Dagur - 08.05.1985, Side 3

Dagur - 08.05.1985, Side 3
8. maí 1985 — DAGUR - 3 Ný bók,sjötta metsölubókin Israel Navarez var hörkutól, fonngi einnar harðsviruðustu glæpaklikunnar i New York borg. Hann og félagar hans buðu öllum byrginn, eiturlyf og hnifabardagar voru daglegt brauð i höröum heimi götunnar. Eftir hefndarárás á annan glæpaflokk lenti Israel i fangelsi. ákærður fyrir morð. I ógnarheimi fangelsisins var harkan ennþá meiri en i skuggasundum stórborgarinnar. Var lífi þessa ógæf usama manns i raun ekki lokið eða örlaði á einhverri von? Magnþrungin spennusaga sem gagntekur lesandann. frímhjolp Frá aðalfundi Rauða kross íslands. LETTIB % Deildaimót V Í.D.L ’85 verður haldið á Breiðholtsvelli dagana 16. og 19. maí. Keppt verður í öllum landsmótsgreinum og víðavangshlaupi. Skráning á H-loftinu 9. og 11. maí kl. 4-6 e.h. Þátttökugjald kr. 150,- á grein sem greiðist við skráningu. Munið árgjöldin og fund 13. maí. Stjórn Í.D.L. Verksmiðjuútsalan er í kjallaranum Hrísalundi 5 Lágt verð á buxum, skóm, jökkum, peysum, sængum og koddum, hespulopa o.fl. o.fl. Útsalan í kjallaranum Hrísalundi 5. SlMI (96) 21400 Mynd: KGA Fíkniefnamálin efst á dagskránni Aöalfundur Rauða kross ís- lands var haldinn á Akureyri um helgina. Var Akureyri aö þessu sinni valin sem fundar- staður vegna afmælis Akureyr- ardeildarinnar sem varð 60 ára 29. janúar, og er hún elsta deild Iandsins, stofnuð mánuði eftir að Rauði kross íslands tók til starfa. Að sögn Bjarna Arthurssonar sem á sæti í stjórn RKÍ voru tvö aðalmál á aðalfundinum. Voru það fíkniefnamál annars vegar og hitt greinargerð um sjúkraflutn- inga. Fundurinn samþykkti tillögu frá formanni um fíkniefnamálin og segir þar m.a.: „Aðalfundur- inn leggur fyrir stjórn og skrif- stofu Rauða kross Islands að styðja deildirnar í þessu starfi, og sérstaklega að taka strax til at- hugunar með hverju móti Rauði krossinn getur orðið að liði í bar- áttuni gegn fíkniefnaneyslu og komið neytendum og aðstand- endum þeirra til hjálpar sem helj- argreipar fíkniefnanna hafa hremmt." Jafnframt fagnaði fundurinn því að heilbrigðisráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur um skipulagningu og framkvæmd sjúkraflutninga í landinu og lýsir því yfir að Rauði kross íslands og deildir hans séu reiðubúnar að taka á sig aukna ábyrgð á sjúkra- flutningum. Þess má að lokum geta til gam- ans að tekjur RKÍ af spilakössun- um svokölluðu námu 32 milljón- um króna á síðasta ári. Stjórn RKÍ skipa nú, Benedikt Blöndal formaður, Guðjón Magnússon, Björn Tryggvason, Eggert Á. Sverrisson, Björn Friðfinnsson, Vigfús P. Guð- mundsson, Bjarni Arthursson, Anna Þ. Þorkelsdóttir, Arin- björn Kolbeinsson, Guðrún Holt og Þórir Sigurbjörnsson. gk-. Blomberq Stílhrein hágæða heimilistæki 2ja ára ábyrgð Komið og gerið kjarakaup í nýju versluninni Raf í Kaupangi. /SÍN % ■■ NÝLAGNIR BkAp sr Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400. Verslið hjá fagmanni. Skemmtiferð Félag aldraðra á Akureyri efnir til fimm daga skemmtiferðar er hefst 4. júlí í sumar. Farið verður til Borgarfjarðar og gist í Reykholts- skóla. Ferðakostnaður er áætlaður kr. 5.300,- Fararstjóri verður Gestur Ólafsson. Þátttakendur láti skrá nöfn sín hjá Helgu Frímanns- dóttur fyrir 15. júní. Ferðanefndin. Aöalfundur Rauöa kross Islands:

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.