Dagur - 08.03.1985, Blaðsíða 7
8. mars 1985- DAGUR-7
- Gísli Sigurgeirsson á þess-
um enda, er nafni minn Jónsson
ferðaskrifstofufrömuður á hin-
um endanum?
- Já, sæll nafni minn.
- Ég var að frétta, að þú vær-
ir aðaimaðurinn á bak við kút-
magakvöldið, sem haida á í
Sjallanum í kvöld. Er eitthvað
hæft í þessu?
- Já, það er nokkuð til í því,
ég er einn af þeim sem stend í
undirbúningi fyrir þetta kvöld á
vegum Lionsklúbbsins Hugins.
- Er þetta kvöld eingöngu
ætlað Ijónum?
- Nei, nei, síður en svo, það
eru allir velkomnir, hvort heldur
sem þeir eru Lionsmenn eða
ekki. Það er hins vegar algert
skilyrði að þeir séu karlmenn.
- Mega konurþá ekki koma?
- Nei, ekki á sjálfa skemmt-
unina. Hins vegar eru þær vel-
komnar á ballið sem hefst um
hálf tólf, enda reikna ég með að
þá verði flestir farnir að sakna
kvenna sinna.
- Petta kvöld er sem sé ekki
eingöngu ætlað fyrirþá sem hata
kvenfólk?
- Nei, nei, þær eru algerlega
ómissandi í tilverunni þessar
elskur, en það sakar ekki að
brydda upp á tilbreytingu af og
til. Þetta hafa konurnar gert sér
ljóst líka, því þær hafa haldið
sín krúttmagakvöld undanfarin
ár við miklar vinsældir.
- Ég hafði af þvt' spurnir, að
þið ætlið ykkur nú samt ekki að
vera kvenmannslausir, því von
sé á skreiðarneytanda frá Níger-
íu.
- Já, það mun vera rétt. En
ég hef engar hugmyndir um
hvaða kúnstir hún kemur til
með að fremja. Við verðum ein-
göngu með sjávarrétti á
borðum, milli 50 og 60 tegundir,
sem matreiðslumeistarar Sjall-
ans eru sérfræðingar í að mat-
reiða. Skreið verður þar ef til
vill meðal rétta og hugsanlega
kemur þessi skrejðarneytandi til
að prófa gæðirr Það er líka
hugsanlegt að hann hafi hug á
að prófa eitthvað nýtt. Það er
því gráupplagt fyrir sölumenn
sjávarafurða að mæta, því ekki
er ólíklegt að gera megi góða
sölusamninga við þennan
skreiðarneytanda.
- En skreiðarneytandinn er
kona, eða hvað?
- Jú, það er víst það eina sem
er ljóst í þessu máli.
- Og konan sú er ekki þekkt
fyrir kappklæðnað, eða hvað?
- Veistu það nafni, ég bara
veit það ekki, hef ekki kannað
það grar.nt. En þú getur bara
,pœr eru
ómsscmdi
þessar elskur
- Ciísli Jónsson á línunni
komið og gengið úr skugga um
þetta.
- Pið óttist ekki að eiginkon-
urnar haldi í eiginmennina
heima, þar sem hætt sé við því
að þeir haldi til Nígeríu. Slíkt
virðist ekki óalgengt, í það
minnsta minnist ég þess að hafa
einhvers staðar séð fyrirsögnina
„Skreið til Nígeríu".
- Nei, ég hef ekki trú á að
eiginkonurnar fari að blanda sér
í málið, enda er allt eins gott
fyrir þær að losna við karlana, ef
þeir eru á annað borð komnir
með slíkar tilhneigingar. En
fyrst þú getur um fyrirsögnina,
þá minnist ég þess að hafa í ein-
hverju blaði séð fyrirsögnina:
„Skreið til Nígeríu - fyrir 500
milljónir króna“, og skil ég svo
sem vel að maðurinn vildi fá
eitthvað fyrir ómakið.
- Já, já en þú hefur ekki tek-
ið eftir undirfyrirsögninni, því
ég man ekki betur en fyrirsögnin
væri í heild svona: „Skreið
til Nígeríu fyrir 500. milljónir
króna - var skilað heim aftur
vegna ólyktar. “
- Já, ha, ha, þá geta allir ver-
ið rólegir.
- En svo við víkjum nú að al-
varlegri málefnum nafni; get ég
fengið að skemmta þarna?
