Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 1
68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 8. maí 1985 50. tölublað Eimskipafélaghúsið verður rifið: Hæstiréttur gaf 12 vikna frest Nú virðist fokið í öll skjól fyrir hinu svokallaða Eimskipafé- lagshúsi á horni Skipagötu og Kaupvangsstrætis á Akureyri. Húsið verður fjarlægt eigi síð- ar en í ágústmánuði nk. ef marka má dóm Hæstaréttar sem kveðinn var upp fyrir skömmu. Eimskipafélagshúsið hefur lengi staðið skipulagi á Akureyri fyrir þrifum. Samkvæmt dómi undirréttar frá 7. desember 1982 bar eigandanum, Jónasi H. Karpað um kartöflur íslcndingar hafa löngum þótt vel að sér í ættfræði. Þessi ætt- fræðikunnátta gæti komið í góðar þarfír nú þar sem hart er deilt um ætt og uppruna á Ak- ureyri. Ekki manna, heldur bökunarkartaflna sem verið hafa á boðstólum í Hrísalundi. Þetta skondna mál kom upp fyrir skömmu er tveir gildir bændur úr Eyjafirði fengu af því njósn að vafi léki á ætterni um- ræddra kartaflna. Bændurnir stormuðu upp í Hrísalund, fengu sér kartöflur og sendu í rannsókn suður til Reykjavíkur. Þar hafa bökunarkartöflurnar dvalið í besta yfirlæti á rannsóknastofum en ekki hefur þó verið hægt að skera úr um ætternið. Ljóst er að þær eru af erlendum stofni en sá galli er á gjöf Njarðar að þær eru einnig ræktaðar hér á landi. Nýj- ustu fréttir herma hins vegar að Enginn eldur Slökkviliðið á Akureyri var í gær kallað að verslunarmið- stöðinni Sunnuhlíð. Þar hafði viðvörunarkerfi farið í gang, en enginn eldur reyndist laus. Mun það hafa komið oft fyrir upp á síðkastið að eldvarna- kerfið þar færi í gang án þess að nokkuð óvenjulegt væri á ferð- inni. Annars hefur verið rólegt hjá slökkviliðinu að undanförnu, lítið um útköll og er það vel. beðið sé eftir því að kartöflurnar spíri en gerist það þá bendir það til þess að þær séu aldar upp í ís- lenskri mold, því þær útlendu eru sagðar spíruvarðar. Samkvæmt upplýsingum versl- unarstjórans í Hrísalundi eru bökunarkartöflurnar fengnar venjulega leið úr kartöflu- geymslu KEA og kom þessi síð- asta sending í verslunina í tveim 25 kg pokum í febrúarmánuði sl. Hefur verslunarstjórinn kvittanir þar að lútandi. - ESE Traustasyni fyrir hönd dánarbús Guðnýjar Jakobsdóttur að fjar- lægja húsið bótalaust innan 15 daga frá birtingu þess dóms. Mál- inu var vísað til Hæstaréttar en þar var kveðinn upp dómur 23. apríl sl. þar sem dómur undirrétt- ar var staðfestur að öllu leyti nema fresturinn til að nema húsið brott af lóðinni var lengdur upp í 12 vikur frá og með birtingu dómsins. - Það á að vera búið að birta viðkomandi þennan hæstaréttar- dóm þannig að húsið á að vera farið eigi síðar en í byrjun ágúst- mánaðar nk. Ég reikna með því að ef dómþoli lætur ekki fjar- lægja húsið þá verði það gert af bæjaryfirvöldum á kostnað eig- endanna, sagði Hreinn Pálsson, bæjarlögmaður í samtali við Dag. Að sögn Hreins hefur talsverð- ur kostnaður hlotist af þessum málarekstri fyrir Akureyrarbæ, jafnvel þó að málið hafi unnist fyrir Hæstarétti. Greiða þarf hæstaréttarlögmanni fyrir starf sitt og eins hefur hlotist ýmiss óbeinn kostnaður vegna þessa máls. - ESE „Jæja, er þá sumarið Inksins komið?“ Ekki er því alveg að treysta, né heldur vitum við hvort þessir herrar voru að velta fyrir sér veðurfarinu, þegar þeir tóku tal saman í göngugötunni í gær. Mynd: KGA Aðalfundur KSÞ: 9,5 milljón króna halli Mikill halli varð á rekstri I ári. Á aðalfundi kaupfélagsins Kaupfélags S.-Þingeyinga á sl. | sem haldinn var sl. fímmtudag Aðalstöðvar KSÞ á Húsavík. Fremur kalt fram til 20. júní - segir veðurspámaður Dags „Þegar litið er til mánaðanna maí og júní 1985 virðist ekki góðviðrislegt að sjá. Þó munu ekki verða nein stóráfelli. Norðaustanlands verður senni- Iega fremur kalt og tvisvar í maí getum við reiknað með kuldaskotum, en þau standa stutt,“ sagði veðurspámaður- inn okkar hér á Degi, Aðal- steinn Óskarsson, sem reynst hefur einkar sannspár um veðurfar. Nú er Aðalsteinn sem sagt bú- inn að spá í himintunglin og drauma fyrir veðrinu fyrri hluta sumars og því miður virðist útlit- ið ekki allt of glæsilegt. Hann segir ennfremur: „í júní má búast við að norð- læg átt verði ráðandi nokkurn hluta mánaðarins og að minnsta kosti eitt kuldaskot með snjó eða slyddu herji hér á Norðaustur- og Norðurlandið þennan mánuð. Sem sagt, fremur kalt næstu vikur og ekki sjáanlegt að breyt- ing verði þar á fyrr en upp úr 20. júní,“ segir Aðalsteinn um veðr- ið framundan. - HS kom fram að hallinn á árinu nam rúmum 9,5 milljónum króna sem er heldur hærri upphæð en fjárfest var fyrir á árinu. í máli þeirra Teits Björnssonar á Brún, stjórnarformanns KSÞ og Hreiðars Karlssonar. kaupfé- lagsstjóra kom fram að vörusala jókst á síðasta ári um 30% og nam alls rúmum 350 millj. kr. Fjár- festingar námu tæpum níu millj- ónum kr. Innistæður á viðskipta- reikningi voru tæpar 40,3 rnillj. kr. sem er aukning um 10% en skuldir námu hins vegar rúmlega 40,1 millj. kr. sem er 30% aukn- ing. Um 120 fulltrúar sátu fundinn sem haldinn var í Félagsheimili Húsavíkur. - ESE Lágheiðin mokuð í gær - Opnuð eftir 2-3 vikur í gær var hafíst handa við að moka snjó af veginum yfír Lágheiði frá Ólafsfírði yfír í Fljót. í venjulegu árferði hefur heiðin ekki verið mokuð fyrr en seinni hluta maí en vegna hins milda og snjólétta vetrar eru vonir bundnar við að heið- in verði fyrr fær í ár. Að sögn Bjarna Sigurðssonar, vegaeftirlitsmanns var ástand á heiðinni kannað fyrir skömmu og í framhaldi af því var ákveðið að ryðja heiðina nú. - Veginum verður lokað strax og búið er að ryðja vegna hættu á aurbleytu og hann verður ekki opnaður fyrr en mesta bleytan er farin úr, sagði Bjarni Sigurðsson. Að sögn Bjarna tekur það að minnsta kosti hálfan mánuð í góðu tíðarfari fyrir veginn að þorna þannig að hægt verði að opna hann fyrir umferð. - ESE

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.