Dagur - 17.04.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 17.04.1985, Blaðsíða 12
Iðnráðgjafarnir hjá FSN: Starfsemin verður stokkuð upp! - segir Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri „Á síðasta fjórðungsþingi sem haldið var á Reykjum í Hrúta- firði í ágústlok var mörkuð stefna í iðnráðgjafamálum Fjórðungssambandsins. Ég mælti fastlega með því að ann- ar iðnráðgjafí sambandsins yrði staðsettur á Norðurlandi vestanverðu, bæði vegna þess að lög um iðnráðgjafa gera ráð fyrir einum í hverju kjördæmi og einnig vegna þess að með þeim hætti væri iðnráðgjafí nær vettvangi og því hægt að draga úr ferðalögum, sem eru mikill tímaþjófur í starfí iðn- ráðgjafanna,“ sagði Áskell Einarsson, framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norð- lendinga í viðtali við Dag. „Allar líkur eru nú til þess að iðnráðgjafi hefji störf á Blöndu- ósi í júlímánuði nk.( en því mið- ur hefur enn ekki fengist loforð um launaframlag frá ríkinu til að annast iðnráðgjöf á Norðurlandi enn sem komið er. Má vera að þarna gæti áhrifa þeirra manna, sem vilja hafa báða iðnráðgjaf- ana á sama stað, og þeirra sem eiga þá draumsýn að koma upp útibúi frá Iðntæknistofnun íslands. Petta eru tálsýnir. Með breytingu á lögum um iðnráðgjöf sem afgreidd verður á þessu þingi ætti ekkert að vera til fyrirstöðu launaframlagi frá ríkinu,“ sagði Áskell ennfremur. „Á síðasta fjórðungsráðsfundi var, í samræmi við samþykktir síðasta fjórðungsþings, skipuð þriggja manna nefnd til að gera tillögur um framtíðarskipan iðn- ráðgjafastarfseminnar og skal nefndin hafa í því efni samráð við iðnþróunarfélögin og iðnaðar- ráðuneytið. Störf þessarar nefnd- Umferðaróhöpp: Hjálpsemin er hættule ,Þetta er vítavert athugunar- athugunar leysi og getur haft í för með sér slæmar afíeiðingar. Ég vil hvetja bæjarbúa til að gera þetta ekki undir nokkrum kringumstæðum,“ sagði Gísli Lórenzson varaslökkviliðs- stjóri, en hann var á vakt s.l. sunnudag er alvarlegt umferð- aróhapp varð á Drottningar- braut þar sem 5 slösuðust, en ökumaður er fyrstur kom á slysstað tók 3 af hinum slösuðu og flutti á einkabifreið á sjúkrahús. „Fólk sem kemur á slysstað og vill hjálpa gerir meiri greiða með því að bægja forvitnu fólki í burtu, heldur en að flytja hina slösuðu á sjúkrahús, afleiðingar af slíku geta orðið enn meiri Frá slysstað á Drottningarbrautinni. Mynd: KGA slösun en þegar er orðin. Ef fólk er brotið eða skaddað á baki, þá þarf það sérstaka meðhöndlun og á þess vegna að flytjast í sjúkra- bílum af slysstað,“ sagði Gísli Lórenzson. - mþþ ar munu að sjálfsögðu byggjast á endurskoðun laga um iðnráðgjöf. Ljóst er að koma verður í veg fyrir tvíverknað í iðnráðgjöf, eins og nú hefur átt sér stað á milli núverandi iðnráðgjafa og Iðn- þróunarfélags Eyjafjarðar, þann- ig að samstarf verði tekið upp á milli iðnþróunarfélaga og iðnráð- gjafa í stað þess sundurlyndis, sem örlað hefur á. Uppsögn Friðfinns K. Daníels- sonar í starfi iðnráðgjafa gerir þessa endurskoðun tímabæra og jafnvel mögulega fyrr en ella,“ sagði Áskell Einarsson. Hann sagðist ekki telja þá hug- mynd fjarri að á vegum Fjórð- ungssambands Norðlendinga störfuðu þrír iðnráðgjafar, einn á Blönduósi, annar á Ákureyri og sá þriðji á Húsavík. Þessir menn störfuðu meira og minna saman og gætu í samráði við Iðnþróun- arfélag Eyjafjarðar og önnur iðn- þróunarfélög, Iðnaðarráðuneytið og norðlenska iðnaðaraðila stofnað iðnaðarmiðstöð. „Alit þetta starf þarf að athuga nákvæmlega. Mér kemur það ekki á óvart að með þessum hætti fengist til viðbótar launaframlag þriðja iðnráðgjafans og annar op- inber stuðningur við þessa starf- semi. Varðandi viðtalið „Á línunni" í Helgar-Degi við Friðfinn K. Daníelsson vil ég taka fram að ég hef ekki reynt hann að þeim vinnubrögðum sem fram koma í ummælum hans. Hér hlýtur því að vera blandað saman málum. Ég legg það ekki í vana minn að ræða við eða um starfsmenn mína í blöðum, en til þess að upplýsa lesendur blaðsins get ég getið þess að Friðfinnur hefur gert atvinnuþróunarnefnd og fjórðungsráði grein fyrir sínum sjónarmiðum og ekki talið sig