Dagur - 13.05.1985, Blaðsíða 7
13. maí 1985 - DAGUR - 7
Sigurður Lárusson og Nói Bjömsson, þeir mætast á Þórsvelli annað kvöld.
Tekst Þórsurum að
vinna Skagamenn
- er liðin leika á Þórsvelli annað kvöld?
Annað kvöld kl. 20 hefst á malar-
velli Þórs fyrsti leikurinn í 1. deild
knattspyrnunnar á þessu keppnis-
tímabili, en þá fá Þórsarar ís-
landsmeistara Akraness í heim-
sókn.
Knattspyrnuáhugamenn eru
spenntir eins og venjulega í upphafi
keppnistímabilsins og spurningin er:
Tekst Þór að sigra íslandsmeistar-
ana? Margir telja að nú sé möguleiki
á að vinna Skagamenn á heimavelli,
en Skagamenn hafa sloppið undan
Þórsurum með sigra á Akureyri á
undánförnum árum.
Þórsarar hafa búið sig vel undir
keppnistímabilið að þessu sinni, æft
lengi og vel og spilað fjölda æfinga-
1-X-2
Úrslitin í 1. deild ensku knattspyrnunn-
ar og getraunaúrslit á síðasta getrauna-
seðli vorsins:
Liverpool-A.Villa 2:1 1
Luton-Leicester 4:0 1
N.Forest-Everton 1:0 1
QPR-Man.Utd. 1:3 2
Sunderland-Ipswich 1:2 2
WBA-Arsenal 2:2 x
Norwich-Newcastle 0.0
Sheff.Wed.-West Ham 2:1
Southampton-Coventry 2:1
Stoke-Chelsea 0:2
Tottenham-Watford 1:5
Birmingham-Leeds 1
Blackburn-Wolves 1
Fulham-N.County 1
Huddersf.-Portsmouth 2
Shrewsb.-Middlesb. 2
Wimbledon-Cardiff 1
leikja. Það hafa Skagamenn eflaust
gert einnig og pressan verður á þeim
sem meisturum sem hefja titilvörn
sfna nokkrum leikmönnum fátækari
en í fýrra.
Þar munar mestu að þeir hafa tap-
að Sigurði Jónssyni, Sigurði Hall-
dórssyni og markverðinum Bjarna
Sigurðssyni. í marki Skagamanna á
Þórsvelli annað kvöld mun standa
Birkir Kristinsson sem í fyrra lék
með KA.
Þórsarar eru með lítið breytt lið og
kjarninn í liðinu er nú skipaður leik-
mönnum sem hafa öðlast talsverða
reynslu í 1. deildar keppninni og þess-
„Ætli ég eyði ekki ævikvöldinu á
Akranesi. Þar er gott fólk og ég
hef gott starf. Það eru því engar
líkur á að ég flytji norður,“ sagði
Sigurður Lárusson fyrrverandi
leikmaður Þórs og núverandi
Skagamaður.
- Nú var ykkur Skagamönnum
spáð öðru sæti í fyrstu deild, en hafið
verið í því fyrsta undanfarin ár.
„Ég tek ekki mark á þessari spá,“
sagði Siggi Lár, en get sagt þér að ég
tel möguleika Vals, Fram og okkar
vera mesta. Hins vegar má aldrei af-
skrifa lið eins og Þór. Það sem á jafn-
vel eftir að ráða úrslitum, er hvort
liðin hafi reynslumikla menn sem
ir piltar hafa leikið lengi saman.
Styrkleikur Þórs liggur ekki síst í
nokkuð jöfnu liði, en frá Þór hafa
farið Óli Þór Magnússon og Guðjón
Guðmundsson.
Á fundi 1. deildar félaganna á
dögunum spáðu forráðamenn lið-
anna um endanlega röð þegar upp
verður staðið í haust. Valsmenn
hlutu þar flest atkvæði og Skaga-
menn næstflest. Síðan komu Fram,
KR, Þór, Þróttur, ÍBK, FH, Víking-
ur og Víðir. Samkvæmt þessu ættu
Valsmenn að verða meistarar, en
Víkingar og Víðismenn að falla í 2.
deild.
geti staðið af sér spennuna sem oft
myndast í lok mótsins."
- Hvernig líst þér á að byrja á
mölinni?
