Dagur - 28.10.1985, Page 12

Dagur - 28.10.1985, Page 12
RAFGEYMAR viðhaldsvfeSrétt í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉUNA MERKI Dynheimar: Einhverjar aurskriður féllu en ollu ekki umtalsverðu tjóni. Elstu menn á Sigiufirði og í Svarfaðardal segjast ekki muna eftir öðru eins flóði, jafnvel í mestu vorleysingum. - BB. Senn líður að því að félagsmið- stöðin Dynheimar verði tekin formlega í notkun að nýju eftir gagngerar breytingar. Akveðið hefur verið að vígja húsið við hátíðlega athöfn föstudaginn 15. nóvember nk. Húsið var byggt laust eftir síð- ustu aldamót. Fyrst í stað gegndi það hlutverki kvikmyndahúss, síðan varð það samastaður frí- múrara uns karlakórinn Geysir eignaðist húsið. Árið 1972 leigði Akureyrarbær efri hæðina og húsið varð félagsmiðstöð. Árið 1975 var húsið orðið eign bæjar- ins og hlaut nafnið Dynheimar sem merkir „hinn hávaðasami, jarðneski heimur“, sem er vel við hæfi því oft ríkir glaumur og gleði í félagsmiðstöðinni. Þeir eru þó margir sem alltaf tala um Lón eða gamla Lón þegar rætt er um Dynheima. Árið 1983 keypti Akureyrar- bær neðri hæð Dynheima af Kaupfélagi Eyfirðinga og skömmu síðar var hafist handa við breytingar. Þær eru nú orðnar svo viðamiklar að nær lagi er að tala um byltingu. Það má nefni- lega segja að dansgólfið uppi sé það eina sem eftir er af gömlu Dynheimum, enda gott dansgólf! Gólfið niðri var allt brotið upp og nýtt steypt í staðinn. Skipt var um alla glugga og útihurðir og húsið allt einangrað, bæði þak og veggir. Það er því hægt að halda jöfnum hita í húsinu allt árið nú en áður var það svo að ef mjög kalt var í veðri þurftu þeir sem í húsinu voru helst að klæðast heimskautafatnaði. Skipt var um allar lagnir í hús- inu, raflögn og hitalögn og auk þess settar upp lagnir fyrir hátal- arakerfi, myndbandakerfi og eld- varnakerfi. Á neðri hæðinni eru nú 2 salir, sýningarsalur og kaffi„tería“, sem nýtist einnig sem fundarað- staða. Þá er þar einnig eldhús, sem reyndar er ekki stórt, en ger- ir það að verkum að mjög góð aðstaða er til að taka á móti hóp- um til gistingar. Á efri hæð er búið að umbylta nánast öllu nema dansgólfinu eins og áður sagði. Þá hefur húsið verið málað að utan. Það sem þyrfti að gera til að fullkomna verkið er að ganga frá brekkunni bak við húsið þannig, að hún hætti að síga á húsið. Það er sama vandamálið þar og verið hefur hjá Samkomuhúsinu og gamla barnaskólanum. Það er ljóst að þessar breyting- ar og endurbætur hafa verið gerðar af stórhug og með þeim sýna bæjaryfirvöld í verki hug sinn til ungs fólks á Akureyri. Dynheimar verða formlega teknir í notkun sem alhliða fé- lagsmiðstöð þann 15. nóvember og má segja að það sé vel við hæfi á þessu ári æskunnar. _ BB. Svarfaðardalsáin rauf stór skarð í veginn við brúna yfir að Hæringsstöðum og hefði híllinn á myndinni ekki mátt fara öilu framar, því þá hefði hann stungist ofan í iðuna. Mynd: KGA Siglufjörður, Svarfaðardalur: Allt á floti alls staðar! Miklir vatnavextir urðu á Siglufirði og í Svarfaðardal á föstudag og laugardag vegna mikillar úrkomu. Á fimmtudag snjóaði og á föstudag rigndi og var því mikið vatnsmagn í ám. Á Siglufirði flæddu Hvanneyr- ará og Bæjarlækurinn svonefndi yfir bakka sína og náði flóðið niður í Miðbæ. Flæddi víða inn í kjallara húsa og varð tjón víða af þeim sökum. Að sögn lögreglunnar á Siglu- firði náði vatnsborðið í einum kjallaranum 60 cm hæð og komu húsgögnin siglandi á móti húsráð- anda er hann kom heim úr vinnu og opnaði útidyrnar! Þá féllu nokkrar aurskriður úr fjallinu ofan við bæinn en varnar- garðar stöðvuðu þær að mestu. 