Dagur - 17.04.1985, Blaðsíða 2

Dagur - 17.04.1985, Blaðsíða 2
, Jakmarkaður skilningur á mikilvægi kennarastarfsins" segir Kristín Aðalsteinsdóttir, sérkennslufulitrúi Kristín Aðalsteinsdóttir: Greinilegt að sérkennslubörnum hefur farið fram félagslega með því að taka þátt í almennu skólastarfi. Mynd: KGA 2 - DAGUR - 17. apríl 1985 Horftr þú mikið á sjónvarp? Einar Guðmann: Nei, ég er í þannig vinnu að ég get iítið horft á sjónvarp, það er helst um helgar sem ég horfi. Arnald Reykdal: Ég horfi sáralítið á sjónvarp, en ekki vildi ég samt vera án þess. Rögnvaldur Rögnvaldsson: Ég horfi á fréttir og veður alla daga vikunnar. Umræðuþætti horfi ég á svo og Gluggann og þættina hans Omars. Það er misjafnt hvort ég horfi á bíó- myndir og ég er lítið hrifinn af vestrum. Ásta Júlía Theodórsdóttir: Já, dálítið, Derrik og svoleiðis þætti. Katrín Hermannsdóttir: Nei, aldrei, eða svo að segja aldrei. „Ég gerði könnun á því hver væri þörfin fyrir stuðnings- kennslu hér á svæðinu og ár- angurinn af því er sá að í vetur taka þrír ólíkir skólar, Lunda> skóli og barnaskólarnir á Grenivík og að Laugalandi í Öngulsstaðahreppi, þátt í nor- rænu þróunarverkefni. Verk- efni þetta beinist að því að auka samstarf á milli kennara og auka fræðslu og fyrirbyggj- andi starf í sambandi við lestr- arkennslu,“ sagði Kristín Aðalsteinsdóttir sérkennslu- fulltrúi á Norðurlandi eystra en hún ætlar í dag að tala við okkur um sérkennslu og ýmis mál önnur er varða kennara- stéttina. Fyrst fáum við að vita meira um norræna þróunar- verkefnið. „Það eru um 20 manns sem taka þátt í þessu verkefni og ætiunin er að með þessu aukist samstarf á milli bekkjarkennara, stuðn- ingskennara og stjórnar viðkom- andi skóla. Þetta fer þannig fram að haldnir eru reglulegir fundir þar sem fjallað er um skipulag kennslunnar, einstaka nemendur og einnig eru þessir fundir oft nýttir sem fræðslufundir." - Kennarar hafa mjög verið til umræðu í vetur og maður hefur á tilfinningunni að fólki finnist þeir kröfuharðir og jafnvel séu menn hættir að bera virðingu fyr- ir stéttinni, er eitthvað til í þessu? „Ég veit það nú ekki, en það er samt ljóst að virðing fyrir kennarastéttinni hefur dalað mjög. Abyrgð kennara er lítið metin sem sést t.d. á launum þeirra. Ég tel að kennarar verði á sjálfsgagnrýninn hátt að meta hvers vegna málin hafa þróast svona. Ég held að þeir hafi van- rækt að skilgreina faglega stöðu sína, en skóli þarf að byggja á vísindalegum vinnubrögðum, en ekki brjóstvitinu einu saman. Það er merkilegt hversu litlu fé hefur verið varið til rannsókna á skólastarfi. í þessu sambandi má einnig nefna að hingað til hefur hver sem er getað gengið inn í Oft hef ég orðið hissa, en þó lík- lega aldrei eins og þegar ég frétti hver hefði hlotið sæmdarheitið „íþróttamaður Akureyrar“ 1984. Margir voru kallaðir en aðeins einn útvalinn, Halldór Áskels- son, hinn kunni knattspyrnumað- ur úr Þór. Enginn getur borið á móti því að Halldór er knatt- spyrnumaður góður og átti marga mjög góða leiki með félagi sínu og landsliði íslands, 21 árs og yngri. En það sem mér finnst skrýtið starf kennara, án þess að hafa til þess tilskilin réttindi eða mikla lífsreynslu." - Ef við víkjum aðeins að byrjendakennslu, það hafa mikl- ar breytingar átt sér stað í þeim málum. „Já, mjög miklar. Frá því ég byrjaði að kenna fyrir 20 árum hefur mér fundist skilningur mjög hafa aukist á mikilvægi byrjendakennslu. Byrjenda- kennsla er mikilvægasta kennsla sem fram fer í öllum skólum. Þar fer fram mikið uppeldisstarf og mér finnst aukinn skilningur á því að þeirri kennslu þurfi að sinna kennarar sem hafa féttindi til starfsins. Ég man þá tíð, að hver sem er var settur til að kenna yngstu börnunum og oft voru þeir kennarar sem af ein- hverjum ástæðum voru taldir lak- astir látnir í kennslu yngstu barn- anna. Núna er markvisst unnið við kjör þetta er það að Halldór hefur engin