Dagur


Dagur - 21.10.1985, Qupperneq 5

Dagur - 21.10.1985, Qupperneq 5
21. október 1985 - DAGUR - 5 __orð í belg_ Hinar „frjálsu" sjónvarpsstöðvar geta ekki orðið „frjálsar“ Ég vil ekki aðeins óska Norð- lendingum og Akureyringum til hamingju með Dag sem dagblað, heldur öllum íslendingum. Undanfarna daga hef ég verið að lesa Dag og stúdera hann hátt og lágt með nýrri tækni og lesa milli línanna, og nú hef ég komizt að þeirri niðurstöðu, að Akur- eyrar dagblaðið Dagur er heil- brigðasta dagblað á íslandi nú sem stendur. Ég vona bara að þessi andlega heilbrigði og heið- ríkja sem Dagur ber með sér inn á íslenzk heimili víða um land verði varanleg. Ég hef undanfarin ár verið að fylgjast með menningarþróuninni heima á íslandi út frá sjónarhóli Vestur-Evrópubúa, en þar kenn- ir margra grasa. Þeir sem fást við menningar- störf, og einnig þeir sem þurfa að einhverju leyti að njóta af slíkum störfum, þyrftu nauðsynlega að geta gert sér rétta grein fyrir menningarþróuninni eins og hún birtist oft í Vestur-Evrópu. íslenzk alþýða sem þarf að vinna svo að segja myrkranna á milli til að geta haft í sig og á, má ekki fara á mis við réttar og heið- arlega unnar uppiýsingar um hina almennu menningarþróun í heiminum og sérstaklega í Vest- ur-Evrópu. I raun og veru á ís- lenzk alþýða heimtingu á réttum upplýsingum um menningarmál- efni. Hér er ekki hægt að fara út í alla skapaða hluti sem nú gerast á menningarsviði Vestur-Evr- ópu, en skynsamlegt væri að minnast aðeins á vandamál sjón- varpsins. Það var í raun og veru á Ítalíu sem hin svokallaða ríkiseinokun á sjónvarpið var brotin á bak aft- ur í Vestur-Evrópu. Þetta gerðist á árunum kringum 1976. Á skömmum tíma urðu hinar frjálsu ítölsku einkasjónvarps- stöðvar eitthvað um 600. En sam- keppnin fækkaði þeim fljótt nið- ur í 200. Af þessum 200 frjálsu sjónvarpsstöðvum eru aðeins þrjár stórar sjónvarpsstöðvar með eitthvað um 2000 senda sem eitthvað mega sín, og eru þær all- ar í eigu eins auðmanns að nafni Silvio Berlo Sconi. Þessar „frjálsu" sjónvarpsstöðvar eru á ítölsku kallaðar: Le televisione private. Einar Freyr skrifar ítalska Ríkissjónvarpið er kall- að Rai (borið fram ,,ræ“). þ.e. Radio televisione Italiana. Hinar „frjálsu“ sjónvarps- stöðvar eða Le televisione pri- vate hafa aðeins fleiri áheyrendur en Ríkissjónvarpið Rai. Ástæðan fyrir því að ég dreg þetta fram í dagsljósið er sú, að nú er þegar komin talsverð reynsla fyrir þessu nýja „frelsi“ fjölmiðla á Ítalíu og sem er afar lærdómsríkt fyrir alla. Og hvað segir reynslan? Hefur þetta nýja „frelsi" verið nýskapandi kraftur fyrir ítölsk sjónvörp og ítalska áheyrendur? Einn af gáfuðustu blaðamönn- um Bandaríkjanna er kona að nafni Sary Gilberth. Hún starfar í Róm á vegum Washington Post og CBS-News. Hún hefur einmitt kynnt sér þessa þróun sjónvarps- ins á Ítalíu. Við skulum gera okk- ur ljóst að kona eins og Sary Gil- berth er persónuleiki sem lætur engan segja sér fyrir verkum, hvorki konunga, nóbelsverð- launahafa eða páfa. Dómar hennar um nienn og málefni eru mjög vel yfirvegaðir og sjálfstæð- ir. Hún vísar öllum rógi á bug og hatar hlutdrægni og óheiðarleika. Hún er sem sagt sannur, gáfaður og vel menntaður bandarískur blaðamaður. Það er því mjög áhugavert að kynna sér