5-6 metra há auraskriða féll á veginn við Sauðanes. Veghefill var á veginum og náði skriðan upp á glugga veghefilsins. Sex bæir frammi í Svarfaðardal einangruðust þar sem brýr létu undan vatnsflaumnum. Sandá, sem er þverá innarlega í Svarfaðardal að vestan, gróf undan brú og flæddi yfir veg þannig að 3 innstu bæirnir, Kot, Atlastaðir og Þorsteinsstaðir voru innilokaðir. Bæirnir Skeið, Hæringsstaðir og Búrfel! urðu einnig vegasam- bandslausir þar sem Svarfaðar- dalsáin gróf undan veginum öðru megin við brúna. Kaupa Fiugleiðir ATR-42 vélamar? - Framleiðendur gera Flugleiðum annað tilboð Flugleiöamenn bíða nú eftir nýju tilboöi frá framleiðendum ATR-42 farþegaflugvélarinn- ar, en ein slík vél var hér á landi á dögunum og var þá kynnt Flugleiðamönnum og öðrum framámönnum flugsins á íslandi. Að sögn Sæmundar Guðvins- sonar fréttafulltrúa Flugleiða lík- aði Flugleiðamönnum mjög vel við flugvélina er þeim var sýnd hún hér á dögunum. Þó hefur vélin galla varðandi flug hérlend- is, t.d. hvað varðar hjólaútbúnað hennar en einhverjar ráðstafanir yrði að gera varðandi hann til þess að vélin gæti notast við mal- arvelli hér á landi. Þá er farang- ursrými nokkuð minna en er í Fokker-vélunum. Framleiðendur vélarinnar sem eru ítalskir og franskir höfðu gert Flugleiðum tilboð um að selja þeim vélar, og var það gert áður en vélin kom hingað. Buðust þeir m.a. til þess að taka Fokker-vélar ATR-42 vélin á Akureyrarflugvelli fyrir skömmu Mynd: gk-. Flugleiða upp í, og einnig að út- vega félaginu lán til kaupanna. Samkvæmt þessu tilboði var reiknað út að fargjöld hér innan- lands þyrftu að hækka um 15- 20%. Þá hafði verið reiknaður út sparnaður Flugleiða vegna við- halds og eldsneytis, en á móti kom fjármagnskostnaður vegna kaupanna. Framleiðendum ATR-42 vél- arinnar var gerð grein fyrir þess- um niðurstöðum er þeir voru hér á landi á dögunum. í kjölfar þess ætla þeir að endurskoða sitt fyrra tilboð og er þess jafnvel að vænta að þeir komi með tilboð sem yrði Flugleiðum hagstæðara. Það kann því svo að fara að ATR-42 vélarnar taki við af Fokker-vél- unum sem hafa verið í innan- landsfluginu og reynst afar vel. gk-- Bílum stoliö og rúða brotin Tveimur bílum var stoliö á Ak- ureyri um helgina. Þeir hafa báðir komið í leitirnar, óskemmdir, en þjófurinn eða þjófarnir ekki náðst. í báðum tilfellum voru bílarnir ólæstir og tilbúnir til notkunar því lyklarnir voru á vísum stað í „svissinum“. Fyrri bílnum var stolið aðfara- nótt laugardags frá Hjallalundi. Hann fannst niður á Eyri á laug- ardeginum. Aðfaranótt sunnudags þurfti einhver sem var á leið um Þing- vallastræti nauðsynlega að kom- ast upp í Lundahverfi og tók því ófrjálsri hendi bifreið sem stóð við Þingvallastrætið og ók henni áfallalaust upp eftir. Bíleigendurnir sluppu því með skrekkinn að þessu sinni en ástæða er til að brýna fyrir öku- mönnum að ganga tryggilega frá bifreiðinni að akstri loknum svo hún haldi kyrru fyrir þar til grípa á til hennar að nýju. Að öðru leyti var þessi helgi tíðindalítil hjá lögreglu á Norð- urlandi utan að eyðileggingar- hvöt greip ungan mann í Hafnar- stræti á Akureyri á sunnudags- nóttina og braut hann stóra rúðu í Amaróhúsinu. Hann náðist og játaði sekt sína. BB. Allt nýtt nema dansgólfið!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.