinu upp á efstu hæð.
Hljómsveitina Flugmenn skipa
Skriðjöklarnir en þess má geta
að þegar þeir leika í Innbæn-
um þá heitir hljómsveitin
Ljósin í Innbænum.
Eins og glögglega hefur
komið fram eru Skriðjöklar/
FIugmenn/Ljósin í Innbænum
svokölluð „skitz“-hljómsveit.
Þetta geðþekka átta manna
band hefur ekki getað komið
sér saman um nafn hljómsveit-
arinnar og til þess að leysa úr
þessum sálarflækjum verður
gestum í H-100 gefinn kostur
á að taka þátt í atkvæða-
greiðslu um nafn sveitarinnar.
Borin verða upp ein tíu nöfn
og auk þeirra sem að framan
greinir kemur: Sálmar frá Ak-
ureyri, sterklega til greina.
Akureyringum og nágrönnum
þeirra býðst einstakt tækifæri
að hlýða á 10 manna kínverska
hljómsveit í Sjallanum,
miðvikudagskvöldið 13. mars.
n.k. kl. 20.30. Hljómsveit
þessi er á heimsferð og er tví-
mælalaust í flokki bestu
hljómsveita Kínverja, og ber
heitið „Þjóðlega hljómsveit
kvikmyndaversins í Peking".
Hljóðfærin sem hún leikur á
Alltaf fylgir því viss spenn-
ingur að fara í leikhús og
gildir það ekki síður um
áhugaleikhús en um at-
vinnuleikhús. Ég var því í
senn forvitin og eftirvænt-
ingarfull á leið minni fram í
Freyvang sl. mánudags-
kvöld, en þar sýna um
þessar mundir Leikfélag
öngulsstaðahrepps og
Ungmennafélagið Árroð-
inn, gamanleikinn „Aldrei
er friður“. Eftirvænting lá
líka í loftinu þegar komið
var i Freyvang. Þar var
margt um manmnn, senni-
lega fleiri en aðstandendur
sýningarinnar hafa átt von
á, því leit stóð yfir að
stólum, til viðbótar þeint
sem með góðu móti rúm-
uðust í salnum (um rétt-
mæti þess, að selja ótak-
markað inn í húsið, þrátt
fyrir að ekki séu upphækk-
anir, verður ekki fjallað
hér). Og endirinn var sá,
að allir fengu sæti.
Og meðan ég sat þarna
og beiö þess að sýningin
hæfist, þá varð mér hugsað
til þess hvort gerðar væru
sanngjarnar kröfur til
áhugaleikarans. Það er
ekki fyrr en eftir fullan
vinnudag sem hann mætir
til starfa í leikhúsinu og á
þá eftir að skila hlutverki
sínu þar. En mikið skal til
mikils vinna og lætur harð-
snúinn hópur áhugaleikara
t Öngulsstaðahreppi ekkert
aftra sér. Sagði cinn að-
stoðarmanna leikhópsins
mcr að sýningar væru orðn-
ar 8 talsins og að um þús-
und manns hefði séð þær.
Fjölskyldufarsinn „Aldrei
et friður" er eftir Andrés
Indriðason og er hér færð-
ur upp undir stjórn Theo-
dórs Júltussonar. Theodór,
sem er fastráðinn leikari
hjá L.A. getur vel við
unað. Uppsetningin ber
þess merki að við hana hafi
vcrið lögð alúð en þó engu
ofgert. Hcildarmynd sýn-
ingarinnar er eðlileg og
smekklega látlaus.
Já sýningin er vel þess
virði að farið sé að sjá
hana, þó að efnið risti
kannski ekki til djúprar
umhugsunar. Þctta cr nú-
tímaleikur, gerist á heimili
eru hin fjölbreyttustu, bæði
strengja-, blásturs- og ásláttar-
hljóðfæri, en elsta hljóðfærið
sem leikið verður á er frá 9,-
10. öld.
Það er einstæður viðburður
að slík hljómsveit heimsæki
Akureyri, og vonandi ýmsum
forvitnilegt að kynnast hljóð-
færaleik frá svo fjarlægu en um
leið heillandi menningarsvæði.
ungra hjóna sem nýlega
eru fiutt í nýja íbúð. Og
eins og nafnið bendir til þá
er aldrei friður. Rennirí er
mikið, gestir og gangandi
koma við sögu og talsvert
kveður að yngri kynsióð-
inni á heimilinu. Texti
verksins er meinfyndinn og
kemst vel til skila þrátt fyr-
ir talsverðan hraða í sýn-
ingunni. Leikræn tjáninger
skemmtilega hæfileg og
hittir nær alltaf í mark.
Með hlutvcrk hjónanna
í leiknum fara Jóhann Jó-
hannsson og Ólöf Birna
Garðarsdóttir og eiga þau
bæði góðan leik. Jóhann
sýnir talsverð tilþrif í hlut-
verki hins þrautpínda hús-
bónda og tckst honum oft
snilldarlega upp. Ólöf
Birna, sem nú þreytir
frumraun sína á leiksviði,
stendur sig með miklunt
ágætum og tekst henni vel
að tjá geðsveiflur ör-
þreyttrar húsmóðurinnar.
Afinn og amman koma
líka talsvert við sögu, og
tekst Jóhönnu Valgeirs-
dóttur stórkostlega upp í
hlutverki ömmunnar og
einnig skilar Jónsteinn
Aðalstcinsson afanum með
miklum sóma.
