Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 12
03jí2 Bílapemr 6-12 og 24 volta FLESTAR TEGUNDIR SAMLOKUR fyrír og án peru Pauli Paulsen skipstjóri I brúnni á Vestmenningi. Eins og sjá má er skipið vel búið tækjum. Mynd: KGA Plasteinangrun hf. og Sæplast hf.: Selja kassa og ker til Færeyja Eyfirskar útgerðarvörur eru nú sem óðast að hasla sér völl í Færeyjum og síðast í gær var skipað út 7700 fískkössum í tvö skip frá Færeyjum. Auk þess var skipað út umtalsverðu magni af fískkerjum frá Sæ- plasti hf. á Dalvík. Annað skipanna sem kom til Akureyrar í gær til að sækja kassa og ker heitir Vestmenning- ur og er nýr 300 lesta togari, smíðaður í Pórshöfn. í maí í vor verður systurskipi Vestmennings hleypt af stokkunum í Þórshöfn og er ætlunin að gera skipin sam- an út á veiðar með eitt troll. Skipstjórinn á Vestmenningi, Pauli Poulsen, sagði í samtali við Dag að með því að gera út tvö skip með eitt troli sparaðist mikil olía þar sem mun minna afl þarf til að draga trollið þegar skipin sjá um að halda því opnu í stað þess að nota trollhlera sem verka eins og hemlar á togara. Hitt skipið sem hingað kom til að sækja kassa heitir Rona og er flutningaskip. Auk Plasteinangrunar hf. og Sæplasts hf. hafa Vélsmiðjan Oddi hf. og DNG hf. einnig selt útgerðarvörur til Færeyja og fara þessi viðskipti vaxandi - yk. Flutnin kostna greiddur Vegna erfíðleika á að ráða kennara með full kennslurétt- indi að grunnskólum bæjarins, auglýsti skólanefnd í samráði við bæjarráð eftir kennurum og bauðst til þess að aðstoða við að útvega hsunæði á Akur- eyri og greiða þeim flutnings- styrk, sagði Tryggvi Gíslason, formaður skólanefndar Akur- eyrar í samtali við Dag. Slátrun að hefjast Sauðfjárslátrun fer senn að hefjast á Akureyri og Dalvík. Áætlað er að slátra 39.108 kindum á Akureyri en 10.117 á Dalvík eða 49.225 fjár alls. Að sögn Pórarins Halldórsson- ar sláturhússtjóra hjá KEA er ætlunin að slátrun hefjist þriðjud. 17. september á Akureyri og standi fram til 24. október. A Dalvík hefst slátrun 24. sept- ember og stendur fram til 15. október. Aðspurður sagði Þórarinn að ekki yrðu svö kölluð jólalömb á boðstólum í ár á Norðurlandi, þ.e. Iömb sem slátrað er skömmu fyrir jól, eins og nú er ætlunin að hafa suð-vestanlands. BB. Gagnfræðaskóli Húsavíkur: Skipstjórar á skólabekk Kennsla hófst við Gagnfræða- skóla Húsavíkur 17. septem- ber. Um 200 nemendur munu stunda nám við skólann í vetur, þar af 120 í grunnskóla. Boðið er tveggja ára nám á viðskiptabraut og eins árs nám á málabraut. Iðnbraut mun taka til starfa eftir áramót. Þau nýmæli verða við skólann að þar hefst í byrjun nóvember réttindanám fyrir skipstjóra og vélstjóra, er starfað hafa með undanþágu. Um 20 nemendur hafa látið skrá sig til námsins, sem mun standa um 3 mánuði. Að sögn Sigurjóns Jóhannes- sonar skólastjóra verður boðið upp á áfanganám í nokkrum greinum og stendur skráning yfir. Þetta verður kvöldskóli fyrir full- orðna, en ekki er séð fyrir um þátttöku. Námskeið á vegum skólans eru fyrirhuguð, en verða kynnt síðar. - IM Flutningsstyrkurinn er 12 þús- und krónur fyrir þá sem flytja annars staðar að úr fjórðungnum en 20 þúsund fyrir lengra að komna. Tryggvi sagði það alsiðu víða um lönd að atvinnurekendur tækju þátt í flutningskostnaði starfsmanna en ástæða þess að þetta er nú tekið upp hér væri sú að laun kennara væru mjög lág. Kennarar við grunnskólana á Akureyri fá engin fríðindi eins og tíðkast sums staðar úti á landi. Á fundi Bæjarstjórnar Akur- eyrar