Dagur - 28.10.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 28. október 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASfMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.__________________________________
Upp úr
skuldafeninu
íslendingar hafa árum saman eytt um efni fram
og það sem á hefur vantað hefur verið tekið að
láni erlendis. Skuldasöfnunin er bein afleiðing af
langvarandi viðskiptahalla við útlönd og nú er
svo komið að fjárhagslegt öryggi og efnahags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar er í hættu.
Á áttunda áratugnum þrefaldaðist raungildi
hinna erlendu skulda og á fyrri helmingi þessa
áratugar jukust þær enn um nálægt 45%.
Árið 1970 var hlutfall erlendra skulda af lands-
framleiðslu rúmlega 25%, árið 1980 30% og á
þessu ári er líklegt að það fari í 53%. Svipaða
sögu er að segja um hlutfall erlendra skulda af
útflutningstekjum.
Það er því ljóst að eitt brýnasta hagsmunamál
þjóðarinnar er að vöxtur erlendra skulda verði
stöðvaður með markvissum aðgerðum. Koma
þarf á jafnvægi í viðskiptum við útlönd og auka
ekki erlendar lántökur umfram það sem þarf til
greiðslu afborgana af eldri skuldum.
Með tilliti til stærðargráðu þess vanda sem við
blasir er ólíklegt að hann verði leystur í einu vet-
fangi. Það hlýtur að taka sinn tíma.
í þjóðhagsáætlun þeirri sem forsætisráðherra
hefur lagt fram á Alþingi kemur fram að ríkis-
stjórnin hefur áttað sig á því að raunhæfast er að
vinna á vandanum með markvissum aðgerðum á
nokkrum árum. Þjóðhagsáætlunin nær því til
þriggja ára nú í stað eins áður.
í þjóðhagsáætluninni segir:
„Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið í
efnahagsmálum að stöðva skuldasöfnun erlend-
is. Þetta felur í sér meðal annars að nýjar lántök-
ur erlendis takmarkist við afborganir af eldri
lánum. Á hinn bóginn er ljóst að sá viðskipta-
halli sem fyrirsjáanlegur er, bæði á þessu ári og
hinu næsta, verður ekki fjármagnaður nema með
erlendum lántökum. Ef stöðva á vöxt erlendra
skulda á næstu árum þarf að leggja áherslu á
ráðstafanir til að örva útflutning og jafnframt
halda aftur af þjóðarútgjöldum og innflutningi. “
Á öðrum stað segir:
„Alhliða uppbygging atvinnu- og efnahagslífs
er forsenda hagvaxtar við þær aðstæður sem nú
ríkja í íslenskum þjóðarbúskap. Þetta er lang-
tímaverkefni, sem krefst þolinmæði og þraut-
seigju. Með hóflegri bjartsýni um árangur að-
gerða til að auka þjóðarframleiðslu, einkum út-
flutningsframleiðslu, og sé jafnframt gert ráð
fyrir viðunandi stöðugleika í efnahagslífinu og
að ekki komi til alvarlegra ytri áfalla, má gera ráð
fyrir að þjóðarframleiðsla aukist á næstu árum,
um 2% á ári til jafnaðar. Þessi aukning gæti nægt
til að stöðva vöxt erlendra skulda án þess að lífs-
kjör rýrnuðu."
Vonandi tekst vel til um framkvæmd þjóð-
hagsáætlunarinnar. En þjóðin verður að standa
saman því öðruvísi er ekki von til að henni takist
að finna leið upp úr skuldafeninu. BB.
_v/ófa/ dagsins.
„Ég skreið úr móðurkviði inn í
veröldina í hríðarveðri. Það
var árið 1905.“ Þannig mæltist
Guðmundi L. Friðfinnssyni er
hann var búinn að tylla sér á
stól hjá okkur á ritstjórninni
fyrir stuttu.
Attræður maður og hress til
sálar og líkama Guðmundur.
„Ekki man ég eftir þessum at-
burðum þó ég vildi. Þess vegna
get ég ekki borið á móti því að ég
er kominn á þennan aldur, því
þetta er skráð í kirkjubækur af
heiðurspresti, séra Birni Jónssyni
á Miklabæ.“
Guðmundur er fæddur á Egilsá
í Skagafirði og hefur búið þar all-
an sinn búskap. Hann er þekktur
að mörgu. Til dæmis var hann
lengi með barnaheimili á Egilsá,
hann er mikill áhugamaður um
skógrækt, auk þess sem hann hef-
ur fengist við ritstörf um langt
árabil.
