Dagur - 12.08.1985, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 12. ágúst 1985
87. tölublað
Unnið að endurbótum á Sigurhæðum
Kópasker:
Ákveðið að
gera átak
í gatnagerð
á næsta ári
„Þetta er frekar lítið fram-
kvæmdaár hjá okkur á Kópa-
skeri. Það er aðeins verið að
vinna við holræsakerfið og
einnig við skólabygginguna. A
næsta ári ætlum við hins vegar
að gera verulegt átak í gatna-
gerð,“ sagði Kristján Ár-
mannsson oddviti á Kópaskeri
í samtali við Dag.
Að sögn Kristjáns er atvinnu-
ástand gott á Kópaskeri. Tveir
bátar eru á djúprækju, en að auki
kemur rækja frá Húsavík til
vinnslu hiá rækjuverksmiðjunni
Sæbliki. Á sláturhúsinu er verið
að auka framleiðslu á unnum
kjötvörum og þar starfar eitthvað
af fólki.
Aðeins eitt íbúðarhús er í
byggingu á Kópaskeri, en þar er
skortur á leiguhúsnæði. Nokkuð
er um að fólk leiti eftir atvinnu á
Kópaskeri, en þar er nánast ekk-
ert framboð á leiguhúsnæði.
Aðspurður um ferðamanna-
straum til Kópaskers sagði Krist-
ján að ekki væri mikið um þá í
sumar, „en samt meira en verið
hefur á undanförnum árum. Hér
er ekki mikil þjónusta rekin fyrir
ferðamenn, en þó'er í sumar rek-
ið kaffihús í skólanum og það
hefur gengið þokkalega,“ sagði
Kristján. - mþþ
Viðir hússins eru illa farnir og
hverja einustu spýtu þarf Gústaf að
smíða samkvæmt þeim gömlu. Hér
er hann með eina sem er illa farin,
eins og sjá má.
Úr þessu herbergi er ailri starfsemi verksmiðjunnar stjórnað með aðstoð
stórrar tölvu. Mynd: -yk.
Steinullarverk-
smiðjan prufukeyrð
- Framleiðsla í fullan gang í næsta mánuði
Á föstudag og laugardag voru
vélar Steinullarverksmiðjunn-
ar á Sauðárkróki prófaðar í
fyrsta sinn og látnar framleiða
steinull.
Reiknað er með að framleiðsla
hefjist fyrir alvöru í næsta mán-
uði. Starfsmenn verksmiðjunnar
eru um 30 talsins og verður unnið
allan sólarhringinn á vöktum við
framleiðsluna frá mánudags-
morgni til fimmtudagskvölds í
hverri viku. Porsteinn Þorsteins-
son framkvæmdastjóri verk-
smiðjunnar kveðst vonast til að
verksmiðjan muni ná undir sig
inestum hluta markaðar fyrir
húsaeinangrun á íslandi, enda
verði steinull frá Steinullarverk-
smiðjunni ódýrari en innflutt
steinull og a.m.k. í sumum tilfell-
um ódýrari en plast. -yk.
Lögregla:
Innbrot,
bílstuldur
og
ávísanafals
Aðfaranótt laugardags var
brotist inn í Gullsmíðaverk-
stæði Sigtryggs og Péturs en
engu var stolið þar sem þjófur-
inn lagði á flótta þegar þjófa-
varnarkerfi fór í gang. Hann
náðist skömmu síðar og játaði
á sig innbrotið daginn eftir.
í framhaldi af því upplýstust
nokkur innbrot frá því í síðasta
mánuði og eru nú flest innbrot
sem framin hafa verið í sumar
upplýst, að sögn Daníels Snorra-
sonar rannsóknarlögreglumanns.
