Dagur


Dagur - 17.04.1985, Qupperneq 7

Dagur - 17.04.1985, Qupperneq 7
17. apríl 1985 - DAGUR - 7 Vegagerðin um Vaðlareit gengur samkvæmt áætlun: Mynd: KGA iir okkur ekki á hausinn Blöndal sem er verkfræðingur verktakans við vegagerðina Hörður Blöndal á vinnustað. „Þetta hefur gengið vel hjá okkur fram til þessa, þannig að við stöndum áætlun og vel það. Þess vegna er ég bjart- sýnn á að dæmið gangi upp og ég er viss um að verkið setur okkur ekki á hausinn,“ sagði Hörður Blöndal, verkfræð- ingur hjá Samtaki hf., sem sér um vegarlagninguna um Vaðlareit, í samtali við Dag. Framkvæmdir við vegarlagn- inguna um Vaðlareit, frá Hall- landi suður og niður á leirurnar, þar sem fyrsti áfanginn af Leiru- veginum bíður tilbúinn, hófust 1. mars. „Við höfum verið heppnir með veður og þetta hefur gengið framar öllum vonum,“ sagði Hörður. „Við erum búnir að gera ökufært um allt vegarstæðið, þannig að við getum unnið hvar sem er, eftir því sem hentar hverju sinni. Þannig getur orðið óvinnufært vegna bleytu á einum stað, en þá getum við bara fært okkur annað.“ - Nú var ykkar tilboð í verkið ekki nema 47% af kostnaðaráætl- un Vegagerðarinnar; hvernig stenst það? „Við erum með mjög stórar vinnuvélar; eins og er höfum við hér jarðýtu, sem er sú stærsta norðan heiða, hún vegur um 43 tonn, og með henni er 43ja tonna skurðgrafa. Þar að auki erum við með tvo stóra vörubíla og annar þeirra er með drif á öllum hjólum. Þar að auki erum við með mjög verkvana vélamenn, sem kunna vel til verka og að þessu samanlögðu vonumst við til að geta unnið þetta verk á hag- kvæmari hátt heldur en Vega- gerðin reiknar með í sinni áætl- un. Þar er t.d. reiknað með mun minni tækjum heldur en við höfum yfir að ráða.“ - Hvað liggur næst fyrir hjá ykkur núna? „Við erum að vinna niður klöpp hérna við norðurendann og einnig liggur fyrir að gera ræsi syðst í vegarstæðinu." - Þið reiknuðuð með að geta unnið klappirnar niður með „rippernum" á ýtunni, en þar var reiknað með kostnaðarsömum sprengingum í áætluninni. Hefur þetta gengið eftir eins og þið reiknuðuð með? „Klappirnar hér eru bæði seig- ar og sterkar, eins og gengur og gerist á íslandi. Þó held ég að þær séu heldur harðari en við reikn- uðum með, þannig að við kom- umst ekki hjá sprengingum hér nyrst í vegarstæðinu, þar sem við erum núna. Að vísu reikna ég með að við gætum mjatlað þetta niður, en það tekur bara of lang- an tíma, þannig að það svarar ekki kostnaði." - Hvað er vandasamast við þessa vegarlagningu? „Ætli það sé ekki skógurinn sem gerir þessa vegarlagningu hvað erfiðasta. Við megum ekki skemma landið utan vegarstæðis- ins; við þurfum til dæmis að keyra öllu ónýtu fyllingarefni í burtu og við verðum að passa upp á að setja ekki af stað grjót- hrun eða skriður niður brekkurn- ar, til að skemma ekki trén. Þetta er erfitt í svona miklum halla, en hefur held ég tekist að mestu leyti, í það minnsta hafa skóg- ræktarmenn ekki skammað okk- ur ennþá. Enda erum við trjá- elskandi menn.“ - Nú eru hér kortlagðar huldufólksbyggðir; hafið þið orð- ið varir við að það ágæta fólk sé að amast við ykkur? „Nei, við höfum ekki orðið varir við neitt slíkt, enda eru tæk- in okkar í góðu lagi og þau hafa gengið án óeðlilegra bilana. Þar að auki held ég að huldufólkið sé skynsamt, þannig að það hefur notað tímann til að flytja sig bú- ferlum." - Þið eigið að vera búnir með ykkar þátt verksins fyrir 1. októ- ber. Stendur það? „Já, og ég reikna með að við verðum búnir með meginþætti verksins nokkru fyrr. Það er hins vegar spurning um frágang og snyrtingu, en þeir verkþættir eru háðir veðurfari.“ - Skilið þið veginum ökufær- um? „Hann verður ökufær já, en ekki fullbúinn. Við sjáum um undirbygginguna, en þegar okkar verki lýkur vantar slitlagið. En þar sem við vinnum þetta verk fyrir innan við hálfvirði, þá spar- ast peningar, sem hugsanlega verða notaðir til að setja bundið slitlag á veginn fyrir haustið, að því mér skilst. Þá verður hægt að aka þennan veg strax, þó Leiru- vegurinn verði ekki kominn í samband,“ sagði Hörður Blöndal í lok samtalsins. Samkvæmt óstaðfestum heim- ildum Dags, eru ekki allir á eitt sáttir um hvað á að gera við pen- ingana sem spöruðust með út- boðinu, en eru samt sem áður til framkvæmda við þessa vegar- gerð. Sumir vilja nota þá til að ljúka þessum áfanga algerlega og þá með bundnu slitlagi. Aðrir vilja halda áfram uppbyggingu, annað hvort til suðurs frá fyrsta áfanga Leiruvegarins, sem byggður var í fyrra, þá suður að vegamótunum hjá Knarrarbergi, ellegar þá við veginn frá Sval- barðseyri norður í áttina til Vík- urskarðs. Um þetta er þjarkað þessa dagana, en málið verður að jíkindum útkljáð á fundi alþing- ismanna kjördæmisins með vega- gerðarmönnum á næstunni. -GS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.