Dagur - 19.06.1985, Blaðsíða 9
19. júní 1985 - DAGUR - 9
Þórsarinn Siguróli Kristjánsson og Grímur Sæmundsson Valsari taka hér létta hliðarsveiflu sl. föstudagskvöld.
Mynd: KGA
KA nýtti
færin illa
- náði aðeins jafntefli gegn UMFN
KA fékk lið Ungmennafélags
Njarðvíkur í heimsókn á laug-
ardaginn í íslandsmótinu í
knattspyrnu, 2. deiid. Þrátt
fyrir að KA-menn ættu mun
meira í leiknum náðu þeir að-
eins jafntefli og voru raunar
heppnir að tapa ekki ieiknum
þegar Njarðvíkingar skoruðu
mark rétt fyrir leikslok sem
dæmt var af vegna rangstöðu.
KA var meira með boltann og
sótti stíft en tókst þó ekki að
koma boltanum í mark andstæð-
inganna fyrr en um 5 mín. fyrir
leikhlé. Þá átti KA hornspyrnu,
eina af fjölmörgum, og boltinn
barst fyrir fætur Erlings Krist-
jánssonar sem skoraði örugglega.
Rétt fyrir leikhlé lenti Þorvald-
ur í marki KA í slæmu samstuði
við einn Njarðvíkinganna og varð
Njarðvíkingurinn að fara af leik-
velli vegna meiðsla.
í seinni hálfleik átti KA mörg
færi, líkt og í þeim fyrri, en mis-
tókst alltaf að skora. Á 27. mín.
seinni hálfleiks átti hins vegar
Haukur Jóhannesson Njarðvík-
ingur góðan sprett þar sem hann
lék á varnarmenn KA, hljóp upp
með boltann og skoraði. Fleiri
urðu mörkin ekki og lauk
leiknum því með jafntefli. -yk.
Ospektir áhorfenda
- settu slæman svip á leik Þórs og Vals
Leikur Þórs og Vals í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu,
sem fram fór á Akureyrarveili
á föstudaginn, verður mönnum
varla minnisstæður vegna þess
að þar hafi verið leikin góð
knattspyrna, heldur frekar
vegna slæmrar hegðunar
áhorfenda.
Leikurinn hófst með stífri sókn
Þórsara sem sóttu mun meira
fyrstu 15 mínútur leiksins. Þeir
uppskáru þó í öfugu hlutfalli við
það því Valur átti fyrsta mark
leiksins. Einn Valsmanna fékk
stungu inn í teiginn og renndi
boltanum í Þórsmarkið, framhjá
markmanninum. Það sem eftir
lifði fyrri hálfleiks var leikur lið-
anna nokkuð jafn og lítið um góð
færi. Þórsarar virtust þó hafa eitt-
hvað meira með boltann að gera
en gekk mjög erfiðlega að kom-
ast í gegnum vörn Vals.
Snemma í seinni hálfleik barst
boltinn inn í vítateig Valsmanna,
einn Þórsari stökk upp og ætlaði
að skalla en var hrint og Óli Óls-
en dómari dæmdi víti. Jónas Ró-
bertsson skoraði örugglega úr
vítinu og var þá staðan orðin
jöfn. Skömmu síðar náði Bjarni
Sveinbjörnsson að komast með
boltann einn inn fyrir vörn Vals,
lék á markmanninn og skoraði.
Staðan orðin 2:1 Þór í vil.
Þá kemur að þætti áhorfenda.
Einum áhangenda Vals tókst
ekki að hemja gremju sína yfir
marki Bjarna og henti gosflösku
langt inn á völlinn. Upp úr því
urðu einhverjar stympingar í
stúkunni sem leiddu til þess að
lögreglan fjarlægði þann sem
kastað hafði glerinu. Hópur
áhangenda Vals fylgdi liðinu
norður og var ölvun áberandi í
þeirra hópi, svo og meðal heima-
manna. Vonandi er þessi atburð-
ur ekki merki um það sem koma
skal heldur fremur undantekning
sem ekki verður endurtekin.
Nokkur harka færðist í leik lið-
anna undir lokin og fengu tveir
leikmenn, hvor úr sínu liði gult
spjald þegar 15 mín. voru til
leiksloka. Rúmum 5 mín. fyrir
leikslok lenti svo tveim leik-
mönnum saman með þeim afleið-
ingum að báðir voru reknir af
velli.
Ekki voru skoruð fleiri mörk
og sigraði Þór því með 2 mörkum
gegn 1, sem eru nokkuð sann-
gjörn úrslit miðað við gang leiks-
ins. -yk.
Coca-Cola-golf:
Sigurður Ringsted sigraði
- Magnús Karlsson sópaði til sín aukaverðlaunum
Siguröur Ringsted spilaði ákaf-
lega vel á Coca-cola mótinu í
golfí, sem haldið var á Jaðars-
velli um síðustu helgi. Sigurður
bar sigur úr býtum í keppni án
forgjafar. I keppni með forgjöf
sigraði Sigvaldi Torfason og í
drengjaflokki vann Magnús H.
