Dagur - 28.08.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 28.08.1985, Blaðsíða 12
Alltaf vex vöruúrvalið Vinsamlegast komið og skoðið Húsnæðismál framhaldsnema: Útlitið bjartara Hcldur virðist vera að vænkast hagur utanbæjarnemenda í Menntaskólanum á Akureyri, hvað varðar húsnæði í vetur. Sem kunnugt er virtist ekki um auðugan garð að gresja á leigu- markaðinum og þeir nemend- ur sem ekki fá inni á heimavist skólans áttu margir ekki í neitt hús að venda. „Ég held að þetta bjargist, okkur hafa verið boðin allmörg herbergi,“ sagði Sólveig Gunn- arsdóttir skrifstofustjóri Mennta- skólans. Húsnæðismiðlun fram- haldsskólanna á Akureyri aug- lýsti eftir herbergjum fyrir nem- endur skólanna og hafa margir brugðist við og boðið nemendum herbergi til leigu. „f>að kemur varla til þess að nokkur nemandi þurfi að hætta við að koma hing- að í skóla sökum húsnæðisleys- is,“ sagði Sólveig Gunnarsdóttir. A heimavist Menntaskólans munu búa um 150 nemendur, eins og verið hefur undanfarin ár, en utanbæjarnemendur í skólan- um eru um helmingi fleiri. í mötuneyti skólans verða auk vist- arbúa nemendur VMA, en sá háttur var einnig hafður á í fyrra. - KGA Það var heldur rýrt undir þegar rannsóknarblaðamaður Dags kannaði kartöfluuppskeruna. Er við því að búast að þannig verði víðar hjá kartöfluræktendum norðanlands. Mynd: KGA Hljómsveitin Skriðjöklar: Vinnur að videó- mynd um Steina Hljómsveitin Skriðjöklar vinn- ur nú að gerð vídeomyndar við eitt vinsælasta lag sveitarinnar, Steini. Lag sem fjallar um mann sem er þekktur hér á Akureyri og er stundum kall- aður Tóbaks-Steini. „Myndin er tekin hist og her um bæinn, þó mikið í kringum húsið hans Steina og þarna í Inn- bænum. Og ég reikna með að Steini verði sjálfur með í mynd- inni,“ sagði Ragnar Gunnarsson söngvari Skriðjökla. „Ég vil taka það fram að þetta lag er ekki níð um Steina, heldur fjallar um líf hans.“ Auk þess sem tekið verður hér á Akureyri verður bætt inn í myndina atriðum sem ísfilm hef- ur tekið af Skriðjöklum á tón- leikum, til dæmis í Atlavík. Myndbandafyrirtækið Samver á Akureyri sér um alla aðra myndatöku, klippingu og aðra tæknivinnu. Myndin um Steina verður sýnd í Skonrokki föstudaginn 13. sept- ember. - KGA. Syntu Óvenjulegt sund var háð í Mý- vatnssveit um síðustu helgi. 227 félagar í HSÞ syntu þá maraþonboðsund í 90 klukku- stundir og var vegalengdin sem sundmennirnir lögðu að baki 451 km eða rúmlega vega- lengdin frá Reykjavík til Akur- eyrar. Kartöflugrös fallin: „Held að uppskeran verði víða léleg“ - segir Sveinberg Laxdal í Túnsbergi á Svalbarðsströnd Kartöflugrös hjá bændum í Eyjafirði byrjuðu að falla að- faranótt mánudags og í fyrri- nótt var enn meira næturfrost með þeim afleiðingum að grös Sundið hófst kl. 16 á fimmtu- dag og því lauk kl. 10 á mánu- dagsmorgun. Þátttakendurnir voru frá 11 félögum innan HSÞ, sá elsti var Illugi Jónsson frá Bjargi í Mývatnssveit sem er 75 ára en þeir yngstu 6 ára, Brynja Björk Hinriksdóttir og Jóhannes Héðinsson. féllu mjög mikið víða. Að sögn Sveinbergs Laxdal kartöflu- bónda í Túnsbergi á Sval- barðsströnd gerist þetta núna á svipuðum árstíma og oft Tilgangurinn með sundinu var fyrst og fremst sá að safna pen- ingum til félagsstarfsins með áheitum, og sagði Egill Stein- grímsson, einn þeirra er áttu sæti í nefnd er undirbjó sundið að menn væru að vona að tekist hefði að safna 300-400 þúsund krónum með áheitum. áður. „Það veitir ekki af sprettutím- anum og það er ágætt að þetta fái að jafna sig í 10-12 daga áður en farið er að taka upp með vélum,“ sagði Sveinberg. Við spurðum hann um uppskeruhorfur. „Ég held að uppskeran verði ákaflega léleg víðast hvar, það er þá ekki nema í stöku görðum sem hafa þá legið betur við í sum- ar að uppskeran verði þokkaleg. Annars held ég að þetta sé þó það mikil uppskera að menn sleppi sæmilega vel vegna þess að við fengum flestir góða nýtingu á uppskerunni frá í fyrra sem ég held að hafi verið nálægt tvö- faldri meðaluppskeru í nýtingu, þótt við séum ekki búnir að fá lokauppgjör ennþá," sagði Svein- berg. 451 kílómetra Það verður norðanátt og skúrir eða rigning um mest- allt Norður- og Norðaust- urland í dag og skúrir á morgun, að sögn veður- fræðings á Veðurstofunni í morgun. Áfram verður kalt í veðri og getur farið niður undir frostmark um nætur. Á föstudaginn lagast veðrið eitthvað en versnar líklega aftur eftir það. # Stóri skellur Þá er það að skella yfir þjóð- ina. Samdráttur í byggingar- iðnaði. Þ.e.a.s. samdráttur í byggingariðnaði á höfuð- borgarsvæðinu. Fjölmiðlar eru uppfullir af fréttum af því hörmungarástandi sem væntanlega mun hrjá bygg- ingariðnað á þessu svæði. En það er eins og iðnaðar- menn hafi fundið fyrir þess- um samdrætti á landsbyggð- inni mun fyrr en þetta muní væntanlega ganga yfir höfuð- borgarsvæðið. Það þurfti sem sagt eitthvað að gerast í þessum málum á höfuðborg- arsvæðínu til að ástandið teldist alvarlegt. Og þá er vonandi að ráðamenn átti sig á að það þarf hús og híbýli og vinnu fyrir alla landsmenn. # Mannfjölda- sprenging Gestir Sjallans á Akureyri eru ófáir á föstudags- og laugar- dagskvöldum. Kannski of margir á stundum, eins og einhver sagði einhvern tíma. Þannlg fór um sfðustu helgi að einum Sjallagesta ofbauð mannhafið inni í húsinu, og þegar honum hafðl loks tek- ist að ryðja sér leið út fór hann rakleitt á lögreglustöð- ina og kærði Sjallann fyrir að hafa of marga inni í húsinu. En ekki var sopið kálið. Við- brögð lögreglunnar voru heldur dræm, og færðust lag- anna verðir undan þvf að gera nokkuð f málinu, þeir væru nefnilega allt of fáliðað- ir til að anna því að telja út úr Sjallanum... # Smitandi flugslys? Hið frjálsa og óháða blað, DV, velti á mánudaginn upp býsna krítísku máli. Frétt blaðsins um flugslys hófst á þessum orðum: „Enn deyr fólk úr flugslysum.“ Sfðan var nánar fjallað um þennan sjúkdóm sem dregur fjölda fólks til dauða þessa dagana, hins vegar var ekkert rætt um smithættu né mótefni. AIDS hefur greinilega öðlast hættulegan keppinaut...

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.