Sveina Björk Jóhannes-
dóttir, Jóhann Tryggvi
Arnarson og Magnús Þór-
arinn Torlacíus standa sig
öll með mikilli prýði í hlut-
verkurn krakkanna, þó að
þau séu hér öll að stíga sín
fyrstu spor á leiklistar-
brautinni.
Hljómsveitin mun einnig leika
í grunnskólum bæjarins, og
vandað verður til kynninga og
útskýringa, bæði á tónlist og
hljóðfærum.
Það er Kínversk-íslenska
Menningarfélagið sem undir-
búið hefur komu hljómsveitar-
innar til íslands, en Tónlistar-
skólinn á Akureyri og grunn-
skólar bæjarins annast Akur-
eyrarför hljómsveitarinnar.
Fremur lítið kvcður að
prestinum sem er á ábyrgð
Leifs Guðmundssonar og
er reyndar erfitt að átta sig
á, hvaða ntann presturinn
hefur að geyma. Sama gild-
ir svo um prestsfrúna en
með hennar hlutverk fer
Anna Ringsted. Er ekki
nema gott eitt unt leik
önnu að segja, en um hitt
finnst mér mcga deila
hvort prestsfrúin 8Í því
ástandi sent hún er) eigi er-
indi að jafn virðulcgri at-
höfn scm skfrn ungbarns
er, og hefði prcsturinn átt
aö sjá sóma sinn í því að
skilja hana eftir heinta.
Með önnur hlutverk i
leiknum fara: Kristján Jón-
asson, Gunnar Kristjáns-
son, Stcfán Guðlaugsson
og Katrín Ragnarsdöttir,
og komast þau öll þokka-
lega frá sínu.
En fleiri þarf en leikar-
ana til að koma svona sýn-
ingu á fjalirnar. Ljósa-
menn, leikmyndasmiðir og
aðrir í rótarahlutverkum,
skila sínu verki með mikl-
um ágætum.
Þcgar á allt er litið finnst
mér það sem vel er gert í
þessari sýningu vega miklu
þyngra en hitt sem miður
fer. Vil ég því hvetja alla
sem eiga þcss kost að líta á
sýninguna I Freyvangi að
drífa sig. Það er þess virði.
Valgerður Haralds.
Síðustu sýningar á
„Aldrei ér friður" eru t
Freyvangi á föstudag, laug-
ardag og sunnudag.
Merkjasala
FramÉarimar
Góðir bæjarbúar!
Þá er komið að hinni árlegu
merkjasölu kvenfélagsins
„Framtíðin“. Eins og kunnugt
er starfar félagið að málefnum
aldraðra, hér í bæ, og er
merkjasalan stór liður í því
starfi og rennur ágóði hennar
í elliheimilissjóð.
Nú er verið að byggja við
Dvalarheimilið Hlíð og er
unnið markvisst að því að það
verði tilbúið seint á næsta ári
og vonandi tekst það. Þarna er
mikið og verðugt verkefni fyrir
félagið og munum við reyna
allt til þess að þetta takist.
Bæjarbúar, takið vel á móti
konunum, laugardaginn 9.
mars, því ykkar stuðningur er
allra hagur. Búum vel að öldr-
uðum.
Með fyrirfram þökk.
Kvenfélagið Framtíðin.
Vegkg
jmiáka-
hátíð
Fimleikaráð Akureyrar gengst
á morgun fyrir veglegri fim-
leikasýningu í (þróttahöllinni
og hefst hún kl. 14.30.
Á þessari sýningu koma
fram 340 börn og unglingar á
aldrinum 4-18 ára og er dag-
skráin hin veglegasta og mjög
fjölbreytt.
Starf Fimleikaráðs Akureyr-
ar hefur staðið með miklum
blóma í vetur, og fieiri hundr-
uð barna og unglinga æfa
af kappi.
Poodk-deild
áAkureyri
Á morgun, laugardaginn 9.
mars verður haldinn stofn-
fundur Akureyrardeildar í
Poodle-deild Hundaræktunar-
félags íslands. Fundurinn
verður haldinn í Furulundi
lOd. Þangað eru allir poodle-
hundaeigendur velkomnir, en
tilgangurinn með deildarstofn-
uninni er að koma á góðu sam-
starfi með poodle-aðdáend-
um, til að stuðla að betri rækt-
un þessa hundakyns.
Bílasýning
í BÍíifelli
Á morgun, laugardaginn 9.
mars, gengst Bláfell sf. fyrir
bílasýningu að Draupnisgötu
7a. Þar verða sýndar ýmsar
gerðir af Toyota bifreiðum,
m.a. Corolla 1300 DLX, Cor-
olla coupé 1600 GT, Corolla
1600 og fjórhjóladrifsbílarnir
Tercel og Hi- Lux. Sýningin
verður opin á morgun frá 13-
18 og á sunnudaginn frá 10-17.
ískappreiðar
ÍMs
Á morgun, laugardaginn 9.
mars verða ískappreiðar
íþróttadeildar Léttis haldnar
á Leirutjöminni, ef frost leyf-
ir. Keppt verður í 150 metra
nýliðaskeiði, 200 metra skeiði,
300 metra brokki og tölti ungl-
inga. Búast má við spennandi
keppni, því þarna reyna með
sér fótfráustu kostahross Ak-
ureyringa. Og óvíða er betra
að ná fram kostum gæðing-
anna en á rennisléttum ís. Þá
er bara að vona að ísinn verði
til staðar.
Flautukonsert
í Tónlistaskólanum
Flmmenn
leika í H-100
Aldrei er ftiður
- Sýningar í Freyvangi um helgina