Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 08.05.1985, Blaðsíða 12
ÖST33 Bilapernr 6-12 og 24 volta FLESTAR TEGUNDIR SAMLOKUR fyrir og án peru Atvinnuhorfur skólafólks: Langir listar viðast hvar „Stóra málið í þessu er að þeg- ar svona inikill fjöldi kemur út á vinnumarkaðinn í einu þá hefur það gefist betur að krakkarnir fari sjálf í fyrirtæk- in og Iáti skrifa sig niður. Það kemur upp langur listi hjá fyrirtækjunum og þau þurfa þá ekki að Ieita okkar aðstoð- ar,“ sagði Haukur Torfason hjá Vinnumiðlunarskrifstof- unni er Dagur innti hann eftir atvinnuhorfum skólafólks í sumar og hvort skrifstofan væri unglingum innan handar með sumarvinnu. „Skráning í Vinnuskólann fer senn að hefjast, en inn í hann eru teknir allir unglingar á aldrinum 13-15 ára sem um það sækja. 8,5 millj. kr. til íþrótta- hússins - þar af greiðir bærinn 6,4 millj. kr. Talsverðar framkvæmdir verða á vegum Húsavíkurbæj- ar í sumar. Stærsta verkefnið er áframhald á byggingu íþróttahúss en ráðgert er að til þess verks fari 8,5 milljónir króna, þar af 6,4 milljónir frá bænum. Skólagarðarnir eru svo aftur fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára og þarna fá margir unglingar vinnu,“ sagði Haukur Torfason. Gunnar Skarphéðinsson starfs- mannastjóri Slippstöðvarinnar sagði að hjá Slippstöðinni væri langur listi skólafólks sem sótt hefði um atvinnu í sumar, og væri hann mun lengri en vanalega. Hjá Slippstöðinni er skólafólk ráðið í 20-30 stöður yfir sumarið og að sögn Gunnars eru miklar líkur á því að þeir sem unnið hefðu hjá fyrirtækinu í fyrrasum- ar myndu skila sér nær 100% svo að sáralítið yrði bætt við af nýju fólki. „Það hafa mjög margir leitað til Kaupfélags Eyfirðinga eftir at- vinnu en því miður eru það til- tölulega fáir sem hlotið hafa við- eigandi úrlausn," sagði Áskell Þórisson starfsmannastjóri Kaup- félagsins. „Hjá okkur er langur listi,“ sagði Gunnar Aspar hjá Útgerð- arfélagi Akureyringa. „Þeir 40 sem unnu hjá fyrirtækinu í fyrra- sumar eru skráðir hér og að minnsta kosti jafnmikið af nýju fólki." Sagði Gunnar að þessa dagana væru sumarleyfisumsókn- ir að skila sér, en Útgerðarfélagið myndi aldrei ráða í minna en 30 heilsdagsstöður auk annarra af- leysinga. - mþþ Fjórir unglingar frá Akureyri taka þátt í alþjóðlegri reiðhjólakeppni sem fram fer í Lissabon í lok maí. I tilefni þessa góða árangurs hefur KEA ákveð- ið að styrkja þá til fararinnar. Keppendur æfa nú af kappi undir stjóm Varð- ar Traustasonar lögreglumanns á Akureyri. Mynd: KGA Ljós í myrkrinu: Skallauppgræðsla - á Akureyri Að sögn Bjarna Aðalgeirsson- ar, bæjarstjóra er íþróttahúsið nú fokhelt en stefnt er að því að fullklára það fyrir Landsmót UMFI sem haldið verður á Húsa- vík sumarið 1987. Af gatnagerðarframkvæmdum á Húsavík má nefna að slitlag verður lagt á hluta Uppsalavegar og Baughóls. Unnið verður við jarðvegsskipti við göturnar Sól- velli og Iðavelli og nýbyggingar- framkvæmdir verða við Grundar- garð og Lyngbrekku en gatna- gerð hófst þar í fyrrá. Sjö milljónum króna verður varið til þessara framkvæmda og kemur það Húsavíkurbæ nú til góða að eins og á flestum stöðum á landinu var afburða snjólétt og kostnaður við snjómokstur því í lágmarki. -ESE Þunnhærðir og sköllóttir Ak- ureyringar geta nú bundið nokkrar vonir við að betri og jafnframt þykkhærðari tímar fari í hönd. Skallauppgræðsla er nefnilega hafín hjá Nudd- og gufubaðstofunni í Tungu- síðu með merkilegu tæki af hollenskum uppruna. Að sögn Rögnvalds Sigurðs- sonar, eiganda stofunnar hefur tækið verið í notkun í um þrjár vikur og alls eru 15 manns þar í meðferð. - Það má segja að tækið nýtist á tvo vegu. Annars vegar raf- magnsnuddtæki sem örvar blóð- streymi til höfuðsins en hins veg- ar leysigeislatæki sem örvar hár- sekkinn. Hver maður fer í tíu tíma kúr sem tekur um tíu vikur og ef árangur er farinn að sjást eftir þann tíma, getur viðkom- andi