Dagur - 19.06.1985, Qupperneq 12
ONY-FLEX
VATNSKASSAHOSUR
§
a
s
i
«
Konur á Akureyri:
Gróðursetja
sjö þúsund
plöntur í dag
„Takmark okkar er að gróður-
setja eina plöntu fyrir hverja
konu í bænum og þetta er til-
valið verkefni fyrir kvenlegg
hverrar fjölkyldu,“ sagði Ingi-
björg Auðunsdóttir, forsvars-
maður trjáplöntuhóps, en hóp-
urinn hóf gróðursetningu um
sjö þúsund trjáplantna í morg-
un kl. 9 og fyrirhugað er að
halda áfram tii kl. 21 í kvöld.
Er hér annars vegar um að
ræða aðgerðir í tilefni af lokum
kvennaáratugar og hins vegar er
þess minnst að sjötíu ár eru liðin
frá því að konur öðluðust kosn-
ingarétt og kjörgengi, en það var
19. júní 1915.
„Við sendum lista inn á vinnu-
staði þar sem konur sem þátt ætla
að taka í þessu verkefni skrifuðu
sig og borguðu fyrir plönturnar.
Þessi söfnun gekk mjög vel og
sýndu konur mikla og breiða
samstöðu. Hér er á engan hátt
um pólitískt starf að ræða, í
þessu verkefni taka þátt konur á
öllum aldri, úr ólíkum starfs-
greinum og með mismunandi
áhugamál," sagði Ingibjörg.
Fyrirhugað er að gróðursetja
sjö þúsund plöntur, en ef af-
gangur verður af peningum verð-
ur honum varið til kaupa á fleiri
plöntum og þær gróðursettar á
útivistarsvæðum Akureyringa.
í kvöld kl. 22 hefst kvöldvaka
í Kjarnaskógi í umsjá Kristjönu
Jónsdóttur og verður þar boðið
upp á tónlist, söng, upplestur,
leiki og einnig verður kveiktur
varðeldur. Viðri ekki til útivistar
verður kvöldvakan flutt í Dyn-
heima.
Vildi Ingibjörg hvetja allar
konur til að koma inn í Kjarna-
skóg í dag og taka þátt í gróður-
setningunni, en hægt er að kaupa
plöntur þar í dag og kvöld, þó
svo konur hafi ekki áður skrifað
sig á lista. - mþþ
Það var sannkallað knattspyrnumannabrúðkaup á laugardaginn. Þá gengu í hjónaband Þórunn Sigurð-
ardóttir og Sigurður Pálsson, sem eru leikmenn með meistaraflokkum Þórs í knattspyrnu. Félagar
þeirra í Þór hylltu brúðhjónin þegar þau gengu úr kirkju og síðan var ekið í einni hersingu um götur
bæjarins, með tilheyrandi dósaglamri.
Samningar náðust
- ASf og VSf gerðu samning um 14,5% meðaltalshækkun til áramóta
Laust fyrir kl. 13 á laugardag-
inn voru undirritaðir samning-
ar milli Alþýðusambands Is-
lands og Vinnuveitendasam-
bandsins, sem gilda fram að
næstu áramótum. Samningarn-
ir fela í sér launahækkanir á
bilinu 12,3%-15,1%, en með-
altalshækkunin mun vera því
sem næst 14,5%. Þannig
hækka laun þeirra lægst
launuðu um rúmar 1.300
krónur, úr rúmlega 14 þús. kr.
í rúmlega 15.300 kr.
Þeir sem eru með lágmarks-
tekjur fá 9% launahækkun strax,
en þeir sem eru neðan við 25.
launaflokk fá 7,5% hækkun og
þeir sem eru þar fyrir ofan fá 5%
hækkun við gildistöku samnings-
ins. 1. ágúst nk. hækka allir
launþegar innan ASÍ um 2,4% og
1. október aftur um 4,5%.
í samningunum er reiknað
með að verðlagsþróun haldist
innan ákveðinna marka. Miðað
er við að vísitala framfærslukostn-
aðar verði innan við 144 stig 1.
ágúst, 149 stig 1. október og 1.
desember verður hún að vera
innan við 154 stig. Þegar fram-
færsluvísitalan var reiknuð út um
sl. mánaðamót var hún 137,36
stig.
