Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 1

Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 1
68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 18. september 1985 GULLSMIÐIR , SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS 103. tölublað Á sunnudaginn var réttað í Skarðsrétt hjá Sauðárkróki og var þar margt um manninn, ekki síður en fé. Mynd: KGA. Slysaalda í umferðinni: „Okumenn gæti ítmstu varúðar“ - segir Daníel Snorrason rannsóknarlögreglumaður Akureyri: Gang- braut til bóta? „Því er ekki að neita að við höfum orðið varir við óánægju manna með þessa gangbraut og þessar framkvæmdir,“ sagði Haukur Berg í sundlaug- inni er hann var spurður um gangbrautina sem verið er að taka í notkun á Þingvallastræti við sundlaugina. „Mönnum þykir sem verið sé að byrja á öfugum enda, þar sem skortur á bílastæðum er mikill við sundlaugina.“ Búið er að teikna og hanna bílastæði sem eiga að vera sunnan sundlaugar og íþróttahúss. Síðar er hug- myndin að breyta inngangi í sundlaugina og færa hann sunnan á húsið, til samræmis við bíla- stæðin. „Þetta er gert til að þrengja gönguleið barna yfir þessa fjöl- förnu götu, og þar af leiðandi að koma í veg fyrir slys. En þarna hefur oft legið við stórslysum,“ sagði Ólafur Ásgeirsson aðstoð- aryfirlögregluþjónn á Akureyri er hann var spurður álits á þessu máli. „Þetta er eingöngu gert til að gera umferð öruggari á þess- um stað. Þrátt fyrir þessar breyt- ingar þrengir þetta ekki aksturs- leiðina um götuna, þar sem bíl- um var ævinlega lagt á þessum stöðum. Þegar þessum fram- kvæmdum er lokið og ljósin sem áætluð eru komin á sinn stað þarna, þá hef ég þá trú að þetta verði til verulegra bóta,“ sagði Ólafur. - gej Það mættí halda að jólasvein- arnir væru farnir að láta sjá sig í byggð. Um síðustu helgi var brotist inn á barnaheimilið Pálmholt, og stolið þaðan mat- vöru og öðrum nauðsynja- vörum. Það voru 10 kg af kjöti, 9 kg af kaffi, smjör, smjörlíki, djús, egg, Nú er sá árstími sem er hvað hættulegastur í umferðinni og kex, þvottaefni og eitthvað fleira sem þjófurinn hafði með sér á brott. Engar skemmdir voru unnar á húsinu, og ekkert annað virtist freista þjófsins en nauðsynja- vörurnar. Það verður því þokka- leg veisla sem jólasveinninn tímavillti getur haldið eftir heim- sókn sína á barnaheimilið. - gej slysatíðni hæst. Óhætt er að segja að slysaalda hafi gengið yfir síðustu daga því ekki færri en sex slys með meiðslum á fólki urðu á Norðurlandi í vik- unni sem leið. Þann 9. september varð slys við Eyjafjarðarbrýr, 10. septem- ber lenti bíll út af veginum við Lækjarbakka, 11. september varð harður árekstur skammt norðan við Knarrarberg, þann 12. var ekið á kú við Hrafnagil, 14. september varð banaslys á Öxnadalsheiði og að kvöldi þess dags var ekið á kyrrstæðan bíl í Aðalstræti. Það hafa því orðið sex slys á sex dögum og þar a meðal mjög harðir árekstrar, sem benda til þess að ökuhraðinn sé fullmikill. „Á þessum tíma þegar farið er að dimma og veður að versna er brýnna en nokkru sinni að öku- menn taki tillit til aðstæðna og gæti ítrustu varúðar," sagði Dan- íel Snorrason rannsóknarlög- reglumaður í samtali við Dag. Hann benti á nauðsyn þess að menn notuðu ökuljósin og spenntu öryggisbeltin. Þá væri nauðsynlegt að huga vel að bílun- um fyrir veturinn, t.d. að skipta yfir á vetrardekkin og láta ljósa- skoða, en ljósaskoðun lýkur 31. október. „Eg hvet ökumenn til að gæta fyllstu varúðar í umferðinni. Dæmin sýna að það er aldrei of varlega farið,“ sagði Daníel Snorrason að lokum. - BB Kjðtkrókur kominn til byggöa? Sjálfstæðisflokkurinn: Stefnir að flokkseinræði og einokun - segir Einar Freyr ríthöfundur „Raunverulegir hæfileikar ein- staklinga eru oft sniðgengnir með öllu. Hæflleikasnauðir og oft taugaveiklaðir einstakling- ar eru settir ofar hinum hæfu, - af bæði pólitískum og pers- ónulegum ástæðum og hags- munum.