fengið framhaldsmeðferð og mætir þá á um þriggja vikna eða mánaðarfresti, segir Rögnvaldur en bætir því við að hann vilji taka það skýrt fram að ekki sé hægt að ábyrgjast árangur. Hinir erlendu framleiðendur telji tækið hjálpa 60 til 70% manna en hinir fái enga bót. Ef hægt er að örva hárvöxt með tækinu þá myndast fyrst smá „ull“ eins og ungbarnahár á höfðinu. Með framhaldsmeðferð er hægt að ná upp þokkalegasta hárvexti og í besta falli að græða upp skallann. - Það er auðvitað of snemmt lllugastaðir: Einu húsi breytt fyrir fatlaða Aðalfundur Rekstrarfélags oríofsbyggðanna að Illuga- stöðum var haldinn fyrir skömmu. Formaður félagsins, Hákon Hákonarson, var spurður um helstu mál fundar- ins. „Það kom fram í skýrslu fráfar- andi stjórnar að einu húsi á svæð- inu, húsi nr. 26, hefur verið breytt þannig að nú á fólk í hjóla- stól að geta athafnað sig þar mjög auðveldlega, dyr hafa verið stækkaðar og herbergjaskipan breytt þannig að fötluðu fólki í hjólastól á nú að geta liðið þar mjög vel,“ sagði Hákon. „Þá var ákveðið að einbeita sér að því á næstu árum að koma upp skjólbeltum á svæðinu, sömuleið- is að planta þar skógi á öllu svæð- inu innan girðingar sem er friðað. Ætlunin er að verja í þetta nokkrum fjármunum á næstu árum þannig að framkvæmdum við það gróðurkort sem var til umfjöllunar á fundinum verði lokið á 5-10 árum,“ sagði Hákon 1 Hákonarson. -ESE hafin að segja til um árangur hér hjá okkur en við ættum að vera nokkru nær eftir sex til sjö vikur, sagði Rögnvaldur Sigurðsson. Þess má geta að tíminn í upp- græðslutækinu kostar 800 krónur og tíu vikna kúr kostar því 8.000 krónur. Sumum kann kannski að þykja það hátt verð en til saman- burðar má nefna að hárkollur kosta víst um 60 til 70 þúsund krónur sé eitthvað í þær spunnið. - ESE Gert er ráð fyrir hæg- viðri í dag og í kvöld léttir til. Á morgun verður sunnangola og að öllum líkindum léttskýj- að. # Mögnuðræða Á aðalfundi KSÞ sem haldinn var á Húsavík fyrir skömmu, hélt Valgerður Sverrisdóttir, húsfreyja á Lómatjörn, erindi um þátttöku kvenna í sam- vinnuhreyfingunni en þetta mál verður sérmál á næsta aðalfundi Sambandsins. Val- gerður flutti mál sitt af mlkl- um myndarskap eins og hún gerði reyndar einnig á aðal- fundi KEA og síðan urðu miklar og gagnlegar um- ræður. Þegar Valgerður fór í pontu var búið að kjósa alla aðal- fulitrúa KSÞ á aðalfund Sam- bandsins og voru þeir aliir karlkyns. Eftir var að kjósa varafulltrúa og var það gert eftir ræðu Valgerðar og um- ræður. Þá brá svo við að allir varafulltrúarnir voru kjörnir úr röðum kvenna, þannig að Ijóst má vera að ræða Val- gerðar hefur hrist upp f mönnum. # Það sem vex í vinnu- tímanum Bókagerðarmenn eru senni- lega einna stéttvísastir allra launþega á íslandi eins og glögglega hefur mátt sjá í verkföllum undangenginna ára. Bókagerðarmenn eru Ifka ansi harðir í samningum loksins þegar þeir semja og allar kröfur, réttindi og skyldur eru geirnegldar niður. Við vitum ekki hvort bókagerðarmaðurinn sem sötraði kaffi á kaffistofu Dags og Dagsprents hér á dögun- um, var að grfnast eður ei en hann fullyrti að samningarnir tækju meira að segja til hár- snyrtingar. Samkvæmt samn- ingunum mega bókagerðar- menn láta klippa það hár sem vex í vinnutímanum án þess að tapa launum. Míðað við þetta væri athugandi fyrir bókagerðarmenn eftir næsta tveggja mánaða verkfall að semja um það að þeir megi fara í skallauppgræðslu í vinnutfmanum vegna þess hárs sem þeir sannarlega missa í vinnutímanum (sbr. skallauppgræðsluna sem sagt er frá hér á síðunni). Sfðan til að fullnægja öllu réttlæti ættu þeir sem farnir eru að grána, að fá að bregða sér f litun í vinnutfmanum vegna þess hárs sem gránar í vinnutímanum. Svona gæti þetta lengi gengið og senni- lega verða vinnuveitendur orðnir illa gráhærðir á bóka- gerðarmönnum eftir næstu samnínga.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.