Dagur - 20.09.1985, Blaðsíða 16

Dagur - 20.09.1985, Blaðsíða 16
Tökum að okkur að úrbeina, pakka og merja kjöt fyrir einstaklinga. Einnig reykjum við fisk og kjöt. Bautabúrið Skipatanga 35, sími 21343. Síldarverksmiður ríkisins: Kol í stað olíu? - Tilraun með kolabrennslu að fara af stað á Skagaströnd Sfldarverksmiðjur ríkisins eru með í undirbúningi merkilega tilraun sem gengur út á það að brenna kolum í stað oliu I verksmiðju SR á Skagaströnd. Erlendis hófust tilraunir í þessa veru í olíukreppunni þegar menn fóru að leita leiða til að fá ódýrari orkugjafa en olíu. Pá var fundið upp á því að mylja kolin saman við vatn og bæta svo í það bindiefnum til þess að koma í veg fyrir að kolin settust til í blönd- unni. Svona blanda inniheldur u.þ.b. 70% kol, 29% vatn og af- gangurinn er bindiefni. Það hefur þegar verið prófað erlendis að nota svona fljótandi kol í stað svartolíu á katla en tilraunin á Skagaströnd miðast að því að brenna kolum í eldþurrkara. Ástæða þess að verksmiðjan á Skagaströnd er valin til þessara tilrauna er sú að þar er ekki loðnubræðsla heldur er aðallega unnið beinamjöl og tekur sú vinnsla ekki lengri tíma en svo að nægur tími gefst til tilrauna. Ef vel tekst til gæti farið svo að sett yrði upp verksmiðja hér á landi til að mylja og blanda kol Tekur Bjöm aftur við Þórsliðinu? Þórsarar hafa nú hafið viðræður við Björn Árnason um að þjálfa fyrstudeildarlið félagsins í knatt- spyrnu á næsta keppnistímabili. Björn mun hafa tekið þessari málaleitan vel og eru sterkar lík- ur til þess að hapn verði ráðinn. Björn þjálfaði Þórsara fyrir tveimur árum og náði góðum ár- angri með liðið. Hann tók síðan við Víkingsliðinu, en var rekinn þaðan í sumar þegar síga tók á ógæfuhliðina hjá liðinu, en sú ráðstöfun varð síður en svo til að lyfta leik liðsins upp á hærra plan. - GS og að þau kæmu að miklu leyti í stað svartolíu við bræðslu á fiski. Ef vel tekst til telja forráðamenn SR að orkukostnaður verksmiðj- anna gæti hugsanlega minnkað um allt að þriðjung. yk. Nyrsti golfvöllurinn Útlendu golfkapparnir fjórir, við veifuna á 18. holunni. Veifu sem þeir komu sjálfir með og er merkt þeim og ferðalagi þeirra í bak og fyrir. Mynd: KGA Pétur Antonsson sigraði í The North of the World Golf Championship, sem fram fór á Jaðarsvelli í gær. Keppendur voru víða að úr heiminum. Þarna voru á ferðinni útlend- ingar sem fara nú um heiminn og spila á ýmsum golfvöllum, eins og t.d. þeim nyrsta í heimi, en hann er að finna á Akureyri. í gær komu þeir hingað og gáfu verðlaun í mót sem haldið var í tilefni af komu þeirra. Hinir er- lendu gestir voru víða að, einn frá Bandaríkjunum, annar frá Suð- ur-Afríku sá þriðji frá Hong Kong og fjórði frá Tékkóslóvak- íu. Pétur Ántonsson sigraði eftir bráðabana við Smára Garðarsson og Jóhann Anderssen. - KGA. • "'&■■■■■■ ' ”"áss|fc tf. Hinn nýi togari ÚA, Hrímbakur, kom til heimahafnar á Akureyri í fyrsta sinn í gærkvöld. Fjöldi fólks tók á móti togaranum, meðal annarra bæjarstjórinn og bæjarstjórnarfulltrúar. Skipstjóri á Hrimbaki er Stefán Aspar. Mynd: KGA Það bar til úti í Grímsey fyrr í þessum mánuði að 5 ára gömul stúlka hrapaði fram af klettum, um 15 metra niður í fjöru. Stúlkan hafði verið að leik með öðrum börnum og gerðu þau þegar viðvart um slysið. Þegar að var komið lá stúlkan í fjöruborð- inu og var greinilega á lífi. Hún var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri til rannsóknar og kom þá í ljós að hún var hvergi brotin eða lemstruð, aðeins lítillega marin. Enginn maður skilur hvernig stúlkan komst ómeidd frá svo miklu falli. - yk. Slippstöðin: Fyrsti Kanada- togarinn - kemur á morgun Seinnipartinn á morgun, laug- ardag, er væntanlegur til Ak- ureyrar fyrsti togarinn sem samið hefur verið um að Slipp- stöðin endurbæti fyrir Kanada- menn. Þegar hefur verið gerður samn- ingur um endurbætur á tveimur togurum og samningur um tvo til viðbótar er í burðarliðnum. Áætlað er að a.m.k. eitt skip verði hér í senn og að vinna við þessar breytingar nemi 40-50% af verkefnum Slippstöðvarinnar næstu misseri. -yk. Það verður hæg breytileg átt, léttskýjað og kalt um helgina að sögn veður- fræðings á vakt í morgun. Hann sagði ennfremur að það væri ekki tiltökumál þó að gránað hefði niður allar hlíðar í nótt því það væri að koma vetur. Bylting í matreiðslu: Kartöflupotturínn KÖLSKI er hreint ótrúlegur. Pottar og pönnur er gjörbreyta allri matargerð og koma bragðlaukunum til. Nýkomin mjög falleg eldhúsáhöld í fallegum litum. Komið, sjáið sannfærist. Póstsendum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.