Dagur - 28.10.1985, Qupperneq 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 28. október 1985 129. tölublað
Yngri kynslóðin var fjölmenn í Allanum sl. fimmtudagskvöld. Og krakkarnir fylgdust með af áhuga. Sjá nánar um
kvennafrídaginn á bls. 8. Mynd: KGA
Hraðfrystihús Þórshafnar:
Loðnumjölið unnið
með gufuþurrkun
- Slíkt mjöl sérlega gott fóður
„Við erum búnir að gera
samning um kaup á verk-
smiðju til loðnubræðslu og hún
er væntanleg hingað eftir ára-
mótin. Undirbúningur er hins
vegar í fullum gangi,“ sagði
Jóhann A. Jónsson fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss
Þórshafnar.
Árið 1965 var byggð síldar-
bræðsluverksmiðja á Þórshöfn en
stuttu seinna hvarf blessuð síldin
að mestu. Sú verksmiðja hefur
síðan verið notuð til beinavinnslu
og ekkert verið upp á hana kost-
að í endurnýjun.
„Við stóðum frammi fyrir því
að endurnýja verksmiðjuna ein-
göngu fyrir beinavinnslu áfram
en við sáum fram á að það dæmi
gengi ekki upp fjárhagslega. Því
tókum við þá ákvörðun að endur-
nýja verksmiðjuna með meiri
vinnslu í huga. Eftir sem áður
bræðum við bein en auk þess
loðnu og síld, þ.e.a.s. ef síldin
kemur aftur ti! bræðslu.“ sagði
Jóhann ennfremur.
Loðnumjölið verður unnið
með gufuþurrkun en slíkt mjöl
þykir sérlega gott tii fiskeldis og í
loðdýrafóður. Afkastagetan
verður 500-600 tonn á sólarhring
en verksmiðjan mun byggja upp
á endurnýtingu orkunnar þannig
að hráefnið er hitað upp með af-
gangsorku frá gufuþurrkurunum.
Stefnt er að því að gagnsetja
Fangageymslur lögreglunnar á
Siglufirði halda hvorki vatni
né vindi og öll vinnuaðstaða
lögreglunnar er með lakara
móti svo ekki sé meira sagt.
Blaðamenn Dags fóru til Siglu-
fjarðar og skoðuðu aðstöðuna
með eigin augum eftir að hafa
frétt að heilbrigðisfulltrúinn í
Norðurlandskjördæmi vestra.
verksmiðjuna á næsta hausti.
„Við settum það á oddinn að
út úr þessari vinnslu kæmu afurð-
ir sem svara til þess besta sem
þekkist á markaðinum," sagði
Jóhann A. Jónsson að lokum.
Viktoría Gestsdóttir, hafði dæmt
húsnæði lögreglunnar á Siglufirði
óhæft til þeirrar starfsemi sem
þar á að fara fram. Um fanga-
geymslurnar sagði hún í samtali
við Dag að hún hefði aldrei séð
annað eins og að hún hefði ekki
trúað því að óreyndu að ástandið
gæti verið svona slæmt.
Sjá bls. 3.
BB.
Lögreglustöðin á Siglufirði:
Vatnsósa
fangaklefar
Mjólkursamlag Húsavíkur:
Mjólkin var
innkölluð
„Við höfum lagt mikla áherslu
á vöruvöndun og finnst óskap-
lega leiðinlegt og sláandi að
þetta skuli koma fyrir. Við
höfum ekki átt við gæða-
vandamál að stríða í mörg
mörg ár og biðjum alla við-
skiptavini okkar velvirðingar,“
sagði Hlífar Karlsson mjólk-
ursamlagsstjóri á Húsavík.
I síðustu viku varð bilun í ger-
ilsneyðingarbúnaði mjólkursam-
lagsins sem olli því að mjólkin of-
hitnaði og óbragð kom af henni
eftir nokkurra tíma geymslu.
Á sjöunda þúsund lítra af
mjólk þurfti að innkalla vegna
þessarar bilunar. Annars flokks
ostar og smjör verður framleitt úr
mjólkinni sem skilað hefur verið.
Fjárhagslegt tjón vegna þessa
máls er ekki endanlega ljóst.
- IM
Hlífar Karlsson mjólkursanilagsstjóri við niælinn sein ekki sýndi rétt hitastig
og olli þannig ölluni leiðindunum. Mynd: IM.