„Mér líst illa á möl, því það verður
aldrei góður bolti á möl. Það verður
bara að taka þessu eins og hverju
öðru hundsbiti,“ sagði Siggi og hló.
- Fyrstu mótherjar eru fyrrver-
andi félagar.
„Já, það er alltaf erfitt að spila á
móti Þór, því ég hef sterkar taugar til
þeirra. En það er enginn annars
bróðir í leik,“ sagði Siggi Lár að lok-
um og bað kærlega að heilsa norður,
með ósk um að báðum liðunum
gangi vel í sumar. gej
„Erfitt að spila
á móti Þór“
- segir Sigurður Lárusson
fyrirliði Skagamanna
EM í kraftlyftingum:
Kári náði
í silfrið
Kraftlyftingamaðurinn Kári
Elíson hafnaði í 2. sæti í sínum
þyngdarflokki á Evrópumót-
inu sem haldið var í HoIIandi
um helgina.
Kári keppti á föstudag í 67,5
kg flokki og setti kappinn þrjú ís-
landsmet á mótinu. Hann tví-
bætti metið í réttstöðulyftu, lyfti
fyrst 267,5 kg og síðan 270 kg.
Samanlagður árangur hans var
652,5 kg og er það íslandsmet.
Víkingur Traustason eða
„Heimskautabangsinn" eins og
hann er kallaður keppti í 125 kg
flokki og voru mörg „tröllin“
mætt þar til leiks. Ekki er okkur
kunnugt um árangur hans í ein-
staka greinum en Víkingur hafn-
aði í 6. sæti og var nokkuð frá
sínum besta árangri.
Júgóslavneskur
þjálfari
Svo getur farið að júgóslavn-
eskur þjálfari muni stýra liði
KA í 1. deildinni í handbolta
næsta keppnistímabil.
KA óskaði eftir því við Jóhann
Inga Gunnarsson þjálfara í
til KA?
Þýskalandi að hann kannaði það
hvort einhverjir þjálfarar í Júg-
óslavíu væru fáanlegir hingað og
lýstu tveir sig reiðubúna til þess.
Á næstu dögum mun það skýrast
hvort af þessu verður.
Fór holu í höggi
„Ég hefði heldur viljað fá
þetta högg í keppni en þetta
var samt sem áður mjög
skernmtilegt,“ sagði Birgir
Marinósson sem fyrir helgina
fór „holu í höggi“ á Jaðars-
velli.
Birgir var þar að leika ásamt
félaga sínum Júlíusi Thorarensen
og á 18. holu náði Birgir drauma-
högginu. Kúlan kom niður rétt
við holuna og rúllaði síðan niður.
Birgir notaði 7-járn og við afrek-
ið fær hann inngöngu í hinn
virðulega Einherjaklúbb.
„Gott að afgreiða
Skagamenn strax“
- segir Nói Björnsson
„Jú, ég held að það sé mölin.
Það er því ekki bjart yfir því.
Hins vegar var Baldvin Ólafs-
son vallarvörður okkar búinn
að lofa okkur grasi, en það er
víst ekki hægt því veðrið hefur
ekki verið nógu gott að undan-
förnu. Veðrið er líklega það
eina sem hann telur sig ekki
Nói Björnsson.
geta stjórnað,“ sagði Nói
Björnsson fyrirliði Þórs og hló
dátt er hann talaði um Baldvin
vallarvörð.
„Skagamenn voru ekkert sér-
lega óhressir með mölina, er ég
talaði við þá um daginn. Þetta
verður bara aldrei eins skemmti-
legt á möl.“
- Nú verða Skagamenn fyrstu
mótherjar ykkar.
„Já, mér líst nú ekki \err á þá
sem mótherja í fyrsta leik en
aðra. Það verður gott að afgreiða
þá strax.“
- Ykkur er spáð þokkalegu
gengi í deildinni, eða 5. sæti.
Hver er þín spá?
„Ég trúi að við verðum ofar en
spáð var.“
- Á hverju byggirðu það?
„Við erum rneð mjög góðan
þjálfara sem er með margt nýtt
og skemmtilegt í sambandi við
æfingarnar. Það er mjög góður
mórall hjá liðinu. svo ég spái að
við verðum ofar, miklu ofar,“
sagði Nói Björnsson fyrirliði
Þórs.
Það kemur í Ijós hvort spá Nóa
gengur eftir. gej