- Já, já, það er alveg
sjálfsagt. Að vísu koma flestir á
staðinn til að skemmta sér
sjálfir, en það er öllum heimilt
að koma með sitt framlag og
margir Lionsmenn hafa notfært
sér þennan rétt á undanförnum
árum. Þú mátt þess vegna troða
upp og syngja nokkur létt lög, ef
þú vilt.
- Ætli ég sleppi ykkur ekki
við það, en hvað verður til
skemmtunar?
- Svavar Gests, fjölumdæm-
isstjóri okkar Lionsmanna,
verður veislustjóri og ég er viss
um að hann verður með léttan
húmor að venju. Auk þess mun
hann stjórna málverkauppboði,
þar sem mönnum gefst kostur á
að kaupa verk eftir þekkta akur-
eyrska listamenn. Heiðursgestur
okkar verður Halldór Blöndal,
alþingismaður, og hann ætlar að
segja nokkur vel valin orð í létt-
um dúr og hann hefur lofað því
að minnast ekki á pólitík. Síðast
en ekki síst vil ég nefna Jóhann
Má Jóhannsson, sem syngur
nokkur lög við undirleik Ingi-
mars Eydal.
- Petta skemmtikvöld er
jafnframt fjáröflunarleið ykkar
Lionsmanna, hvað ætlið þið að
gera við afraksturinn ?
- Okkar aðalverkefni núna er
að styðja við framkvæmdir við
orlofsbúðir fyrir þroskahefta,
sem framkvæmdir eru hafnar
við að Botni í Eyjafirði. Þangað
fer afraksturinn af kútmaga-
kvöldinu.
- Svo við vendum okkar
kvæði í kross nafni, hvernig
gengur í ferðabransanum?
- Það gengur bara vel; búið
að vera brjálað að gera að
undanförnu.
- Hvert fer fólk ?
- Nú fer fólk í hópum í helg-
arferðir til Reykjavíkur, það
hefur aldrei verið eins mikil
ásókn í þær og í vetur.
- Kemur þá enginn hingað?
- Jú, jú, fólk kemur hingað í
helgarferðir í flokkum, þannig
að búið er að troða í hvert hótel-
rúm margar helgar fram í
tímann. Og það eru öll rúm
nýtt, á hótelum sem gistiheimil-
um. Það eru meira að segja
dæmi þess að við höfum orðið
að snúa hópurn frá, vegna þess
að gistirými var ekki fyrir hendi.
- Ma' ekki búast við aukinni
ásókn þegar söngleikurinn um
Edith Piaf kemst í fullan gang?
- Jú, ég vona það svo sannar-
lega, því þetta skapar verulegar
tekjur fyrir bæjarlífið. Hótel-
þröskuldurinn er samt enn í veg-
inum, þó það standi til bóta. En
því miður finnst mér úrbótum í
þeim efnum miða allt of hægt.
- Við leysum það vandamál
ckki hér, en þakka þér fyrir
spjallið nafni. Skemmtu þér vel
í kvöld.
- Þakka þér sömuleiðis.
- GS
c
Bílasala
Norðurlands
Gránufélagsgötu 45.
Sími 96-21213.
Okkur vantar tilfinnanlega
allar gerðir bíla á söluskrá.
Góð inniaðstaða - Ekkert innigjald.
Verið velkomin til okkar að Gránuféiagsgötu 45.
Símann muna allir.
Aðalfundur
Flugbjörgunarsveitarinnar Akureyri
verður haldinn laugardaginn 9. mars kl 14.00
í htisi félagsins.
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
býður yður velkomin í heitan mat,
hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Nýbakaðar vöfflur m/rjóma
í síðdegiskaffinu alla daga.
Hótel KEA
Dansleikur
laugardagskvöld 9. mars 1985.
Hljómsveit Finns Eydal
ásamt Helenu og Alla.
Fullbókað í mat.
Borðapantanir í síma 22200.
Erum þegar farin að taka á móti
pöntunum á mat í fermingarveisiur.
Allar nánari upplýsingar í síma 22200.
Hótel KEA. Verið velkomin.
HÓTEL KEA <^> AKUREYRI
IVín um
helgina
Alltaf eitthvað nýtt
m
Þú átt erindi
og vertu
velkomin(n).
I Blómaskáli
við Hrafnagil.