Dagur - 21.10.1985, Page 2
2 - DAGUR - 21. október 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÚRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFÍ KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðart______________________________
Háskóli á Akureyri
Ráðherrahringleikur Sjálfstæðisflokksins tók
enda, sem betur fer. Úrslitin liggja fyrir. Hvort
þau boða betri tíð á reynslan eftir að leiða í
ljós, en Norðlendingum til mikillar ánægju,
hefur Sverrir Hermannsson, nýskipaður
menntamálaráðherra, lýst yfir stuðningi við
háskólakennslu á Akureyri.
Sverrir hefur sagt, að stefnt skuli að því að
þessi kennsla hefjist næsta haust. „Stefnt
skal að“ getur að vísu verið svolítið teygjan-
legt hugtak, en þrátt fyrir það verður ekki ef-
ast um vilja ráðherrans í þessum efnum. Og
Sverrir Hermannsson er þungur á bárunni,
þannig að vonandi tekst honum að koma
þessu máli heilu í höfn sem fyrst. Það yrði
ómetanleg lyftistöng fyrir „skólabæinn" Ak-
ureyri.
Nýskipaður menntamálaráðherra sagði
einnig í samtali við Dag, að hann vildi efla
verkmenntakennslu á Akureyri enn frekar.
Benti hann á í því sambandi, að fjölbreyttir
menntunarmöguleikar væru vænlegasti kost-
urinn til að halda unga fólkinu í heimahögum,
byggðarlaginu til styrktar. Það eru orð að
sönnu og mikið fagnaðarefni, að landsbyggð-
in hefur eignast talsmann í menntamála-
ráðuneytinu. — GS
Arðsemi sparnaðar -
skattur
Ríkisstjórnin leitar nú leiða til að auka tekjur
ríkisins svo draga megi úr skuldasöfnun og
jafnvel greiða niður eitthvað af þeim skuldum
sem safnast hafa upp. Þetta er ákaflega
brýnt, þar sem svo stór hluti þjóðarframleiðsl-
unnar fer nú í að greiða vexti af erlendum
lánum.
Til álita hefur komið að skattleggja vexti af
sparifé, en sem kunnugt er hefur sparnaður í
þjóðfélaginu verið að aukast. Þetta er hug-
mynd sem hlýtur að verða skoðuð nánar.
Samkvæmt upplýsingum sem forsætisráð-
herra hefur látið afla frá öðrum löndum er
sparifé víðast skattlagt með einhverjum
hætti.
Skattlagning á sparifé má ekki verða til
þess að sparnaður leggist af á nýjan leik, því
hann er ein af meginforsendum þess að ís-
lendingum takist að vinna sig út úr þeim erf-
iðleikum sem við er að glíma. Því er hæpið að
skattleggja sparnaðinn sem eign, en athug-
andi að skattleggja tekjurnar af þessari eign,
þ.e. þá vexti sem greiddir eru umfram verð-
tryggingu. Sá skattur má þó ekki verða það
hár að arðsemi sparnaðar verði engin.
-Yiðtal dagsins________________________
„Kann ágætlega við mig
í stólnum héma niðri“
- Spjallað við Árna Blöndal, flugvallar-
eftirlitsmann á Sauðárkróki í 20 ár
Sauðárkróksflugvöllur. Fokk-
er að taka í loftið. Inni í flug-
vallarhúsinu situr Árni Blön-
dal flugvallareftirlitsmaður og
er í sambandi við flugmenn
Fokkersins. Árni hefur verið
flugvallarstarfsmaður á Sauð-
árkróki frá árinu 1965 og starf-
aði áður sem „altmugligt-
mann“ á vellinum „sem ég er
ef til vill ennþá,“ segir hann og
brosir.
„Ég hef hér eftirlit með flug-
brautinni og gef veður- og flug-
skilyrði,“ segir Árni. Bætir því
við að umferð um völlinn sé ekki
mikil „það eru svona níu hundr-
uð til eitt þúsund lendingar á ári.
Að vísu töluvert fleiri á meðan
hér var flugskóli, en hann er nú
aflagður. Það voru ekki nógu
margir sem höfðu áhuga á að
læra.“
Flugbrautin sem nú er notuð á
Sauðárkróki var lögð fyrir átta
árum og er tveggja kílómetra
löng. Og það er unnið að því að
lengja hana um einn kílómetra.
„Þá mun hún geta tekið við öllu
sem flýgur,“ segir Árni. „En
þetta kemur varla til fyrr en
brautin verður malbikuð og
væntanlega lagður hiti í hana
líka, þannig að hún verður auð
árið um kring.“
Flugstöðin á Sauðárkróksvelli
er ekki sérlega stórbrotið hús.
„Þetta er engin aðstaða," segir
Árni um það mál. „En ég held að
þegar búið verður að reisa þær
flugstöðvar sem nú eru í bygg-
ingu muni röðin koma að okkur.
En eins og aðstaðan hér er núna
er ekki hægt að bjóða upp á
mikla þjónustu. Þegar flugáhöfn
er komin hingað inn er vart hægt
að snúa sér við - hvað þá þjón-
usta farþega, það er gert uppi í
bæ.“
Árni hefur starfað lengi við
flug og flugvélar, en skyldi hann
aldrei hafa haft áhuga á að læra
flug?
„Ég byrjaði aðeins í svifflugi,
en kveikti aldrei verulega. Við
vorum hérna með renniflugu,
sem var lítið annað en grind með
vængi og við vorum nokkuð
margir í þessu. En satt að segja
voru skilyrðin ekki nógu góð. Ég
get heldur ekki sagt að ég hafi
prófað vélflugur að ráði - og eig-
inlega kann ég ágætlega við mig í
stólnum hérna niðri,“ segir Árni.
Við förum að rifja upp gamla
daga og skoða myndir af gömlum
flugvélum, myndir á veggjum
flugvallarhússins. Þar kennir ým-
issa grasa, Grummanflugbátur -
„Jjeir voru í síldarflugi,“ segir
Árni. Og það eru líka myndir af
snjómoksturstækjum og miklum
snjó. „Þetta var á gamla flugvell-
inum, sem var staðsettur á svo-
kölluðum Borgarmýrum,“ segir
Árni. „Hann var orðinn slæmur í
seinni tíð, stundum yfirflotinn
vatni og varla lendandi á honum.
Helst að það væri hægt að lenda
þristinum gamla, enda mátti eig-
inlega skella honum í hvað sem
var,“ hlær Árni. Á einni mynd-
inni er Douglas DC 6. Arni:
„Þessi vél var frá Seaboard West-
ern flugfélaginu og lenti hér 27.
febrúar 1957. Bæði Keflavíkur-
og Reykjavíkurflugvöllur voru
lokaðir og þá kom vélin hingað.
Sveimaði lengi hér yfir áður en
hún lenti. Það gekk á með éljum
en var að öðru leyti þokkalegt
veður og vélin lenti hér heilla-
drjúgri lendingu. Þeir voru held-
ur fegnir, flugmennirnir þegar
þeir stigu út, enda voru tankar
vélarinnar orðnir nær þurrir.“
Og það er ýmislegt fleira sem
kemur upp í huga Árna þegar
hann fer að rifja upp, enda starfs-
ferill hans langur. En hér setjum
við punkt. - KGA
F2>/Æ /9K&&/9/ÝIEG/9 GOrr /}£>
&/?//&/? / i////a/u///}, gc/gg/ /?///// '