í gær var samþykkt að veita allt að 350.000 krónum til skóla- nefndar vegna þessa máls. Ekki er ljóst á þessu stigi um hversu marga kennara er að ræða en eins og áður sagði eru það einungis kennarar með full kennslurétt- indi sem styrkinn hljóta. Við afgreiðslu málsins í bæjar- stjórn kom fram að greiðsla slíks flutningsstyrks sé hálfgert neyð- arbrauð því bæjarfélagió sé í raun að taka á sig hlut ríkisins í launakostnaði kennara. - yk./BB. Raufarhöfn: Tvö slys Tvö vinnuslys urðu á Raufarhöfn í gær. Annað átti sér stað í nýrri fóðurblöndunarstöð, Ætis hf. Þar var starfsmaður að vinna við sambyggða hakka- og blöndunar- vél. Hann hrasaði og fór með annan fótinn í blandara með þeim afleiðingum að fótur mannsins tvíbrotnaði, vöðvar slitnuðu auk fleiri áverka. Hann var fluttur til Akureyrar og liggur nú á Fjórðungssjúkrahúsinu. Hitt slysið átti sér stað þegar verið var að landa úr loðnuskip- inu Skarðsvík. Þar klemmdist maður er verið var að opna lest á skipinu. Hann handleggsbrotn- aði. Var gert að sárum hans á Raufarhöfn. - gej Það má reikna með hægri austanátt, eða breytilegri átt í dag. í kvöld og nótt snýst í norðaustanátt sem helst fram á föstudag. Kalt verður í veðri, og má búast við rigningu eða slyddu, sérstak- lega á annesjum. # Viðskipta- fræðingur eða þannig... Svo var það sagan af mann- inum sem hitti vin sinn eftir langa fjarveru. Hann spyr um hagi, og hvernig fjölskyldan hafi það. Öllum líður vel. Síð- an spyr hann um soninn sem hann hafði ekki séð í mörg ár, og spyr hvað hann geri. - Þá svarar vinurinn: „Hann vinn- ur í fyrirtækinu hjá mér. Hann er viðskiptafræðingur, en á ekkert eftir nema taka skólann.“ # Fiðringurinn Og við gefum „manninum“ orðið áfram: „Það er eins og búið sé að spila einhverja vælplötu fyrir allar sveitar- stjórnir í landinu. Þetta er ákaflega hvimleið plata. Það er eins og búið sé að panta að allir í þjóðfélaginu væli. Óskaplega ömurlegt, en á sínar orsakir. Það má bæta ýmislegt í allri stjórnun." Þá er það kvótakerfið næst: „Þegar hefur fiskast eins og í ár, er kvótakerfið ákaflega mislukkað, en þegar fiskaðist eins og í fyrra þá voru allir ánægðir. Við búum í veiði- mannasamfélagi og það fer fiðringur um okkur þegar við höldum að nógur fiskur sé í sjónum. Þannig var þetta með síldina forðum daga og loðnuna líka. Allir töldu að nóg væri af fiski í sjónum, en svo einn góðan veðurdag var hann búinn.“ # Spilað á kerfið Þeim er sumum lagið að spila á kerfið. Þannig er t.d. með landsfræga hljómsveit sem nýlega lék ( Sjallanum ekki alls fyrir löngu. Þetta mun hafa verið venjulegt skrall, en var gefið nafnið hljómleikar. Fólki gafst að sjálfsögðu færi á að dansa eins og endranær. Hljómleikaheitið breytti því hins vegar að hljómsveitin losnaði við að greiða lög- gæslukostnað, skemmtana- skatt og söluskatt, sem greiða þarf af venjulegum dansleikjum eins og þessum. Þetta kalla sumir að spila á kerfið. # Kartöflurnar Kartöflugarðaeigendur eru nú í óða önn að taka kartöflur upp úr görðum sínum. Held- ur þykir uppskeran rýr þetta árið. S&S átti tal við mann hér út með sjó um daginn og þá báru kartöflur m.a. á góma. „Það er nú með kartöflurnar eins og góðu aflaárin. Það er alltaf haft til viðmiðunar þeg- ar best gengur. Og það gekk mjög vel í fyrra, þannlg að auðvitað er lélegt í ár. En ég heyrði einu sinni haft eftir bónda suður í Þykkvabæ að þeir reiknuðu með því að fimmta hvert ár væri gott og það bjargaði þessum rekstri.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.