Dagur - 19.06.1985, Blaðsíða 1
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 19. júní 1985
65. tölublað
Missir hitaveitan
Hramagilsholuna?
- Hrafnagilshreppur vann fyrir Hæstarétti mái gegn Hitaveitu Akureyrar
„Vissulega erum við ánægðir
með þessi málatok, en samt
sem áður var það erfið ákvörð-
un fyrir okkur á sínum tíma, að
fara í mátarekstur gegn okkar
nágrönnum, en við töldum
okkur neydda til þess,“ sagði
Haraldur Hannesson, bóndi og
oddviti í Víðigerði í Hrafna-
gilshreppi, í samtali við Dag.
Hæstiréttur kvað fyrir helgina
upp dóm í máli Hrafnagilshrepps
gegn Hitaveitu Akureyrar.
Ásteitingarsteinninn var samn-
ingur veitunnar og Hjalta Jóseps-
sonar bónda á Hrafnagili um nýt-
ingu á borholu í landi Hrafnagils,
sem er dýr og gjöful. Hrepps-
nefnd Hrafnagilshrepps taldi sig
hafa átt rétt á að fjalla um þenn-
an samning, þar sem hreppurinn
hafi heimild til forkaupsréttar.
Hjalti og forráðamenn hitaveit-
unnar töldu það hins vegar
ástæðulaust, þar sem hér væri um
leigusamning, en ekki kaupsamn-
ing að ræða. En dómstólarnir
voru á öðru máli og nú hefur
Hrafnagilshreppur unnið málið
og samningurinn er þar með
ógiltur.
Upphafið að þessum deilum á
sér lengri sögu, að sögn Harald-
ar. Hann sagði, að heitar lindir,
sem dugað höfðu til að hita skól-
ana og félagsheimilið að Hrafna-
gili, hefðu þornað eftir að Hita-
veita Akureyrar virkjaði á
Laugalandi og í Hrafnagils-
hreppi. Þetta hefði hreppurinn
viljað fá bætt, en stjórnendur
hitaveitunnar hefðu ekki verið til
viðtals um slíkt. Að vfsu hefðu
þeir sýnt samningsvilja eftir að
málarekstur var hafinn, en ekki
nægilegan að mati hreppsnefnd-
arinnar. Þetta varð til þess að
rekstrarkostnaður við skólana
hækkaði verulega og ekki hefur
verið grundvöllur fyrir kaupum
á vatni í sundlaugina, nema til að
Lögreglan:
Hátíðarhöldin
17. jum fom
vel fram
Lögreglumönnum víðs vegar
um Norðurland ber saman um
að hátíðarhöldin á 17. júní hafi
í alla staði farið mjög vel fram.
Á Akureyri var síður en svo
meira um árekstra og önnur
óhöpp en um venjuiega helgi og
engin afskipti þurfti að hafa af
neinum manni vegna hátíðar-
haldanna, að sögn lögreglunnar.
Sömu sögu var að hafa á
Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og
Húsavík, allt fór vel fram. A
öllum þessum stöðum voru hátíð-
arhöldin með nokkuð hefð-
bundnu sniði og veðrið lék við
menn. - yk.
halda nauðsynleg námskeið.
Haraldur sagði ekki ljóst með
framhald málsins; um það yrði
tekin ákvörðun í hreppsnefnd á
næstunni.
Fundur var haldinn í hrepps-
néfnd Hrafnagilshrepps í
gærkvöld. Þar var ákveðið að
ganga til fundar við ráðamenn
hitaveitunnar til að freista þess
að finna farsæla lausn á þessu
máli, „en við munum standa fast
á rétti okkar,“ sagði Haraldur
Hannesson í morgun.
Hreinn Pálsson, bæjarlögmað-
ur, sagði í samtali við blaðið í
morgun, að fyrirhugaður fundur
deiluaðila væri fagnaðarefni og
vonandi fyndist þar farsæl lausn
á þessu máli, því í rauninni væri
það eina skynsamlega leiðin í
þessu máli. Wilhelm V. Stein-
dórsson, hitaveitustjóri sagðist
ekki hafa kynnt sér dóminn og
vildi því ekki tjá sig um þetta mál
að svo stöddu. - GS
Mynd: KGA
Sláttur
hafinn í
Eyjafirði
Sláttur er hafinn í Eyjafirði. Á
bæjunum Hrafnagili og
Hvammi í Hrafnagilshreppi
hófst sláttur fyrir helgina.