Karlsson.
Það voru alls tæplega 50 kylf-
ingar sem tóku þátt í mótinu. í
öðru sæti án forgjafar varð Héð-
Þór-Víðir á
föstudag
Næstkomandi föstudagskvöld
klukkan átta fá Þórsarar í heim-
sókn Víði úr Garði. Leikur lið-
anna verður á aðalleikvanginum
og má búast við spennandi leik.
KGA
inn Gunnarsson, eftir að hafa
háð spennandi bráðabana við
Þórhall Pálsson, sem varð í
þriðja sæti. Með forgjöf varð í
öðru sæti Jónína Pálsdóttir og í
þriðja sæti Árni Friðriksson, sem
háði bráðabana við Guðna
Jónsson.
Staðan
Staöan í 1. og 2. deild er sem hér FH 5 113 2-8 4
segir eftir leiki helgarinnar. Víkingur 5 10 4 4-9 3
1. deild: Víðir 5 10 4 5-14 3
Þór-Valur 2:1
Víðir-Fram 3:4 2. deild:
FH-Akranes 0:3 Breiðablik 4 3 0 1 11-5 9
KR-Víkingur 2:1 ÍBV 4 2 2 0 8-4 8
Þróttur-ÍBK 1:0 KS 4 2 11 7-4 7
Fram 5 4 10 14-7 13 ÍBÍ 4 2 1 1 6-3 7
Akranes 5 3 1 1 12-3 10 Völsungur 4 2 0 2 6-7 6
Þróttur 5 3 0 2 6-3 9 KA 3 111 6-4 4
Þór 5 3 0 2 8-7 9 Njarövík 4 12 1 2-3 4
Valur 5 2 1 2 9-7 7 Fylkir 3 0 2 1 2-3 2
Keflavík 5 2 12 7-7 7 Skallagrímur 4 0 2 2 3-9 2
KR 5 1 3 1 5-7 6 Leiftur 4 0 13 1-10 1
í drengjaflokki var Magnús H.
Karlsson í nokkrum sérflokki og
fór með sigur af hólmi. Hann
vann einnig mörg aukaverðlaun,
t.d. fyrir að slá flest högg á 3.
braut og fyrir að eiga lengsta
„drive“ið. - KGA
Lögreglan áttí í smá erfiAieikum við að skakka leikinn og færa í burtu æstan stuðningsmann
Vais, þann sem kastaði flöslomni inn á völlinn. Á mcðan var leikurinn stöðvaður og tafðist
þannig um nokkrar mínútur. Mynd: KGA
Næstu leikir í 2. deild
Næsta umferð í 2. deild verður leikin á laugardag og sunnudag. Á
laugardaginn fá Völsungar Skallagrím frá Borgarnesi í heimsókn
og IBÍ kemur til Ólafsfjarðar til að leika við Leiftur. Á sunnudag-
inn fer KA til Reykjavíkur að leika gegn heimamönnum þar.
Fylkir og ÍBV keppa í Reykjavík á laugardaginn. - yk.
Fyrsta stig Leifturs
- í leik gegn ÍBV
Leiftur frá Ólafsfirði náði í sitt fyrsta stig í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu, 2. deild í ár, með jafntefli gegn ÍBV á útivelli um helgina.
Ólafur Jónsson í Vestmannaeyjum sagði að ÍBV hefði átt ívið
ineira í leiknum lengst af og skoraði Vestmanneyingurinn Ólafur
Árnason fyrsta mark leiksins á 25. mín. fyrri hálfleiks. Um miðjan
seinni hálfleik skoraði Hafsteinn Jakobsson jöfnunarmark Leifturs
og eftir það hefði leikurinn getað farið á alla vegu. „Þeir komu á
óvart. Þetta eru sterkir strákar og vaskir og ég held að þeir hljóti
að komast eitthvað áfram,“ sagði Ólafur. - yk.
5 gul spjöld
- í leik KS og Völsungs
KS og Völsungur léku á Siglufirði á laugardaginn og lauk leiknum
með sigri KS, 1:0. Runólfur Birgisson á Siglufirði sagði að þetta
hefði verið harður og ódýr leikur. Marktækifæri mörg en illa nýtt.
Hörður Júlíusson skoraði eina mark leiksins í byrjun seinni hálf-
leiks. Til marks um hörkuna má nefna að 5 gul spjöld voru gefin í
leiknum en þó sagði Runólfur að hann hefði verið nokkuð góður.
vk.
KA-KS:
Bikarleikur í kvöld
í kvöld kl. 20.00 verður mikill baráttuleikur á Siglufirði. Þá mætast
KA og KS í Bikarkeppni KSÍ og berjast örugglega hart um sigur.
Það lið sem sigrar heldur áfram í 16 liða úrslit. - yk.