„Fyrstu bækurnar mínar komu
út árið 1950. Það voru tvær
barnabækur sem heita Bjössi á
Tréstöðum og Jónsi karlinn í
Koti og telpurnar tvær. Eftir
þetta hef ég skrifað skáldsögur,
ævisögu, frásagnabók, ljóðabók
og leikrit sem hafa verið í útvarpi
og stuttan sjónvarpsþátt."
Um þessar mundir er að koma
út síðara bindi af frásagnasafni
sem Guðmundur hefur skrifað.
Það nefnist Örlög og ævintýri.
„Það er um lífið og tilveruna,
æviþætti margra manna. Sagnir
og munnmæli, þjóðsögur í gam-
ansömum dúr,“ eins og Guð-
mundur orðar það sjálfur.
Auk þess er hann að gefa út
lejkrit eftir sig sem hann kallar
Sumarjól. „Það er hálfgildings
söngleikur með tónlist eftir Árna
ísleifsson. Leikrit í léttum tón.“
- Hvernig hefur gengið að fá
leikritin sýnd?
„Það hefur ekki gengið nógu
vel,“ segir Guðmundur. „Ég hef
reynt að senda leikhúsunum
þetta, en það er eins og það sé
erfitt fyrir mann sem er óþekktur
og býr úti á landi að fá verk sín á
fjalirnar. Það virðist gegna allt
öðru máli fyrir menn sem búa í
Reykjavík og eiga jafnvel maka
sína innan leikhúsanna að fá verk
sín birt. Ég á mér þá von að ég fái
eitthvert leikrita minna á fjalirn-
ar áður en ég er allur.“
Barnaheimilið
„Þetta varð þróun í þá átt að við
hjónin stofnuðum barnaheimilið
á Egilsá. Frá því við konan mín
Anna Sigurbjörg Gunnarsdóttir
hófum búskap höfum við alltaf
haft börn á heimilinu. Endirinn
varð sá að við vorum með barna-
heimili sem hafði heimild fyrir
áttatíu og fimm börnum. Það var
oft strembið og miklar vökur yfir
„Tíminn er það
eina sem maður á“
Guömundur L.Friðfinnsson í viðtali dagsins
Mynd: KGA
byrjað skógrækt árið 1941 eða
1942. Mínar fyrstu plöntur fékk
ég hjá Hákoni Bjarnasyni skóg-
ræktarstjóra. Síðan hef ég haft
þetta sem áhugamál. Var að
girða stóran skika í landi Egilsár,
sem ég ætla að nota undir
skógrækt. Þar verð ég með lerki,
björk, greni, ösp, furu og fleiri
tegundir.“
- Eitthvað að lokum?
„Það er þetta með tímann.
Tíminn er það eina sem maður á.
Þess vegna er nauðsynlegt að fara
vel með hann. Tíminn er það
eina sem mér finnst ég ekki hafa
haft nóg af í lífinu. Ég er ánægð-
ur með allt hitt. Tíminn sem flýt-
ur um hendur manns hvert
augnablik er raunverulega það
eina sem maður á.“ - gej
„Ég er ánægður með allt hitt.“
þessum elskum. Mér hefur alltaf
þótt mjög vænt um börn og þess-
ar elskur sem hjá okkur voru,
fannst mér alltaf vera okkar
börn. Það var undantekning ef
mér þótti ekki vænt um barn sem
hjá okkur var. Oft fæ ég líka bréf
og heimsóknir frá börnum sem
voru hjá okkur og samband hef
ég við margt fólk sem nú er full-
orðið og flogið út um allan
heim.“
Búskapur og trjárækt
„Búskapurinn var ekki burðugur
til að byrja með. En það rættist
furðuvel úr honum og eiginlega
finnst mér ég hafi búið nokkuð
vel. Ég er hættur að búa í dag og
hef snúið mér meira að skógrækt-
inni. Það má segja að ég hafi
£G A/O£k/OÐ Ofr
rt/A/GOÐ / A'J/}U//£A////-
£& £K A/£FA//l£GA S/O
//EPP/A/A/ /}Ð á/OA/OA/
S£/L (JP E//G £££/.