sjónar- mið hennar um reynsluna af ítölskum sjónvarpsstöðvum. Og hvað segir Sary Gilberth? Hún heldur því fram að hinar nýju „frjálsu" sjónvarpsstöðvar Le televisione private hafi ekki komið með neitt nýtt og séu alls ekki nýskapandi, þvert á móti. Einu áhrifin sem þær hafa haft á Ríkissjónvarpið eru þau að það sýnir nú fleiri kvikmyndir en áður. Og hún segir að hinar vönduðu dagskrár er hafa menn- ingargildi komi frá Ríkissjón- varpinu. Hin nýja þróun hefur leitt til þess að á hverjum sólar- hring árið um kring eru á Ítalíu sýndar eitt þúsund og tvöhundr- uð leiknar kvikmyndir í sjón- vörpunum. En hver var drifkrafturinn í hinum „frjálsu“ sjónvarpsstöðv- um? Aðalatriðið var að græða peninga á sjónvarpsauglýsingum. Fólkið var lokkað með tómum leiknum kvikmyndum sérstak- lega bandarískum myndum. En á sjö mínútna fresti var sýningin rofin og nýrri auglýsingu hleypt inn á milli. Ríkissjónvarpið sem fær um 50 prósent af tekjum sín- um frá auglýsingum, hefur sér- stakan tíma fyrir auglýsingar líkt og í íslenzka sjónvarpinu. ítalska Ríkissjónvarpið er upplýsandi menningartæki í beztu merkingu, en markmið hinna „frjálsu" sjón- varpa Le televisione private er peningagróði. Af þessum ástæð- um bendir Sary Gilberth á það, að hin „frjálsu“ ítölsku sjónvörp séu í raun og veru alls ekki „frjáls“, heldur þvert á móti. Hinar „frjálsu“ sjónvarps- stöðvar geta ekki orðið raunveru- lega „frjálsar" og nýskapandi nema með því að læra mikið af starfsemi Ríkissjónvarpsins Rai. Gautaborg 10.10. 1985, Einar Freyr. ^iögnL--------------------------------------------------------------------------- Það varnúþað... Það er haust, sláturtíð, ár æsk- fyrir launum slnum og greiddu styrkinn og gera loksins konum unnar og síðast en ekki síst, síðan af þeim fyrir vörur og og körlum jafnhátt undir höfði. kvennaáratugur. Þetta er ekki þjónustu. En þetta var kol- Þarna opnast körlum glfurlegur svo Iftið hvert fyrir sig, hvað þá ómögulegt kerfi og allt of einfalt. möguleiki. Má fullyrða að hér sé svona allt I einu, Haust og slát- Og nú var fundið upp nýtt kerfi, um að ræða mörg atvinnutæki- urtíð eru árlegir viðburðir en sem kalla má, hringrás pening- færi. æskulýðsár og kvennaáratug- anna, eða það sem enn réttara Eins og flestir ættu að vita, ur, eru mun sjaldgæfari fyrir- væri, hringavitleysu. Hún er í getur kona ekki átt barna nema brigði. Og brátt mun kvenna- því fólgin að fyrst fæ ég pening- á niu mánaða fresti. Hér er áratugurinn horfinn í aldanna ana í hendur en verð siðan að „karl-dýrið“ mun fullkomnara. skaut með misjafnlega mikilli greiða drjúgan slatta af þeim til Það er raunar engum tak- eftirsjá og jafnvel engri. ríkisins. Síðan greiðir ríkið mér mörkunum háð hvað þeir gætu Ég sá í viðtali við eina áratug- til baka svo að ég geti greitt þá þetta ört, en vandalaust ætti ar-valkyrjuna, að tilgangurinn aftur ríkinu. Einfalt og hentugt, það að vera hverjum meðal- meö þessu uppátæki væri sá ekki satt? manni að eiga eitt barn í viku. „að upplýsa hver væri staða Eitt af því sem við borgum til Miðað við núverandi fæðingar- konunnar í dag“. Þetta hlýtur aö ríkisins til að fá endurgreitt til styrk, gætu þetta orðið allra vera meira en lítið flókiö mál, þess aö borga aftur, er barns- sæmilegustu laun, sem þar að