Aðfaranótt laugardagsins var
einnig stolið bíl, nýjum Subaru,
og fannst hann daginn eftir. Þjóf-
arnir reyndust vera tveir drengir,
14 og 15 ára gamlir og höfðu þeir
verið undir áhrifum áfengis. Peir
höfðu reynt að stela öðrum bíl en
komu honum ekki í gang og vill
lögreglan benda fólki á að skilja
ekki við lykla í bílum sínum og
læsa þeim þar sem bæði bílþjófn-
aðir og stuldir úr bílum hafa færst
nokkuð í vöxt.
Að undanförnu hefur verið
óvenju mikið um ávísanamisferli
og ávísanafalsanir. -yk.
Sigurhæðir, hús Matthíasar
skálds Jochumssonar, er að
hluta til í eigu Akureyrarbæjar
og þar er sem kunnugt er Matt-
híasarsafn, til sýnis almenn-
ingi. Húsið er hins vegar í
fremur bágbomu ástandi,
„hreinlega til skammar“ eins
og einn viðmælenda Dags orð-
aði það. Nú eru hafnar endur-
bætur á húsinu og hefur Gústaf
A. Njálsson annast þær ásamt
Sigurði Gústafssyni. Á fjár-
lögum Akureyrarbæjar var
veitt 200 þúsund krónum til
verksins.
„Það er augljóst að það verður
lítið gert fyrir þá upphæð," sagði
Gústaf í samtali við Dag. „Við
erum búnir að vinna að endur-
bótum í rúmlega hálfan mánuð.
Þetta er ákaflega seinlegt og
tímafrek vinna, við erum að
ljúka við að endurbyggja tröpp-
urnar, þær voru alveg ónýtar.
Hér er eiginlega um hreina mód-
elsmíði að ræða, ég þurfti að
renna nýja pila eins og þeir
gömlu voru og aðrir hlutir þurftu
líka að vera í sinni upphaflegu
mynd. Húsið þarf að halda öllu
sínu upphaflega útliti,“ sagði
Gústaf.
Samkvæmt bréfi frá mennta-
málaráðuneytinu dags. 15. feb.
1978, eru Sigurhæðir, ásamt fleiri
húsum á Akureyri, friðaðar skv.
þjóðminjalögum í B-flokki, sem
þýðir að ytra útlit hússins verður
að halda sínu upphaflega formi.
„Við ætlum að smíða nýja glugga
í veröndina og þeir eru allir smá-
rúðóttir þannig að þar er tölu-
verð vinna framundan,“ sagði
Gústaf. Reyndar er veröndin öll
að síga og sagðist Gústaf ætla að
lyfta henni. Þegar tíðindamaður
Dags skoðaði húsið mátti sjá að
það er sums staðar svo illa farið
af fúa að hreinlega væri hægt að
„taka það í nefið.“ „Það þyrfti
Gústaf A. Njálsson við Sigurhæðir. „Gífurlega tímafrek vinna við húsið.“
Myndir: KGA
einhver hundruð þúsunda króna
til að hægt væri að gera við húsið
svo vel færi og sómi væri að,“
sagði Gústaf. - KGA
Húnavatnssýslur:
Utlit fyrir
góðan heyfeng
„Ég held að heyskapur sé víð-
ast langt kominn og það eru
margir búnir,“ sagði Torfi
Jónsson á Torfalæk í Húna-
vatnssýslu, aðspurður um
heyskaparhorfur í sýslunni.
Sagði Torfi að heyskapur hefði
gengið vel og óþurrkar hefðu
ekki hrjáð bændur neitt að
marki. Nokkrir slægju há og ættu
það eftir eða væru að því núna.
Heyskapur hófst um mánaða-
rnótin júni-júli og þau tún sem
fyrst voru slegin þá eru slegin aftur
núna og var þá borinn áburður á
þau í millitíðinni.
„Mér sýnist að hey verði góð í
ár. Það spratt að vísu seint en
núna um mánaðamótin var full-
sprottið og það er góður af-
rakstur,“ sagði Torfi að lokum.
- HJS
„Hrein módelsmíði"
- segir Gústaf A. Njálsson, sem vinnur að endurbótunum