Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 4

Dagur - 18.09.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 18. september 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGAFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 300 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Háskólinn oa nýjar hugmyndir Nú er tekinn við embætti nýr háskólarektor, sem margir binda miklar vonir við. Þarna er á ferðinni raunvísindamaður sem getið hefur sér orð fyrir vísindarannsóknir, og af orðum hans og störfum má þess einnig vænta að hann standi báðum fót- um á og skynji íslenskan raunveruleika — at- vinnulífið og þörf þess fyrir aukna og bætta menntun. Menntun sem tengist beint afkomu- möguleikum okkar íslendinga í framtíðinni. Reikna má með að meiri áhersla verði lögð á hagnýta kennslu í Háskóla íslands og hagnýtar rannsóknir sem atvinnulífið nýtur góðs af. Því má þó ekki gleyma að flestir frjóangar framfara spretta upp af rótum menningar og lista, rótum almennrar góðrar menntunar og verkmenningar. Það ætti e.t.v. að vera hlutverk grunnskólanna og framhaldsskólanna að leggja þennan grunn, svo víðsýni og vísindaleg vinnu- brögð geti orðið aðall þeirra sem útskrifast úr Háskóla íslands. íslenskt samfélag hefur lítið við fagídjóta að gera. Það var mikil víðsýni að berjast fyrir því á sín- um tíma að menntaskóli risi utan höfuðborgar- innar. Enginn efast um ágæti þeirrar ráðstöfunar í dag að gera Menntaskólann á Akureyri að veruleika. Enginn efast heldur um réttmæti menntaskólanna á ísafirði og á Egilsstöðum, svo eitthvað sé nefnt, né aukið námsval í fjölbrauta- og verkmenntaskólum heima í héruðum. Það er hins vegar orðið meira en tímabært að þessi þróun haldi áfram. Hinn nýi rektor Háskóla íslands sagði í sjón- varpsviðtali að brýnasta vandamál skólans væri húsnæðisskortur vegna síaukins nem- endafjölda, auk þess sem kröfur um bætta að- stöðu fara líklega stöðugt vaxandi. Hann hafði einnig á orði í útvarpsviðtali daginn sem hann tók við embætti, að hann hefði hugmyndir um að opna háskólann, nýta þá tækni sem boðmiðlun ýmiss konar hefur upp á að bjóða. Þetta er eigin- lega sjálfsagt mál. Kona á Kópaskeri sem ekki á heimangegnt en hefur þá grundvallarmenntun sem dugir til undirbúnings háskólanáms, gæti þá stundað sitt nám á heimaslóðum. Þetta myndi að sjálfsögðu kosta hana eitthvað, eins og allt nám, og vafalaust kostar það Háskóla ís- lands verulegt fé að koma þvílíku kerfi á laggirnar Opinn háskóli með þessum hætti er þó engin lausn fyrir ungt fólk sem nýlokið hefur stúdents- prófi og ætlar að helga sig náminu á háskólastigi næstu árin. Það mun sækja sitt nám með hefð- bundnum hætti. Nýskipuðum háskólarektor er með vinsemd bent á það að hugmyndir um op- inn háskóla mega ekki koma í veg fyrir að hug- myndir um útibú skólans, t.d. á Akureyri verði að veruleika. Það myndi leysa húsnæðisvanda- málin að hluta, þar sem húsnæði er þegar fyrir hendi. Háskólaútibú á Akureyri er vel undirbúið mál, sem mikil samstaða er um. Vonandi verður það hlutskipti hins nýskipaða háskólarektors að sýna víðsýni og djörfung í þessu sjálfsagða, hag- fellda réttlætismáli. Hótelstjórahjónin, Guðmundur Tómasson og Elsa Elíasdóttir, standa hér á milli hönnuðanna, Árna Guðjónssonar og Jóns Ólafssonar, við nýja barinn á Hótel Mælifelli. — Segir Guðmundur Tómasson hótelstjóri á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki Á Hótel Mælifelii á Sauðár- króki hefur orðið gjörbylting á salarkynnum til veitinga- reksturs og dansleikjahalds. Síðastliðinn laugardag var í fyrsta sinn tekið á móti gestum í mat og á diskótek eftir að inn- réttaður hafði verið nýtísku danssalur á neðri hæð og mat- salur á efri hæð hótelsins. Guðmundur Tómasson hótel- stjóri og eigandi hótelsins sagði að allt það sem fyrir var hefði verið rifið burt og staðurinn hannaður algerlega upp á nýtt. Það var Árni Guðjónsson hjá Ár- felli í Reykjavík sem sá um hönnun innréttinga en skagfirsk listakona, Brynhildur Kristins- dóttir, var fengin til að skreyta salina með myndum úr Skaga- firði. Byggingarfélagið Hlynur sá um smíði innréttinga. Raf- hönnun og raflögn sá Jón Ólafs- son um. Framkvæmdir tóku ekki nema þrjár vikur sem verður að teljast vel að verki staðið en iðn- aðarmennirnir gengu heldur ekki út úr húsinu fyrr en um klukkan sjö á laugardagskvöld, eða rétt áður en fyrstu matargestirnir mættu á staðinn. Guðmundur hótelstjóri segist vera búinn að vera í 11 ár með hótelreksturjj Sauðárkróki. En er grundvölíur fyrir því að leggja í svo mikinn kostnað við veit- ingarekstur sem hann hefur nú gert? „Ég væri ekki að leggja í þess- ar breytingar ef ég hefði ekki trú á að þær skiluðu sér en ég geri mér líka grein fyrir því að það tekur langan tíma...“ - En Guðmundur er ekki einn í rekstrinum. „Svona stað rekur enginn nema hafa góða eiginkonu sér við hlið. Konan mín, Elsa Elíasdótt- ir, stendur alveg í þessu með mér og einnig starfa allir synirnir fjór- ir hérna,“ sagði Guðmundur. „Auk þess höfum við verið mjög heppin með starfsfólk," sagði hinn bjartsýni hótelstjóri að lokum. -yk. Opnunarkvöldið var haldin tískusýning þar sem sýndur var tískufatnaður úr einni af verslunum bæjarins. „Höfum verið heppin með starfsfólk“ Þessi glæsilegi salur er á jarðhæðinni en auk hans er annar salur á annarri hæð og samanlagt taka þeir 174 í mat. Myndir: KGA.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.