Dagur - 12.08.1985, Side 12

Dagur - 12.08.1985, Side 12
Akureyri, mánudagur 12. ágúst 1985 RAFGEYMAR VIÐHALDSFRÍIR VEUIÐ RÉTT í BfLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA Skagafjörður: Flestir bændur hafa lokið heyskap Meirihlutinn hefur lokið hey- skap og það eru flestir að ljúka,“ sagði Sigurður Ingi- marsson bóndi á Flugumýri í Skagafirði. „Þetta gekk stirt í júlí, en fyrir verslunarmannahelgi gerði góðan kafla og það er mjög gott veður núna. Gras er orðið of mikið sprottið og gæðin eru farin að tapast að einhverju leyti.“ Sigurður sagði heyfeng nokkuð góðan og hey ágætt. Frekar lítið sagði Sigurður um að verkað væri í vothey, nema á Skaganum, þar sem svo til eingöngu er þurrkað í vothey. - mþþ Mjöggóð silungsveiði iE»|a- fjarðaránum Jöfn og góð veiði hefur verið í Eyjafjarðaránum það sem af er sumri og fer heldur vaxandi, að sögn Kristjáns frá Djúpalæk, sem er veiðivörður. Fyrir skömmu fengust nokkrir laxar á þriðja svæðinu í Eyja- fjarðará og veiðimenn á neðsta svæðinu hafa orðið varir við þennan eftirsótta fisk. Silungs- veiði hefur verið mikil og jöfn. Þannig fengu tveir menn 35 sjl- unga í Bægisárhyl á einum degi og skömmu áður fengust þar 16 silungar, allir á flugu. Hér var um að ræða væna bleikju. - GS Norðlensk sumarmynd 1985. - KGA S.-Þingeyjarsýslu: Grös eru byrjuð að spretta úr sér - að sögn Stefáns Skaftasonar, ráðunauts „Það hefur mikið áunnist I heyskap undanfarið, þannig að ástandið er ekki mjög dökkt,“ sagði Stefán Skaftason ráðu- nautur í S.-Þingeyjarsýslu I samtali við Dag. Sagði Stefán að á tímabili í sumar hefði ástandið verið dökkt. Hann var spurður hvort einhverjir væru búnir að heyja. „Já, það eru nokkrir, margir eru langt komnir og aðrir u.þ.b. hálfnaðir. Það er mjög misjafnt hvar menn eru á vegi staddir.“ Spretta er góð að sögn Stefáns, en gras er byrjað að spretta úr sér. „Það vill oft verða þannig þegar svona viðrar og menn kom- ast ekki áfram með heyskapinn.“ Við ræddum við Stefán fyrir helgina, en síðan hefur ekki gefið til heyskapar á Norðurlandi, því yfir helgina rigndi uppstyttulítið. Þannig var úrkoman 31,2 mm á Akureyri á laugardag og sunnu- dag og í gær fór úrkoman yfir 20 mm á mörgum veðurathugunar- stöðvum á Norðurlandi. - HJS Grímseyingar íhuga kaup á vindrafstöðvum: er slæmt að geta virkjað vindinn“ „Það ekki í Grímsey eru öll hús hituð með olíu og sömuleiðis er allt rafmagn eyjarskeggja framleitt í díselrafstöð. Fyrir fáum árum var sett upp vindmylla í eynni til að framleiða varma en hún hefur aldrei komist al- mennilega í gang vegna stöð- ugra bilana, að sögn Bjarna Magnússonar hreppstjóra. Fyrir skömmu kom út í eyna danskur sölumaður sem var að kynna Grímseyingum vindraf- stöðvar sem framleiddar eru í Danmörku og er ætlað að hita vatn til húsahitunar með raf- magninu. Að sögn Bjarna reynd- ist vera nokkur áhugi fyrir dönsku vindrafstöðvunum í eynni og er það mál í athugun. „Það er slæmt að geta ekki virkj- að vindinn því nóg höfum við af honum,“ sagði Bjarni. Tvö hús í Grímsey eru nú hit- uð með kælivatni frá díselrafstöð- inni en með því að virkja hitann sem fer út með kælivatninu og pústinu ætti að vera hægt að hita 6-7 hús. Þessi orka er því vannýtt eins og er en stefnt er að því að nýta hana betur. -yk. Það verður áfram norðlæg átt á Norðurlandi og þoku- súld á miðum og annesjum en úrkomulítið inn til landsins, að sögn Guð- mundar Hafsteinssonar á Veðurstofunni. Hiti verður á bilinu 6 til 10 stig og ekki fyrirsjáanleg breyting frá norðanáttinni fyrr en í fyrsta lagi á fímmtudag. # Fáir koma óorði á marga Útíhátíðahelgin er liðin. Ef marka má fréttir fjölmiðla, þá var það óalandi og óferjandi lýður, sem sótti þessar sam- komur. NT sétur þær allar undir einn hatt með fyrir- sögninni: Útihátíðir: Siðlaus- ar samkomur. Síðan er það tíundað grannt f greininni, hvernig „siðlausar samkom- ur“ fara fram. Það er ófögur lýsing og Gróa frá Leiti segir enn verri sögur. - Jeminn, var þetta svona, ekki sá ég það, sagði einn Atlavíkur- gestur, sem las fréttina. Ef- laust er engu logið f um- ræddri frétt, en eru ekki svartir sauðir á öllum stöðum. Það þarf ekki marga slfka til að setja svartan stimpil á eina útihátfð. Hvað með alla hina, sem höguðu sér skikkanlega? Hvað með bindíndismótið í Galtalækjar- skógi, sem var til mikillar fyrirmyndar? Það hefur ekki verið haft hátt um það í fréttum. Það er ekki raunhæft að setja samasemmerki á milli útihátíðar og siðleysis. Með því er verið að dæma ís- lenska æsku á einu bretti. Það er ósanngjarnt. # Fer heimur versnandi? Hér er þó ekki verið að gera lítið úr þeim fréttum, sem sagðar hafa verið af framferði „svörtu sauðanna“ um versl- unarmannahelgina, síður en svo. Alvarlegastar eru fréttir af vaxandi ofbeldi og eitur- lyfjanotkun. Fréttir af slíku eru ekki bundnar við útihátíð- ir, því það líður varla sá dagur, að ekki megi lesa eða heyra um ofbeldi og eitur- lyfjameðferð hérlendis. Slíkt vekur ugg og gegn þessum meinsemdum f þjóðfélaginu þarf að ráðast með vel skipu- lagðri sókn. # Málvöndunar- vísa Talandi um siðleysi er rétt að láta fljóta hér með „málvönd- unarvfsu“ eftir Kristján mál- ara Benediktsson. Hann heyrði sigldan listamann tala um „grúppusex“ sem eina helstu dásemd stórborganna og kvað: Að tala um grúppusex tel ég neyð, sem tæpast er málræktarþáttur. í íslensku heitlr það ringulreið og reynist því flokkadráttur.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.