Dagur - 12.08.1985, Side 3
12. agúst 1985 - DAGUR - 3
11 8i!l
„Sá stóri fer
beint í reyk“
- Glaðbeittir veiðimenn við Laxá teknir tali
Það var hægur sunnan and-
vari, sól skein í heiði og menn
í óða önn að snúa og hirða hey
eftir óþurrkana í júlímánuði.
En ekki voru samt allir á kafí í
heyskap. í veiðikofanum rétt
neðan við Laxárvirkjun var
kona að klæða sig úr bússum
allmiklum. Við ákváðum að
renna heim að veiðikofanum
og taka þessa að því er okkur
sýndist kjarnorkukonu í smá
viðtal.
„Nei, nei, ég er ekki ein, við
erum fimm að veiða hérna,“
sagði konan og kvaðst heita Ólöf
Sveinsdóttir. Aðrir sem með
voru í ferðinni voru eiginmaður
hennar Jón Óskarsson, systir
Ólafar, Kristín Sveinsdóttir,
hennar maður Björn Arason og
dóttir þeirra Ýr, 9 ára gömul.
„Björn veiddi stóran lax í
morgun, þeir trúðu ekki pundar-
anum sem þeir voru með, en
hann sýndi 20 pund. Þeir héldu
hann nokkuð þyngri og fóru því
upp í virkjun að láta vigta laxinn
á örugga vigt.“
Að þessum orðum slepptum
rennir í hlaðið heiðblár bíll og
voru þar aðrir veiðimenn ferðar-
innar.
„Jú, jú, reyndist 22 pund,“
sagði veiðimaðurinn Björn Ara-
son og ekki laust við að nokkurs
stolts gætti í röddinni.
Björn var búinn að landa
tveimur löxum frá því klukkan
sjö um morguninn, en hinn var
nokkru minni. Aðrir höfðu ekk-
ert veitt, en daginn áður lönduðu
þau samtals 7 silungum.
„Við grilluðum 5 þeirra í gær
og borðuðum með bestu lyst.
Þeir eru algjört æði svona ný-
veiddir og beint á grillið," sagði
Kristín.
Björn var að bjástra við að
koma aflanum í hús og það var
svona rétt að hann gat valdið
þeim stóra. „Hann er svo stór
þessi að við setjum hann í reyk,“
sagði Björn óg var greinilega far-
in að sjá þann stóra í smærri ein-
ingum á diski fyrir framan sig.
Ummnamm!
Og vel á minnst, matur. Blaða-
menn voru orðnir í þörf fyrir eitt-
hvað svoleiðis og það hefur sjálf-
sagt sést á þeim, því boðið var
upp á eitthvað í svanginn þegar
lokið hafði verið við að koma afl-
anum fyrir.
„Við vorum að versla okkur
matvöru og keyptum svo mikið
að við getum ekki klárað það fyr-
ir kvöldið." Blaðamenn voru til í
að hjálpa veiðimönnum að
grynnka á matarbirgðum. Aldrei
að vita hversu mikill aflinn yrði
og kannski ekki pláss fyrir matar-
afganga.
„Fáið ykkur þrumara, alveg
glænýr,“ sagði Kristín og það
voru ekki ýkjur, því brauðið var
glóðvolgt.
„Svo erum við með öndvegis
hundadagaöl. Jón minn skrepptu
snöggvast og náðu í nokkrar
flöskur handa okkur," sagði Ólöf
glaðbeitt. Og Jón tölti léttur af
stað.
Á milli bita spurðum við hvort
það væri svolítið gaman að veiða.
„Já, það er mjög gaman, en
dálítið erfitt," sagði Jón.
„Já, það er sko erfitt,“ sagði
Ýr sem var uppgefin eftir gær-
daginn. Enda er árla risið og
seint gengið til náða. Að sögn
veiðimanna höfðu þau vaknað
korter yfir 6 og byrjað var að
veiða klukkan 7 og ekki gengið til
náða fyrr en um miðnætti. Þau
kváðust hafa komið í veiðikofann
síðastliðinn sunnudag og fyrirhug-
að var að dvelja í 2 sólarhringa.
„Gefðu könnunni eina gusu,
við verðum að fá okkur smá
kaffitár á eftir,“ sagði Kristín við.
Björn.
Eftir að hafa satt sárasta
hungrið bauð Jón upp á toppís og
það voru ánægðir veiðimenn sem
sátu úti á verönd og sleiktu ísinn
og sólskinið. Hvíldu lúin bein og
bjuggust til nýrra átaka. Þau
máttu veiða til klukkan 10 um
kvöldið og það átti að nota tím-
ann vel. Á meðan myndataka var
undirbúin ræddu þau veiðiferð-
ina og sögðu nokkrar góðar
sögur. Nú þurfti ekki að búa til
neina sögu um þann stóra sem
slapp. Sá stóri var þarna í öllu
sínu 22 punda veldi.
Það má víst ekki óska veiði-
mönnum góðrar veiði, en við
þökkuðum góðgerðirnar og
kvöddum. - mþþ/- HJS
'
Blomberq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
m ■ NÝLAGNIR
BkAp sr
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
TjónabíU tíl sölu
Colt 2ra dyra árg. ’82 til sölu. Skemmdur eftir árekstur.
Til sýnis að Glerárgötu 20. Tilboð í bílinn sendist
Sjóváumboðinu, Ráðhústorgi 5, Akureyri fyrir
23. ágúst 1985.
Uppl. gefur Þórarinn í síma 22244.
Ef ekki skaltu líta inn hjá okkur
og líta gripina eigin augum.
54 cm skjár (21,6 tommur).
Hornréttur (ekki rúnnuð horn).
Einnig flatari
skjár og skýrari
mynd en á
eldri gerðum.
SIMI
(96) 21400
Útibú Ólafsfirði.
Hefiir þú heyrt um
sjonvorp
sem seljast eins og
heitar lummur?