verðlaun hlotið með félagi sínu, ekki einu sinni orðið Akureyrarmeistari. Einnig skýtur það skökku við að Halldór var ekki valinn „Knattspyrnumaður Akureyrar" heldur Erlingur Kristjánsson úr KA. Hefði ekki verið eðlilegast, fyrst verið var að velja knatt- spyrnumann sem „íþróttamann Ákureyrar“, að kjósa þann sem valinn var „Knattspyrnumaður Akureyrar“? að því að byggja byrjenda- kennslu upp og ég tel í dag að hún sé vönduð, þannig á hún líka að vera. Foreldrar og kennarar verða að gera sér grein fyrir því að hagsmunir þeirra fara saman í þessu og það er mikilvægt að samstarf þeirra sé náið og byggt á skilningi beggja aðila.“ - Sem sérkennslufulltrúi, hef- ur þú mikil afskipti af málefnum þroskaheftra barna. Hafa ekki orðið miklar breytingar á kennsluháttum hvað þau varðar? „Jú, það hafa miklar breyting- ar orðið í sérkennslunni. Áður fyrr var þeim öllum safnað saman í einn hóp í einn skóla, en nú sinna þeirra heimaskólar í aukn- um mæli sérkennslu þannig að börn sem á henni þurfa að halda eru nú með í almennum blönduð- um bekkjum. Sérkennslubörn í Lundarskóla hafa í 2 ár gengið inn í almenna bekki með góðum ár- íþróttamenn sem orðið hafa margfaldir Íslandsmeistarar, sett fjölda íslandsmeta og jafnvel Norðurlandamet, virtust ekki eiga upp á pallborðið hjá þeim sem kusu. Þessir íþróttamenn eru t.d. Kári Elíson og Nanna Leifs- dóttir. Þykir mér furðu sæta hvernig hægt er að líta fram hjá afrekum þeirra. Spurningin er, er einhver „íþróttapólitík“ í spilinu? Þeir sem ráða kjöri, eru íþrótta- fréttamenn á Akureyri og ein- angri. Það er greiniíegt hvað sérkennslubörnum hefur farið fram félagslega eftir að hafa tekið þátt í almennu skólastarfi og eins er um hin svokölluðu heilbrigðu börn. Með því að umgangast börn sem eiga erfiðara en þau sjálf öðlast þaú aukið umburðar- lyndi og meiri vjðsýni.“ - Taka börn sem þurfa á sér- kennslu að halda miklum fram- förum við þessar breytingar á kennsluháttum? „Ég get nefnt ótal dæmi um framför og góðan árangur. í Lundarskóla þá býst ég við að af 14 sérkennslubörnum í ár, þurfi 3-4 þeirra ekki á sérkennslu að halda næsta vetur. Ég kem þarna annað slagið og sé greinilega framför hjá flesíum þessara nem- enda. Það fer ekki hjá því að sú hugsun læðist að manni að byrja hefði átt á þessu kennslufyrir- komulagi mikið fyrr, þ.e. að kenna sérkennslubörnum við hlið annarra. Það er alveg ótrúlegt hvað þeim fer fram þegar komið er fram við þau eins og annað fólk, en það hefur brunnið við að það hafi ekki verið gert í gegnum árin. Oft hefur verið litið svo á að þau væru annars flokks þjóð- félagsþegnar. Markmiðið með sérkennslunni er að gera þessa nemendur að sjálfstæðum ein- staklingum." - Að lokum. Er það skemmti- legt starf að vera sérkennslufull- trúi? „Það er ákaflega skemmtileg lífsreynsla að ferðast á milli skóla, en starf mitt er fólgið í því að aka á milli skóla á Norður- landi eystra og fylgjast með og hafa eftirlit með sér- og stuðn- ingskennslu. Það er virkilega gaman að kynnast öllum þessum kennurum og sjá hve vel kennar- ar leysa sitt starf af hendi. Hins vegar fer ekki hjá því þegar mað- ur sér hve mikið og gott mann- ræktarstarf er unnið sem skiptir þjóðina svo miklu máli því verið er að ala upp nýja kynslóð, að manni sárni að heyra hversu tak- markaður skilningur er á mikil- vægi kennarastarfsins." -mþþ hver hluti stjórnar ÍBA. (Þess skal geta til gamans að flestir ef ekki allir íþróttafréttamenn á Akureyri eru félagsbundnir Þórs- arar.) Skyldi vera eitthvert samhengi þar á milli? Væri ekki réttast að breyta reglunum og t.d. fá ein- hverja hlutlausa dómara (sem ef- laust eru vandfundnir) til að velja úr hópi íþróttamanna sem hvert félag um sig útnefnir? Með þökk fyrir birtinguna. Sigurður Olafsson 7890-5484 Kjör „íþróttamanns Akureyrar“ 1984: Hvemig var hægt að líta framhjá Kára og Nönnu?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.