Dagur - 07.11.1985, Blaðsíða 3
7. nóvember 1985 - DAGUR - 3
Hundahald á Akureyri:
Leyfisgjald hækkar
Þeir sem halda hund á Akur-
eyri þurfa að greiða 1600 krón-
ur í leyfísgjald fyrir árið 1986 í
stað 1200 króna í fyrra. Þetta
var samþykkt í bæjarstjórn
Akureyrar í gær, þriðjudag.
Samkvæmt lögum er hunda-
hald bannað á Akureyri að
undanteknum hundum á lögbýl-
um, leiðsöguhundum til hjálpar
blindu fólki og leitarhundum til
hjálpar björgunarsveitum.
Bæjarstjórn Akureyrar er þó
heimilt að veita mönnum búsett-
um í bænum undanþágu til
hundahalds, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum.
Þannig þarf að skrá hundana
og greiða leyfisgjald fyrir þá, þeir
verða að vera ábyrgðartryggðir
og mega hvorki ganga lausir á al-
mannafæri né heldur raska ró
bæjarbúa á nokkurn hátt. Þá
verða hundaeigendur að hlíta
lögum og reglugerðum um
hundahald, sem m.a. felur í sér
að færa verður hundana til ár-
legrar hreinsunar.
í dag eru um 210 hundar á skrá
á Akureyri.
Valdimar Brynjólfsson heil-
Rudi kynnir
Mayrhofen
Hinn góðkunni og síglaði
skíðagarpur og leiðsögumað-
ur Rudi Knapp, sem fjöl-
margir Akureyringar og aðrir
landsmenn kannast við, eftir
að hafa notið Ieiðsagnar hans
í skíðalöndum við Mayrhofen
í austurrísku ölpunum, er nú
staddur á Akureyri.
Hann mun í dag veita þeim
sem áhuga hafa allar upplýsing-
ar um þessa skíðaparadís, sem
Flugleiðir selja ferðir til. Hægt
verður að hitta Rudi á Ferða-
skrifstofu Akureyrar á opnun-
arttma skrifstofunnar.
Fyrsta ferðin verður farin 21.
des., þá 4. jan., 18. jan og 1.
febr., en eftir það verða ferðir
hvern laugardag frá 15. febr. til
29. mars. HS
Amtsbókasafnið:
Sr. Matthíasar
minnst
Hinn 11. nóvember næstkom-
andi eru liðin 150 ár frá fæð-
ingu þjóðskáldsins síra Matthí-
asar Jochumssonar.
í tilefni afmælisins verður hald-
ið Matthíasarkvöld í Akureyrar-
kirkju á vegum Amtsbókasafns-
ins á Akureyri mánudaginn 11.
nóvember og hefst það kl. 21.
Þar mun dr. theol. Sigurbjörn
Einarsson biskup minnast síra
Matthíasar og lesið verður úr
verkum skáldsins. Kammersveit
Tónlistarskólans á Akureyri leik-
ur og Kirkjukór Akureyrarkirkju
syngur.
Amtsbókasafnið og Mennta-
skólinn á Akureyri hafa í sam-
vinnu látið prenta dálítið kver
með völdum ljóðum sr. Matthí-
asar, sem áformað er að gefa öll-
um skólanemum á Akureyri á af-
mælisdaginn og er þess vænst að
kennarar verji einhverri stund
þann dag til að minnast þjóð-
skáldsins.
Á lestrarsal Amtsbókasafnsins
verður sýning á ritum skáldsins
og fleiru er tengist minningu
hans. Mun sú sýning standa í 10-
15 daga.
Síra Matthías Jochumsson var
fyrsti heiðursborgari Akureyrar-
bæjar og um leið fyrsti heiðurs-
borgarinn á íslandi.
Húsavík:
Réttindanam
skipstjóra og
vélstjóra hafið
„Það er ákaflega ánægjulegt
að fá nógan mannskap til að
geta komið þessu námi á hér á
staðnum,“ sagði Sigurjón Jó-
hannesson skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Húsavíkur í gær,
en 11 skipstjórar og 7 vélstjór-
ar sem starfað hafa með
undanþágu mættu til skólans í
gær og voru þar kynnt náms-
gögn og fleira.
brigðisfulltrúi sagði að allt of al-
gengt væri að menn virtu ekki
þessa samþykkt um hundahald
og oft væri kvartað undan hund-
um sem gengju lausir um bæinn.
„Hins vegar er reglugerðin
svolítið gloppótt, sérstaklega
hvað varðar töku lausra hunda,
og því erfitt að vinna eftir henni.