sem tekur tíu ár að upplýsa. burður. Það skal viðurkennt, að auki væri vonlaust að svíkja Undirritaður, sem er að vísu oftast mæðir meira á konum í undan skatti. Það skal tekið „karl-dýr“, telur í einfeldni sinni þessu sambandi, enda fá þær fram að þetta er auðvitað útilok- að mun hægara hefði verið að einar greiðslu fyrir. En þráttfyrir að nema með mjög náinni og fela einhverjum, - einstaklingi allt jafnréttistal, er kynjum herfi- góöri samvinnu kynjanna. En eða stofnun, að upplýsa þetta lega mismunað hvað þetta ekki ætti að vera ástæða að mál á svona viku eða tíu áhrærir. Allir greiða og þess kvíða í þessu sambandí. Við dögum. En mannskepnan er vegna eiga allir jafnan rétt til höfum nú verið svo góðir við merkilega iðin við þá iðju aö greiðslu til baka. þær, þessar elskur, undanfarin gera einfalda hluti flókna og Það gladdi því mjög mitt tlu ár, að þær ættu nú I staðinn helst óskiljanlega. „karla-hjarta", þegar ég frétti að vera dálítið góðar við okkur, Lengi vel var það fyrirkomu- um daginn að til stæði aö næstu tíu. lag allsráðandi, að menn unnu breyta þessu með fæðingar- Hógni. Eldridansaklubburinn Dansleikur verður í Húsi aldraðra, sími 23595, laugardaginn 26. okt. Húsið opnað kl. 21. Miðasala við innganginn. Allir velkomnir. Stjórnin. Ford Bronco árg 72, nýuppsmíöaður og klæddur, til sölu. Ekinn 500 km á vél. Uppl. í síma 95-6119 í vinnu, 95-6271 heim. Sólstofan er opin: ■«> Mánudaga - föstudaga frá kl. 9-23, laugardaga 10-19. Karlatímar föstudagskvöld frá kl. 19-23. ★ Nýjar perur ★ Sturtur ★ Sauna ★ Kaffi, te ★ Tónlist við hvern lampa ★ Góð snyrtiaðstaða Tryggvabraut 22 • Akureyri Sími 24979 Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 • Símar 41534 • Sérleyfisferðir ■ Hópferðir • Sætaferðir ■ Vöruflutningar Húsavík - Reynihlíð - Laugar - Akureyri VETRARÁÆTLUN 1985-86 S M Þ m m o= Frá Reynihlíð ki. ★ 08.00 Frá Laugum kl. 09.00 Frá Húsavík kl. 18.00 09.00 09.00 09.00 Frá Akureyri kl. 21.00 16.00 16.00 17.00 Frá Akureyri í Laugar og Mývatnssveit kl. 17.00 ★ Vöruflutningab. á þriöjud. Brottför um kl. 15.00 frá Ríkisskip Akureyri. Farþegar frá Mývatnssveit og Reykjadal eru sérstaklega hvattir til að panta daginn fyrir brottför á Hótel Reynihlíð sími 44170 eða hjá Flugleiðum Húsavík sími 41140. Afgreiðsla Húsavíkur: Flugleiðir, Stóragarði 7, s. 41140. Farþegaafgr. Akureyrar: Öndvegi hf., Hafnarstr. 82, s. 24442. Öll vörumóttaka Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu s. 23936. ATH. Vörur sem flytja á frá Akureyri þurfa að berast tímanlega. Sérleyfishafi. Nauðungaruppboð Mánudaginn 28. október kl. 14.00 verður eftir- greint lausafé selt á nauöungaruppboði, sem hefst aö Glerá Akureyri á fyrrgreindum tíma, en þar veröur seldur vinnuskúr og díselrafstöö 35kw tipe TT 18 International meö rafal og tilheyrandi. Uppboðinu veröur síðan framhaldiö að Klauf í Öngulstaöahreppi, þar sem annar vinnuskúr veröur seldur. Annar vinnuskúra þessara er 2,4x5 m og hinn 2,40x4 m. Uppboð þetta fer fram eftir kröfu Benedikts Ólafs- sonar hdl. Ávísanir ekki teknar gildar, sem greiðsla, nema með samþykki uppboöshaldara. Greiðsla viö hamarshögg. Bæjarfógetinn Akureyri, 18. október 1985. Sigurður Eiríksson, aðalfulitrúi.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.