„Við byrjuðum seinna í fyrra-
sumar,“ sagði Hjalti Jósepsson
bóndi á Hrafnagili. „Við þurftum
að bjarga þessu vegna þess að
það var roðamaur í þessu hjá
okkur. Annars held ég að sláttur
fari að byrja hvað líður,“ sagði
Hjalti. Han'n sagði sprettu sæmi-
lega og líklega yrðu bændur al-
mennt farnir að slá um og upp úr
næstu helgi. - mþþ
Ekiðá
piltá
reiðhjóli
- Vitni vantar
Um kl. 10.30 að morgni 17.
júní var ekið á pilt á reiðhjóli
er hann var á leið vestur yfir
gangbraut við gatnamót GÍer-
árgötu og Gránufélagsgötu.
í sama mund og pilturinn er að
fara yfir gangbrautina er bíl ekið
norður Glerárgötu og lendir
hann á drengnum. Bílstjórinn
stöðvaði ekki bifreiðina heldur
hélt áfram ferð sinni eins og ekk-
ert hefði í skorist. Talið er að um
fólksbíl hafi verið að ræða, rauð-
an eða rauðbrúnan. Ef einhverjir
hafa orðið vitni að atburði þess-
um eru þeir vinsamlegast beðnir
að láta rannsóknarlögregluna á
Akureyri vita. - mþþ
Skyggir fyrirhuguð bygging Hótels KEA á kirkjuna?:
„Fólki er sárt um þennan stað“
„Það eru skiptar skoðanir um
þetta meðal þeirra sem standa
framarlega í kirkjunnar
málum. Þetta er staður sem er
áreiðanlega öllum kær, stall-
arnir og útsýnið upp að kirkj-
unni og mér finnst að það megi
ekki skemma það neitt,“ sagði
Birgir Snæbjörnsson sóknar-
prestur á Akureyri, aðspurður
um hans afstöðu til fyrirhug-
aðrar viðbyggingar Hótels
KEA til vesturs.
Hugmynd stjórnar Hótels
KEA er að byggt verði við hótel-
ið, 15 metra í vestur og upp í
sömu hæð og núverandi bygging
nær. Teikningar af þessu voru
lagðar fyrir bygginganefnd sem
sendi þær skipulagsnefnd til um-
sagnar. Skipulagsnefnd hafði
ekkert við þær að athuga og sendi
þær til baka til bygginganefndar
sem enn hefur ekki afgreitt þetta
mál.
„Það er ráðgert að gera upp
tröppurnar og gera þær mjög fal-
legar. Pað á að setja steina eins
og eru í göngugötunni á pallana
og klæða tröppurnar að framan
með íslensku grjóti. Mér finnst
það hafa lítinn tilgang ef maður
á svo að ganga undir húsvegg
helminginn af leiðinni," sagði
Birgir og sagðist telja að fólki í
bænum væri sárt um þennan stað.
Þórgnýr Þórhallsson, formaður
stjórnar hótelsins var spurður
álits á því hvort þessi viðbygging
myndi breyta eða skemma eitt-
hvað þessa táknmynd fyrir Akur-
eyri sem kirkjan og stallarnir
óneitanlega eru.
„Hún náttúrlega hlýtur að
koma til með að breyta henni að
einhverju leyti, en hvort það
er svo mikið að það réttlæti það
að lagst sé gegn þyggingunni
hlýtur að vera misjafnt mat
manna. Það er alveg klárt mál að
allar byggingar og mannvirki
hljóta að breyta umhverfinu eitt-
hvað og skyggja á eitthvað. T.d.
skyggir Alþýðuhúsið nýja gjör-
samlega á kirkjuna frá ákveðnu
sjónarhorni. Ef þú ekur eftir
Glerárgötunni muntu sjá að þessi
viðbygging mun fráleitt skyggja
á kirkjuna en ef þú stendur á
horninu við suðurenda göngu-
götunnar muntu sjá lengri hús-
vegg en nú er. Það er eini munur-
inn," sagði Þórgnýr. - yk.
Em Kröflueldar dauðir?
Landris á Kröflusvæðinu var
ekkert frá áramótum til maí-
loka, að sögn Ármanns Pét-
urssonar á skjálftavaktinni í
Mývatnssveit.
Nýlega voru ferðamenn var-
aðir við því í blöðum að Leir-
hnjúkur og svæðið næst honum
væri enn hættusvæði og því var
Ármann spurður hvort menn
óttuðust gos. Hann sagði svo
ekki vera á meðan land væri
ekki risið hærra en raun ber
vitni en hins vegar væri verið að
minna á það að vel gæti dregið
til einhverra tíðinda enn á þessu
svæði þó að menn séu nú að
vona að þetta sé búið.
-yk.
STÚDENTA-
GJAFIR
í MIKLU
ÚRVALI
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
1 AKUREYRI
T
r
V/Zá
Litmynda-
framköllun