Þannig hefur verið uppi ágrein-
ingur á milli bæjaryfirvalda og
lögreglunnar um það hver eigi að
handsama þessa lausu hunda,“
sagði Valdimar ennfremur. Hann
kvaðst vona að reglugerðinni yrði
eitthvað breytt, þannig að skýrt
kæmi fram hver ætti að sjá um að
samþykktir væru haldnar og þá
væri einnig þörf á að taka upp ná-
kvæmari skráningu en nú tíðkað-
ist.
Valdimar benti á að því oftar
sem samþykkt um hundahald er
brotin aukast líkurnar á því að
hundahald verði með öllu
bannað.
Til samanburðar má geta þess
að leyfisgjald á Dalvík er 2500
krónur en mun hærra í Reykja-
vík eða 6000 krónur. Engar regl-
ur hafa hins. vegar gilt hér um
hvað kosti að leysa hund úr
„gæsluvarðhaldi" sem gripinn
hefur verið á röltinu. Eigandinn
hefur kannski þurft að borga 100
krónur, mest til málamynda. Án
þess að verið sé að benda á fyrir-
mynd gilda þær reglur á Hellu
á Rangárvöllum að hver sem er
má handsama lausan hund og fær
fyrir það vegleg peningaverð-
laun. Á Akureyri er slík tekju-
öflunarleið ekki í boði enn, hvað
sem síðar verður. BB.
Amtsbókasafnið á Akureyri
Matthíasarkvöld
í Akureyrarkirkju 11. nóvember 1985, kl.
21.00.
Kammersveit Tónlistarskólans á Akureyri leikur,
stjórnandi Oliver Kentish.
Setningarávarp, Guðmundur Heiðar Frímanns-
son, ritari bókasafnsnefndar.
Dr. theol. Sigurbjörn Einarsson biskup minnist
Matthíasar Jochumssonar.
Söngur, Kirkjukór Akureyrarkirkju.
Upplestur, Arnar Jónsson leikari.
Söngur, Kirkjukór Akureyrarkirkju.
Aðgangur ókeypis.
Amtsbókasafnið.
Hundaeigendur
Akureyri
Lögboðin hundahreinsun á Akureyri verður föstu-
daginn 8. nóv. kl. 16-18 og laugardaginn 9. nóv.
kl. 10-12, í áhaldahúsi Gróðurstöðvarinnar.
Greiða ber leyfisgjald fyrir 1985, kr. 1.600,- og
framvísa kvittun fyrir greiðslu iðgjalds af ábyrgð-
artryggingu.
Árangur hreinsunar er betri ef hundarnir eru fast-
andi þegar hreinsun fer fram.
Enn hefur sullaveiki ekki verið útrýmt. Mætið því
vel og losið heimilisfólk og aðra við þá hættu sem
er samfara óhreinsuðum hundum.
Heilbrigðisfulltrúi.
í dag hefst kennsla, en þeir
ætla að stunda nám sem skipulagt
er af Vélskóla íslands og Stýri-
mannaskólanum, til að öðlast
réttindi. Áætlað er að skóli þessi
standi rúma þrjá mánuði og til að
stytta námstímann verður einnig
kennt á laugardögum. Kennslan
mun fara fram víðar en í skólan-
urn, nt.a. á verkstæðum til að fá
aðgang að tækjum sem þar eru
fyrir. IM/Húsavík
crístal
vönduðu bresku
vegg-og gólfflísarnar
Steinprýði hf. hefur tekið við
umboði John Lindsay hf. á
Islandi fyrir hinar þekktu
framleiðsluvörur breska fyrir-
tækisins H & R Johnson
Tiles, og fyrirtækjanna A G
Tiles og Maw & Co.
Fyrirtækin eru þekkt fyrir
vandaða og fjölbreytta fram-
leiðslu á CRISTAL vegg- og
gólfflísum, auk fylgihluta og
margvíslegrar gjafavöru úr
gleri.
Verðið er hagstætt og í
sumum tilvikum lægra, en
áður hefur þekkst hér á landi.
Steinprýði hefur fyrirliggj-
andi sýnishorn ásamt öllum
nánari upplýsingum, og
býður nýja viðskiptavini og
að sjálfsögðu gamla viðskipta-
menn velkomna.
Nýr umboðsmaður á íslandi
ISsteinprýðihf.
Stórhöföa16 slmi 83340-84780
Umboðsmaður á Akureyri:
^skaptif