Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 2

Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 18. september 1985 Á hvaða alþingis- manni hefur þú mest- ar mætur? Sigurður Ingólfsson. Því er nú erfitt að svara. Ætli ég nefni ekki bara Jón Baldvin. Valgeir Stefánsson. Pað veit ég nú ekki. Eru þeir ekki allir ágætir, mismunandi ágætir? Ragnar Sverrisson. Þar fórst þú alveg með það . . . Engum. Steingrímur Bernharðsson. Auðvitað nafna mínum, Steingrími Hermannssyni. „Ég hef alltaf haft áhuga á grasafræði og sem unglingur safnaði ég háplöntum og átti töluvert safn. Það hefur svo hlaðið utan á sig með tíð og tíma,“ sagði Elín Gunnlaugs- dóttir grasafræðingur. Elín er frá Hofi í Hörgárdal. Hún varði doktorsritgerð sína, Heiðagróður á Islandi, teg- undasamsetning hans og gróð- urbreytingar með tilliti til upp- græðslu, við Uppsalaháskóla þann 26. aprfl í vor. Elín fór í Menntaskólann á Akureyri og „mig langaði alltaf í náttúrufræði af einhverju tagi. En grasafræðin var mér hugleikn- ust. Eftir stúdentspróf vann ég í eitt ár og byrjaði svo í líffræði í Háskóla fslands þegar farið var að kenna hana haustið 1968. Prófi lauk ég árið 1972. Ég reyndi að velja eins mikla grasafræði og hægt var. Þegar ég fór utan var ég búin að velja mér verkefni sem var gróður, t.d. hvernig dýr lifa í og á gróðri, áhrif beitar á gróður og margt fleira.“ Veturinn eftir háskólanám kenndi Elín við Gagnfræðaskól- ann á Akureyri og vann við plöntugreiningu á Náttúrugripa- safninu. „Það er til mikið af þurrkuðum plöntum hér á safninu og það þarf að vita hvað þær heita og hvaða gróðurflokki þær tilheyra. Það þarf að skoða flórur og skoða einkenni plantnanna undir smásjá og greina þær þannig til tegunda. Mikið af plöntunum hafa starfsmenn safnsins safnað sjálfir en einnig hafa safninu bor- ist gjafir.“ Veturinn 1973-4 tók Elín svo- kallað fjórða árs verkefni og gerði samanburð á gróðri á beittu og friðuðu landi í nokkrum skóg- ræktargirðingum í Eyjafjarðar- sýslu. „Ég tók fyrir ákveðna reiti og skoðaði hvað var mikið af hverri tegund og hvaða tegundir lifðu á sams konar landi utan og innan girðingarinnar. Niðurstöður? Þetta var svo stuttur tími að ekki er hægt að alhæfa um niður- stöður. Frá árinu 1974 og fram til árs- ins 1980 vann ég hjá Landgræðsl- - segir Elín Gunnlaugsdóttir grasafræðingur unni við að skoða gróður á ör- foka landi og þar sem sáð hefur verið. Ég fylgdist með ákveðnum blettum, annars vegar í Gunnars- holti og hins vegar í Þingeyjar- sýslum, í Kelduhverfi og á Heið- arsporði. Fyrst eftir áburðar- dreifingu jókst spretta mjög, en mestu áburðaráhrifin vara aðeins í 2-3 ár, en dauf áburðaráhrif eru sjáanleg í a.m.k. 20 ár. Eftir 2-3 ár lagðist gróðurinn í sinu og þeg- ar lengra líður frá verður hann áþekkur því sem var í upphafi, ívið meiri þó. Það er aðeins betra að græða upp land fyrir sunnan, þar er hlýrra og rakara. Út frá þeim forsendum sem ég gaf mér giskaði ég á að það þyrfti 50-100 ár eða meira eftir aðstæðum að græða örfoka land til algróins eða lönd og það er svokölluð plöntu- félagsfræði, en um það fjallar doktorsritgerð mín að hluta.“ - Segðu okkur hvað það er? „Þá eru tekin fyrir ákveðin gróðurfélög og borin saman við lík félög erlendis. Ég gerði margar gróðurathuganir á Ássandi og Gunnarsholti, safnaði há- plöntum, mosum og fléttum og greindi til tegundar. Þegar ég hafði safnað nægilega mörgum gróðurgreiningum setti ég þær inn í tölvu eftir vissum aðferðum. Þar er allt reiknað út flokkað og niðurstöður túlkaðar. Síðan er hægt að bera þetta saman við allt mögulegt. Ég bar mínar greining- ar saman við það sem skrifað hef- ur verið um gróður fyrst og fremst í Noregi, en einnig í veðráttu, berggrunni, jarðvegi, uppblæstri og áfoki, samverkan allra eða einhverra þessara þátta.“ Okkur hefur verið tíðrætt um doktorsritgerð Elínar. í sumar hefur Elín unnið við Náttúru- gripasafnið á Akureyri og við víkjum að lokum að því sem efst var á baugi hjá henni á þeim vett- vangi. „Ég hef verið að vinna að gróðurathugunum í nágrenni Ak- ureyrar og til stendur að gera gróðurkort af umhverfi Akureyr- ar. Það er byrjað á að teikna upp eftir loftljósmynd, mela, mýrar og móa og farið með þessa teikn- ingu út og merkt inn á hana hvað er hvað. Síðan eru gerðar grein- ingar og maður skoðar betur það sem haft er með sér heim. Þeim gróðri, sem virðist vera hinn sami, er raðað saman í gróðureiningu og það getur orðið eining á kort- inu. Til hvers þetta er notað? Það er gott að hafa gróðurkort til hliðsjónar þegar unnið er að skipulagi bæjarins, þegar ákveðið er hvaða svæði eru notuð undir byggingar og útivistarsvæði." - mþþ Svíþjóð, Færeyjum, Bretlands- eyjum og Grænlandi. Ég komst að því að gróður hér á landi er frábrugðinn því sem þarna gerðist. T.d. er íslenskur heiða- gróður frábrugðinn skyldum gróðri í grannlöndunum. Gróð- ureiningar hans eru einkenndar af hópum tegunda sem hvergi annars staðar vaxa saman. Or- sakanna er að leita í frábrugðinni Elín Gunnlaugsdóttir. því sem næst algróins. Það er eins gott að við gerum okkur grein fyrir þessum tíma sem þetta tekur, áður en við gerum allt að eyðimörk. Sandurinn breiðir úr sér, laus sandur fýkur yfir gróðurinn og drepur hann. Sums staðar gerist þetta hratt, sums staðar hægar, en gerist samt. Út frá þessum rannsóknum fór ég yfir í að fá samanburð við önnur Frábær skemmtun Ein ánægð skrifaði og hafði eftir- farandi að segja: Ég fór á skemmtun með hinu landsþekkta Ríó-tríói hér á Akur- eyri á dögunum, og það verð ég að segja að ég hef ekki í langan tíma skemmt mér jafn vel. Skemmtunin var frá upphafi til enda alveg stórkostleg og fór reyndar vaxandi frá fyrstu mín- útu til hinnar síðustu. Piltarnir þrír sem skipa trfóið eru alveg frábærir grínistar, þeir spila vel og syngja vel og með þeim er líka þessi frábæri hópur hljóðfæra- leikara sem myndar hljómsveit Gunnars Þórðarsonar. Það er óhætt að mæla með þessari skemmtun við hvern sem er því hún er svo sannarlega þess virði að sjá hana.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.