fá þar stuðning við sín sjónarmið. Það sem snýr að mér sem fram- kvæmdastjóra er að semja við hann um launakjör. Um þau efni tókust ekki sættir til frambúðar. Þess skal getið að iðnráðgjafar njóta launakjara stéttarfélags verkfræðinga,“ sagði Áskell Ein- arsson að endingu. Þessi danski varðbátur liggur nú við „Sigöldu“. - Um eríndagjörðina vitum við ekki, en vísast er okkur engin hætta búin af nærveru hins konunglega (eða drottningarlega) danska hers. Mynd: KGA Tilboð Stefnis 74% af áætlun Tvö tilboð bárust í jarðvegs- skipti við annan áfanga Síðuskóla. Ákveðið var á fundi bæjarráðs að ganga að lægra tilboðinu, sem var frá Stefni sf. Tilboð Stefnis sf. hljóðaði upp á 1.428.750 kr. Nam það 74% af kostnaðaráætlun hönnuða sem var upp á 1.930.500 kr. Hitt tilboðið sem barst var frá Norðurverki hf. og hljóðaði upp á 1.671.100, eða 86,6% af kostnaðaráætl- un. Eining: Botaþegum fækkar „Það voru 47 Einingarfélagar sem fengu atvinnuleysisbætur í síðasta mánuði og það er mjög lítið. Ef við miðum við sama tíma á síðasta ári þá voru þeir 130. Hins vegar hafa þeir verið færri sem fengið hafa bætur og það var í september og október í fyrra, en þá fengu menn vinnu á sláturhúsinu,“ sagði Björn Snæbjörnsson hjá Einingu í samtali við Dag. Ástæðurnar fyrir því að svo fáir Einingarfélagar hafi fengið atvinnuleysisbætur nú, taldi Björn vera þær að margir Eining- arfélagar eru fluttir suður á land. Alls hafa 379 nýir Einingarfélag- ar komið á skrá síðan um ára- mót, en á öllu árinu í fyrra voru nýir félagar 389. - mþþ - Hún virðist ætla að geispa golunni á föstudag, var okk- ur tjáð af veðurfræðingi á Veðurstofunni í morgun er spurt var hvort ekki sæi fyrir endann á bölv ... norðanátt- inni. Þangað til verður norðan- og norðvestanátt, kaldi og éljagangur sérstaklega á annesjum. Sem sagt svipað og verið hefur. # Að vera ... Er meirihluti starfandi innan bæjarstjórnarinnar á Siglu- firði eða ekki? Þetta er spurn- ing sem Siglfirðingar velta nú fyrir sér, ekki síst emb- ættismenn bæjaríns sem háðir eru þvi hvernig vindar blása hverju sinni. Og nú er útlit fyrir misvinda. Eftir síð- ustu kosningar mynduðu framsóknarmenn, Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag meirihluta en sjálfstæðis- menn létu í minni pokann. Deilur um veitustjóra 1983 urðu þess valdandi að fram- sóknarmenn mættu ekki á melrihlutaráðsfundi en þeir fundir lognuðust síðan út af. Sfðan þá hafa bæjarfulltrúar afgreitt mál í bæjarstjórn og nefndum án teljandi erfið- leika, þar til nú að alþýðu- flokksmaður gengur í sæng með Sjálfstæðisflokki og leggur fram með þeim fjár- hagsáætlun. # ... eða vera ekki Þetta hefði svo sem verið allt í lagi ef menn hefðu verið jafn sammála um fjármálin og í fyrra. En svo er ekki og fram- sóknarmenn hafa sett þrjú mál á oddinn sem þeir vilja fá breytingar á. Ef ekki þá líta þeir svo á að meirihlutinn á Siglufirði sé úr sögunni. Al- þýðuflokksmaðurinn og al- þýðubandalagsmaðurinn taka ekki undir þessa skil- greiningu með Framsókn. Þeir segja að enginn meiri- hluti hafi verið á Siglufirði síðan haustið 1983 og því sé þetta „stormur í vatnsglasi". Bent er einnig á að allir hafi starfað með Sjálfstæðisflokki að meira eða minna leyti og því sé ekkert athugavert við að alþýðuflokksmaðurinn af- greiði eins og eina fjárhags- áætlun með þeim. Framsókn- armenn segja það rangt að þelr hafi ekkl mætt á meiri- hlutaráðsfundi. Það hafl eng- ir fundir verið haldnir til að mæta á og eins hljóti meiri- hlutinn að vera fyrir hendi, þar sem honum hafi aldrei formlega verið slitið. # Alræði flokkanna Eins og sjá má er þetta mál ekki einfalt. Alræði flokkanna hefur verið við lýði síðan 1983 en nú er að sjá hvað gerist við afgreiðslu fjárhags- áætlunar. Breytingatillögur á að vera búið að leggja fram nk. mánudag og afgreiðslan verður viku síðar. Þá kemur ( Ijós hvort framsóknarmenn fara úr þv( meirihlutasam- starfi sem þeir telja að enn standi og ef það gerist þá er spurningin sú, hvort fram- sóknarmenn verða ( minni- hluta með Sjálfstæðisflokkí eða ekki.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.