Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 2

Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 8. maí 1985 Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu? Sveinbjörg Pálsdóttir: Ég fer á landsþing JC sem haldið verður á Egilsstöðum um hvítasunnuna. Svo fer ég líka að Bifröst, þar ætla ég að gera hreint, þetta er alveg æðislegt sumarfrí. Hallgrímur Vilhjálmsson: Það er óákveðið, að vísu er ég í sumarfríi núna og er á leið til Reykjavíkur. Bjarni Bjarnason: Ég fer suður og ætla að vera þar í sveit. Bærinn heitir Steinar, maðurinn heitir Geir, en ég man ekki hvað konan heitir. Hinrik Þórhallsson: Vinna í Pylsuvagninum. „Ég lagði inn pöntun árið áður en ég fékk bflprófið og númer- ið fékk ég svo ári eftir að ég tók prófið, þannig að ég beið í rauninni í tvö ár eftir að fá þetta númer. Ég ætlaði ekki að missa af þessu númeri,“ sagði Guðmundur Sigurjónsson, en hann á bflnúmerið A-10000. Það er ekki von að Guðmund- ur hafi viljað missa af númer- inu, hann er tíu þúsundasti Akureyringurinn, fæddur þann 14. aprfl árið 1967. Þetta var tilkynnt á þúsundasta fundi Bæjarráðs Akureyrar. Guðmundur Sigurjónsson við Honduna sína, A-10000, Guðmundur er 10.000. Akureyringurinn. Við flettum upp í Degi og þann 27. mars 1968 segir að frétta- menn hafi verið boðaðir á fund bæjarstjórnar. „Tilefnið var tvíþætt: Þess var minnst að Akur- eyringar eru orðnir 10 þúsund og fundur þessi er sá þúsundasti í bæjarráðinu. Akureyringur sá sem fyllti hina umræddu tölu heitir Guðmundur og er fæddur 14. apríl 1967. Foreldrar: Sig- ríður Þórðardóttir og Sigurjón Steinsson ráðunautur. Guðmund- ur og foreldrar hans voru boðs- gestir fundarins. Hlaut hann heiðursskjal og 10 þúsund krónu sparisjóðsbók, en foreldrarnir fagra blómakörfu úr hendi bæjar- stjóra sem stýrði fundi,“ segir Dagur í mars 1968. Guðmundur á þúsundasta bæjarráðsfundinum, 1968, þá tæplega eins árs gamall. Á fundinum var honum afhent heiðursskjal og 10 þúsund krónur, sem hann tók út síðastliðið haust og voru þá 30 þúsund. „Nei. Ég hef gaman af fal- legum bílum, en nenni ekki að standa í að spyrna og svoleiðis.“ - Aðaláhugamálið? „Það eru skíði. Ég hef keppt á skíðum frá því ég var 8 ára og hefur gengið mjög vel.“ - Segðu okkur af fyrri afrek- um. „Ég var alltaf með í Andrésar andar leikunum og þar var ég Andrésar andar meistari í svigi og stórsvigi í 11 og 12 ára flokki. Þegar ég var 9 ára lenti ég í öðru sæti og 10 ára varð ég fyrstur í stórsviginu. Þegar ég var 12 ára vann ég ferð út á Andrésar andar leikana í Kongsberg í Noregi og fór út þegar ég var orðinn 13 ára.“ - Hvernig gekk þar? „Ég datt bæði í sviginu og stór- sviginu, en lauk samt keppni." - Fleiri utanferðir? „Já, ég dvaldi í æfingabúðum í Austurríki árið 1983.“ - Er þetta ekki dýrt? „Jú, þetta er dýrt hobbý, en við fáum skíði og bindingar á góðum kjörum, annars væri þetta ekki hægt með góðu móti.“ - En hvað varð um 10 þúsund - Fleiri áhugamál? krónurnar sem þú fékkst frá Ak- „Skíðin eru númer 1,2 og 3, en ureyrarbæ? ég hef gaman af flestum íþróttum „Þær voru settar inn í banka og 0g leik mér í fótbolta á sumrin. “ voru þar þangað til síðastliðið _ Vinna? haust að ég tók þær út til að fjár- magna bílakaup. Þær voru þá „Ég vinn í Mjólkursamlaginu, orðnar að 30 þúsund krónum.“ keyri út mjólk í búðirnar. Þetta - Þú ert kannski með bíla- er ágætt starf, lifandi, maður dellu? ' kynnist svo mörgum.“ - mþþ „Ætlaði ekki að missa af þessu númeri" - segir Guðmundur Sigurjónsson sem á númerið A-10000, en hann er 10.000. Akureyringurinn Guðmundur tók bílpróf fyrir einu ári og gekk það að hans sögn ágætlega. Fyrir hálfum mánuði keypti Guðmundur Hondu Civic árgerð 1981. „Það voru sett á hana 250 þúsund,“ sagði Guðmundur er hann var spurður um hvað hún hefði kostað. „Nei ég er ekkert ríkur, það er ekki hægt að segja þáð.“ „Um allt voru brotnar flöskur svo tæpast varð stigið niður fæti...“ Hvernig lítur Miðbær Akur- eyrar út, ef götusópararnir okkar taka sér frí eina árdegis- stund? Svarið fengum við, sem kom- um að morgni 25. apríl sumar- dagsins fyrsta á torgið og í göngu- götuna til að fagna sumarkomu með ungmennum okkar og gest- komandi. Við fundum sárt til skammar og hörmuðum innra með okkur, hvernig hátíðasvæð- ið leit út. Um allt voru brotnar flöskur svo tæpast varð stigið niður fæti, án þess að mylja gler- brot og festa í skósólum sínum. Bréfaruslið var í hrönnum. Tóbaks- og sælgætisumbúðir, ásamt alls kyns óþverra nánast ■þöktu svæðið. Sem sagt: Eins og dreifður ruslahaugur. Þessi smán okkar, sem gestgjafa aðkominna ungmenna, ætti að nægja til þess að við segjum og stöndum við það: Hingað og ekki lengra. Við eigum öll óbeina sök á þessu óhuggulega ástandi, með því að gera ekkert raunhæft til úrbóta. Allir vita hvaðan ruslið kemur og því gæti komið til athugunar að loka uppsprettunum á hóf- legum tíma. Þyki hins vegar ekki fært að loka þessum uppsprettum á sama tíma og verslunum, mætti ætlast til að forráðamenn þeirra önnuðust hreinsun ákveðins svæðis, sem reynslan hefur sýnt, að rusl dreifist á frá þeim. Tals- vert í krónum talið kostar að halda hreinu á þessu svæði og væri jákvætt fyrir bæjarsjóð að draga eitthvað úr því ef hægt væri. Siðferði- og menningar- legur ávinningur væri þó margfalt stærri, ef takast mætti að halda hreinu. KN.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.