“ Svo segir m.a. í grein eftir Ein- ar Frey, rithöfund í Gautaborg, sem birtist í blaðinu í dag. í greininni fjallar Einar um hvað standi íslenskum menningarmál- um fyrir þrifum, að hans mati, og þann klíkuskap og hagsmunapot sem hann telur við lýði í störfum útvarpsráðs. Talað er um pólitíska þróun á íslandi. Greinarhöfundur fullyrð- ir að „hörðustu menn Sjálfstæðis- flokksins stefni að flokkseinræði og einokun á öllum sviðum þjóð- lífsins.“ Með það að leiðarljósi „ætli sjálfstæðismenn að leggja undir sig útvarpið, sjónvarpið, menningarsjóð, menntamála- ráðuneytið og dómsmálaráðu- neytið.“ Einar spyr hvort „til sé pólitísk klíka í Sjálfstæðisflokkn- um sem vinni að menningarmál- um eftir bók Hitlers „Mein Kampf.“„ Síðan segir hann frá meðferð þeirri sem leikrit hans „Undan straumnum" fékk hjá útvarpsráði og hvaða afleiðingar það hafi haft í för með sér fyrir Ævar Kvaran leikara og leikstjóra áð bjóðast til að leikstýra verkinu í útvarpi. Greinarhöfundur heldur því fram að Ævar hafi verið útilokaður frá útvarpinu vegna þessa máls. Fyrri hluti greinarinnar birtist í dag en seinni hlutinn birtist í blaðinu á föstudag. Sjá opnu. Bana- slys í Fljótum 41 árs gamall maður lést í um- ferðarslysi í Fljótum aðfara- nótt sunnudags. Ólafur Björnsson frá Siglufirði var þar einn á ferð í bifreið sinni og á móts við bæinn Hraun missti hann vald á bifreiðinni sem valt út af veginum og hafnaði á stór- grýti. Ólafur mun hafa látist sam- stundis. Engir sjónarvottar voru að slysinu en fólk sem var í grend- inni heyrði hávaða er bifreiðin valt út af veginum og kom það strax á vettvang. Ólafur lætur eft- ir sig eiginkonu og fjögur börn. Skemmdar- verk - á barnaheimilinu Flúðum Töluvert hefur verið um skemmdarverk í nýbyggingu barnaheimilis á Flúðum að undanförnu. Um síðustu helgi voru brotnar rúður sem nýbúið var að setja í glugga. Einnig var steypuhrærivél rutt í skurð við húsið. Þetta mun vera í þriðja skipti sem rúður eru brotnar í húsinu. Fyrr í sumar eyðilögðu skemmdarvargar pússningu sem múrarar voru ný- búnir að setja á vegg. Þarna er um töluvert tjón að ræða. og er einkennilegt til þess að vita að menn fái ánægju út úr slíkri skemmdarstarfsemi. - gej Hrím- bakur væntan- legur Harðbakur, einn af togurum Útgerðarfélags Akureyringa getur farið í eina veiðiferð áður en kvóti hans klárast. Svalbakur er sömuleiðis langt kominn með sinn kvóta, og má reikna með að hann sé í sinni næst síðustu veiðiferð að þessu sinni. Hinir togarar félagsins eiga meira eftir af sínutn kvótum, en erfitt er að segja hversu lengi þeir endast. Það er því ekki séð hvort afli sem á eftir að veiða endist fram að áramótum. Hinn nýi togari Ú.A. Hrím- bakur kemur væntanlega í vik- unni til Akureyrar, og veiðir hann samkvæmt sóknarkvóta. Þýðir það að ekki er mögulegt að færa kvóta frá honum yfir á önnur skip félagsins. Eins og liorfið nú er á mörkunum að afli endist fram að áramótum. gej-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.