Dagur - 28.08.1985, Page 9
28. ágúst 1985 - DAGUR - 9
Magni upp í
2. deild?
„Ég tel að við eigum góðan
möguleika á að sigra Einherja,
við höfum unnið alla okkar
heimaleiki í sumar og ég ætla
bara að vona að við Ijúkum
þessu á þann hátt,“ sagði Þor-
steinn Ólafsson þjálfari og
markvörður Magna á Grenivík
er við ræddum við hann um
úrslitaleikinn í 3. deild B sem
fram fer á Grenivíkurvelli á
laugardag kl. 14.
Þar mætast Magni og Einherji
og berjast um það hvort liðið fær
sæti í 2. deild næsta keppnistíma-
bil. Einherja nægir jafntefli í
leiknum til að komast upp en
Magni þarf að sigra. t»að er því
alveg öruggt að það verður ekk-
ert gefið eftir.
„I fyrri leik liðanna sem fram
fór á Vopnafirði varð jafntefli 1:1
og ég tel að þar hafi Einherjar
verið heppnir,“ sagði Þorsteinn.
„Þeir eru hins vegar með betra
lið í dag en það breytir ekki því
að við ætlum okkur að sigra.“
- Eiga þessi lið erindi í 2.
deild?
„Miðað við það sem ég hef séð
í 2. deildinni í sumar tel ég svo
ekki vera. Ég tel hins vegar víst
að ef Magni kæmist upp yrði eitt-
hvað gert í því máli að styrkja
liðið fyrir átökin í 2. deild en
fyrst er nú að vinna leikinn á
laugardag áður en menn fara að
vera með slíkar vangaveltur.“
Asbjörn Björnsson fyrrunt KA-
maður mætir Þórsurum með KR.
KA aegn IBI
- KA ósigrað á heimavelli - Tekst liðinu að leggja ísfirðingana?
Knattspyrnuáhugamönnum á
Eyjafjaröarsvæðinu ætti ekki
að leiðast lífið um helgina sem
í hönd fer. Þrír stórleikir eru á
dagskránni, tveir á Akureyri
og einn á Grenivík.
Sá fyrsti er á föstudagskvöld er
KA fær ísfirðinga í heimsókn og
liðin leika kl. 19. KA er í harðri
baráttu um sæti í 1. deild að ári
en ísfirðingar eru á léttri siglingu
um miðja deild og geta hvorki
fallið né unnið sig upp.
Spennan verður því á leik-
Stigameistaramót í golfi á Akureyri:
Allir þeir
bestu með
Stigameistaramót Islands í
golfi fer fram á Jaðarsvelli á
Akureyri á laugardag og
sunnudag.
Rétt til þátttöku í þessu móti
hafa 16 efstu menn í stigamótum
sumarsins og eru það allir
fremstu kylfingar landsins sem
munu mæta til leiks á Akureyri.
Leikin er holukeppni einn gegn
einum með útsláttarfyrirkomu-
lagi þar til einn stendur uppi sem
sigurvegari.
Þær raddir hafa heyrst að sunn-
anmenn vilji ekki koma norður
til þess að leika þetta mót hér og
bera þeir við að allt of dýrt sé að
koma norður til þess að leika
þetta mót. Aðeins einn Norð-
lendingur verður með í mótinu,
Kristján Hjálmarsson frá Húsa-
vík, en það breytir ekki því að
gamli hugsunarhátturinn að það
sé lengra til Akureyrar frá
Reykjavík en til Reykjavíkur frá
Akureyri virðist enn í fullu gildi.
KR enn heim
án
- Mætir Þór á sunnudaginn
Á sunnudag kl. 14 leika Þór og
KR í 1. deildinni og verður
leikurinn á Akureyri. Geysi-
lega mikilvægur leikur fyrir
Þórsara og reyndar KR-inga
einnig.
KR-ingum hefur vægast sagt
gengið mjög illa í leikjum sínum
á Akureyri undanfarin ár og að-
eins unnið einn sigur hér síðan
hætt var að leika undir merki
ÍBA en það var 1977 gegn Þór.
Árið áður höfðu liðin leikið á
Akureyri í 2. deild og varð þá
jafntefli 3:3. Næst léku liðin 1981
og þá vann Þór 2:1. Þór vann
aftur 1983 með 2:0 og í fyrra með
3:1. KR-ingar eiga því harma að
hefna að þessu sinni en Þórsarar
sem eru í baráttu efstu liða taka
eflaust á öllu sínu til þess að
krækja í stigin þrjú sem í boði
verða.
„Nafnlausi
bikarinn“
mönnum KA sem hafa staðið sig
mjög vel á heimavelli í sumar og
ekki tapað leik þar, en þetta
verður án efa baráttuleikur.
Hin árlega keppni um „Nafn-
lausa bikarinn“ hjá Golfklúbbi
Akureyrar verður á sunnudag, og
hefst kl. 9. Keppendur verða þó
að vera mættir á svæðið kl. 8.45
því samkvæmt reglugerð um
„Nafnlausa bikarinn" verða
keppendur að vera mættir 15
mínútum áður en keppnin á að
hefjast og er þessu fylgt strangt
eftir.
Leiknar eru 18 holur og hefur
þetta mót jafnan verið vel sótt af
kylfingum á Akureyri.
Á morgun er venju samkvæmt
„vélamót“ hjá kylfingum á Akur-
eyri og er skráð út frá kl. 16; Mót
af þessu tagi hafa verið haldin á
fimmtudögum í allt sumar og er
ágóða af þeim varið til vélakaupa
eins og nafnið bendir til.
Úr leik Leifturs og KA á Ólafsfjarðarvclli um síðustu helgi. KA-menn gera þarna harða hríð að marki heimamanna.
Á föstudagskvöld verða ísfirðingar andstæðingar KA. Mynd: KGA
Þórsarar
Garöinum
r
i
„Það er alveg óhætt að segja
að við löbbum ekki í Garðinn
og tökum stigin þar án þess að
hafa fyrir því og ég held að
mínir menn geri sér fulla grein
fyrir því,“ sagði Jóhannes
Atlason þjálfari Þórs er við
spurðum hann álits á leik Víðis
og Þórs í 1. deildinni sem fram
fer í Garðinum í kvöld.
„Við getum alveg gleymt þessu
ef við tökum ekki stigin í þessum
leik,“ sagði Jóhannes og bætti við
að allir leikmenn Þórs sem leikið
hafa að undanförnu væru tilbúnir
í slaginn.
Aðrir leikir í kvöld eru Akra-
nes-Valur, FH-ÍBK, Þróttur-
Víkingur og svo leika KR og
Fram annað kvöld.
Jóhannes Atlason.
Völsungur af
hættusvæðinu
Völsungar björguðu sér af fall-
hættusvæðinu í 2. deild með
2:0 sigri yfir Fylki á Húsavík í
gærkvöld.
Leikurinn var daufur í fyrri
hálfleik en í þeim síðari voru
Völsungar í ham og skoruðu tvö
mörk. Helgi Helgason sem var
besti ntaður vallarins skoraði það
fyrra en Jónas Hallgrímsson það
síðara eftir að Kristinn Guð-
mundsson fyrirliði Fylkis hafði
hreinlega traðkað á honum í víta-
teignum. Fólskulegt brot svo
ekki sé meira sagt því boltinn var
víðs fjarri þegar brotið átti sér
stað.
Völsungar sem fyrr sagði
sloppnir af fallhættusvæðinu og
víst er að KA-menn horfa nú
spenntir til leikja þeirra, en
Völsungur á bæði eftir að leika
gegn ÍBV og Breiðablik.