í samningunum er einnig gert
ráð fyrir því, í samkomulagi milli
Verkamannasambands Islands
og VSÍ, að komið verði á nefnd
til að fjalla um leiðir til að bæta
kjör fiskvinnslufólks. Þessi nefnd
á m.a. að skilgreina starfsheitið
„sérþjálfað fiskvinnslufólk“ og
stuðla að atvinnuöryggi fisk-
vinnslufólks. Steingrímur Her-
mannsson. forsætisráðherra, gaf
út yfirlýsingu til að stuðla að
framgangi þessara mála. Þar
áréttar Steingrímur, að hann
muni beita sér fyrir því innan
ríkisstjórnarinnar að hún hlutist
til um að bæta kjör fiskvinnslu-
fólks, m.a. með tilstyrk atvinnu-
leysistryggingasj óðs.
Eftir er að fjalla um þessí
samninga í félögunum, en reikn-
að er með að þeir verði sam-
þykktir.
Framfærsluvísitalan:
Mælir 25% verðbólgu
síðustu 3 mánuði
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í júníbyrjun
1985. Reyndist hún vera
137,36 stig, eða 1,85% hærri
en í maíbyrjun 1985.
Af þessari hækkun vísitölunn-
ar stafa 0,7% af hækkun mat-
vöruverðs (þar af 0,5% vegna
hækkunar á verði landbúnaðar-
afurða), 0,2% vegna hækkunar
á verði tóbaks og áfengis og
0,95% vegna hækkunar ýmissa
annarra vöru- og þjónustuliða.
Hækkun vísitölunnar um
1,85% frá maí til júní svarar til
um 24,6% árshækkunar. Hækk-
unin undangengna þrjá mánuði
er 5,73% og svarar til 25% árs-
hækkunar, en hækkunin undan-
farna tólf mánuði er 29,8%.
í dag og á morgun má búast við
svipuðu veðri og verið hefur
undanfarna daga á Norður-
landi. Bjart framan af deginum
en skýjað með köflum og skúrir
vestan til síðdegis. Hitastig á
bilinu 12-16 gráður, samkvæmt
upplýsingum veðurstofunnar í
morgun.
Um helgina er búist við norð-
austanátt sem væntanlega
bindur þá enda á blíðuna sem
við höfum búið við að undan-
förnu.
# Hver gerir
betur?
Það þótti mikið afrek á sinum
tíma, þegar Stefán Helgason
bifreiðastjóri á BSO, eða
„Stebbi á áttunni" eins og
kappinn er oftast nefndur, ók
á sex tímum til Reykjavíkur.
Ástæðan fyrir þeim kapp-
akstri mun hafa verið sú, að
Stebbi þurfti að skila Ævari
Kvaran í tæka tíð suður í
Þjóðleikhús til að hann gæti
leikið í kvöldsýningu. Það
tókst, en Ævari mun hafa ver-
ið stirt um mál fyrstu atriði
sýningarinnar. En nú eru
liðnir áratugir síðan þetta
gerðist. Leiðin milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur er orð-
in beinni, breiðari, sléttari
og styttri en var. Þar að
auki eru bílarnir orðnir
öflugri. Enda mun hraðamet-
ið milli Akureyrar og Reykja-
víkur vera þrír tímar og tíu
mínútur. Og það sem meira
er; þetta mun vera satt. Öku-
maðurinn mun hafa iegið í
um 200 km hraða af og til,
enda veitti ekki af, því hann
hefur þurft að halda um 150
km meðalhraða til að ná
þessum tíma. Og bíllinn er
enginn venjulegur alþýðu-
vagn. Farþegi í þessari þotu-
ferð hefur ekki verið mælandi
eftir lendinguna!
# Einaðaustan
Þessi er að austan. Hún er
um vörubflstjóra, sem einnig
er bóndi, og vegagerðarverk-
stjóra, sem einnig mun vera
oddviti í sinni sveit. Þeir voru
úti að aka og komu þar að,
sem gera þurftí lagfæringar.
- Æ, skrepptu nú út og kipptu
þessu f liðinn, þú hefur svo
gott vit á þessu, sagði vega-
verkstjórinn. Nel, það er
betra að þú gerir þetta, hér
þarf nefnilega ekkert vit,
svaraði vörubflstjórinn.
# Af umhyggju-
semi
Við hér á Degi erum þekkt fyr-
ir umburðarlyndi, væntum-
þykju og sér f lagi snoturt
hjartalag. Þess vegna ætlum
við ekkert að minnast á „út-
varpið okkar“ f þessum dálki
■ dag.
# Því ekki
Nú styttist í „hundadagahá-
tíðina“ á Akureyri. Ein uppá-
koman á hátíðinni er að
sleppa iaxi f Leirutjörnina og
selja sfðan veiðileyfi. Þetta er
bráðsnjöll hugmynd, en því
ekki að framlengja veiðina?
Er ekki möguleiki á að rækta
fisk í tjörninni og gera hana
að eftirsóttum veiðistað. Þvi
ekki að reyna?