Dagur - 13.05.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 13. maí 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI:. 24222
ÁSKRIFT KR. 200 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 28 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GfSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Blaðaterrorismi
í grein sem Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi á
Tjörn í Svarfaðardal, skrifar í rit félags áhuga-
manna í framhaldsskólunum um landsbyggð-
armál, sem nokkuð hefur verið vitnað til hér í
Degi, enda um þarft framtak að ræða, fjallar
hann um þjóðirnar tvær í þessu landi. Oftast
sé rætt um tvo hópa manna í efnahagslegum
skilningi, annan ríkan og hinn fátækan. Nær
lagi væri hins vegar að tala um tvær þjóðir í
merkingunni landsbyggðarmenn andspænis
höfuðborgarbúum. Þar séu miklu klárari
markalínur en milli ríkra og fátækra hér á
landi. Andstæðurnar séu t.d. frumframleiðsla
til sjós og lands andspænis þjónustustarf-
semi, gjaldeyrissköpun andspænis gjaldeyr-
isnotkun og fleira, eða almennt séð vörn og
undanhald andspænis alhliða sókn.
„Þessar andstæður hafa verið að skapast
alla öldina, stundum með minni, stundum
með meiri þunga, uns svo er komið sem kom-
ið er, að til eru orðnir tveir hópar manna í
landinu, sem finnst þeir ekki hafa margra
sameiginlegra hagsmuna að gæta og eru í sí-
vaxandi mæli hættir að skilja hvor
annan . . . Það er sannarlega kominn tími til
að snúa langvarandi vörn okkar og undan-
haldi í sókn, “ segir Hjörtur í grein sinni.
„Nógu lengi höfum við mátt þola árásir og
nánast ofsóknir blaðaterrorista í Reykjavík,
en terroristar eða hryðjuverkamenn á þessu
sviði mega þeir skriffinnar kallast, sem árum
saman hafa með níðingslegum skrifum sínum
reynt að eitra hug borgarbúa gagnvart ís-
lenskum landbúnaði og um leið að lama
sjálfstraust og siðferðisþrek sveitafólksins.
Sígilt dæmi um vinnubrögð hryðjuverka-
manna á blaðasviðinu birtist í leiðara í dag-
blaðinu Vísi 10. september 1980 og hljóðaði
þannig: „Landbúnaðurinn er og hefur alltaf
verið baggi á landi og þjóð.“
Þessi og þvílíkur er hinn heimspekilegi
grundvöllur sem áróðurinn gegn landbúnaði
hvílir á. Það er ómenguð fyrirlitning á því
fólki, sem jörðina erjar og einskorðast reynd-
ar ekki við það eitt, heldur nær í meira eða
minna mæli til allra, sem vinna að frumfram-
leiðslu á íslandi, en þeir búa eins og alkunna
er einkum utan höfuðborgarsvæðisins.
Reyndar má svo virðast sem eitthvert lát
sé á árásum á landbúnaðinn rétt þessa
stundina, en þá hefur sjávarútvegurinn hins
vegar mátt þola kaldar kveðjur og ódulbúna
lítilsvirðingu í skrifum fyrrgreindra manna,“
segir Hjörtur E. Þórarinsson í grein sinni.
Við þetta er litlu að bæta. Þannig hefur ver-
ið staðið að undirstöðuatvinnugreinunum,
með rangri gengisskráningu og óviðunandi
rekstrarhag, að um þær er talað sem
ölmusuþiggjendur, þrátt fyrir þá staðreynd
að sjávarútvegur og landbúnaður, hafa staðið
undir framförum á íslandi í gegnum aldirnar
og gera enn.
Viðarstaukur ’85
Hin árlega hljómlistarhátíð
Menntaskólans á Akureyri,
Viðarstaukur, var haldin sl.
föstudagskvöld. Það voru alls 15
hljómsveitir af ýmsum stærðum
og gerðum, sem kepptu um hin
ýmsu verðlaun. Það var hljóm-
sveitin „After aids“ sem kjörin
var best, en hana skipa Jóhann
Ingvason, Þórir Jóhannsson,
Fjölnir Guðmundsson og Sigfús
Óttarson. Kjallari Möðruvalla
var þéttsetinn og einhver sagði að
það hefði verið eins og í síldar-
tunnu. Ekki sérlega frumleg sam-
líking, en lýsir vel aðstæðum.
Annars skulum við bara skoða
myndirnar.
Ásgeir íhugar málin.
„After aids“.
Myndir: KGA