Dagur - 07.11.1985, Blaðsíða 12
AKUREYRI
Akureyri, fímmtudagur 7. nóvemb
Skipagötu 12 • Sími 21464
Núerpaðptían
CROWN „
CHICKEN *
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Sjávarútvegsráðherra:
10% aukning
þorskafla
A aðalfundi Landssambands
íslenskra útvegsmanna í gær
sagði Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra að um
10% aukningu á þorskveiðum
íslendinga yrði að ræða á
næsta ári, miðað við veiðina
eins og hún verður á árinu
1985. Þessi áætlun yrði þó
endurskoðuð í vor er frekari
rannsóknir fiskifræðinga hefðu
farið fram.
Þetta gæti þýtt að leyft yrði að
veiða um 340 þúsund tonn af
þorski á næsta ári. Kvótinn fyrir
árið 1985 var 265 þúsund tonn,
en ljóst er að heildar þorskveiði
yfirstandandi árs mun þó nema
310-315 þúsund tonnum. Það að
veiðin á árinu 1985 verður þetta
meiri en upphaflega var áætlað
stafar m.a. af því að útgerðar-
menn hafa fært af kvóta annarra
tegunda yfir á þorsk og þá hefur
veiði togara með sóknarmark
þarna sitthvað að segja og einnig
veiði smábáta. Á sama hátt gæti
því áætluð tála fyrir næsta ár 340
þúsund tonn hækkað nokkuð.
Halldór sagði einnig að á
undanförnum árum hefði margt
verið gert til þess að rétta við eft-
ir að hið slæma ástand þorsk-
stofnsins kom upp. Enn skorti
þó mikið á að allir þeir er störf-
uðu að sjávarútvegi væru ánægð-
ir, en sjávarútvegurinn yrði í
framtíðinni að búa við heilbrigð-
an rekstrargrundvöll.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði á fundinum í gær að
útkoma útgerðarinnar væri nú
betri en undanfarin ár, þótt hún
væri enn ekki viðunandi. gk-.
Hrútur í heiminn
Hann var þrælsprækur sá svarti, svona seint, þó hefur borið við fæðst hefði í september. Hrússi
þótt ungur væri og vetur í bæ. að þau væru að fæðast í ágúst litli virtist „ffla“ sig vel í snjón-
Hrútur sem fæddist fyrsta nóv- eða september. um og fór vel á með honum og
ember sl. á bænum Skriðulandi Krístján Guðmundsson, henni Berglindi Ásu, dóttur
í Arnarneshreppi. Það er held- bóndi að Skriðulandi, sagðist Kristjáns bónda.
ur óvenjulegt að lömb fæðist eiga eina ársgamla kind sem Mynd: KGA.
Meleyri hf. á Hvammstanga:
Skelfiskvinnsla
hófst í morgun
- Veiðar frjálsar til áramóta
í gær var landað fyrsta skel-
farminum á þessari vertíð hjá
Meleyri hf. á Hvammstanga og
hefst skelvinnslan þar í dag.
Aðeins einn bátur verður á
skelveiðunum, a.m.k. til að
Kosningaskjálfti hjá
sjálfstæðismönnum
Svo sem fram kom í Degi sl.
þriðjudag hefur bæjarráð Ak-
ureyrar ákveðið að byggð skuli
innisundlaug við Glerárskóla
sem fyrst og fremst verði notuð
til sundkennslu.
Sigurður J.Sigurðsson, bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði
í fjölmiðlum að hann ætti mestan
Síldarsöltun
á Húsavík
Björg Jónsdóttir ÞH landaði í
gær 80 tonnum af síld á Húsa-
vík.
Þetta var fyrsta síldin sem hring-
nótarbátur kemur með hingað í
haust, og fyrri af tveimur förmum
sem Björg mun landa hér en þeir
eru þeir síðustu af kvóta hennar.
Síldin er mjög stór og góð að
sögn Ólafs Bjarnasonar fiskmats-
manns og hún fékkst öll í einu
kasti. IM Húsavík/gk-.
heiður af því að þessi leið varð
fyrir valinu og sagðist ánægður
með að hafa fengið bæjarráð á
sitt band í máli þessu.
„Ég er svolítið hissa á þessu
frumhlaupi nafna míns“, sagði
Sigurður Jóhannesson, bæjarfull-
trúi Framsóknarflokksins og for-
seti bæjarstjórnar í samtali við
blaðamann. „Þarna er ekki um
Sigurður Jóhannesson.
neina stefnubreytingu bæjarráðs
að ræða. í vor lagði ég fram til-
lögu um að leitað yrði eftir áliti
íþróttaráðs og skólanefndar á því
að byggja innisundlaug við Gler-
árskóla tii sundkennslu á grunn-
skólastigi. Þessi tillaga var sam-
þykkt í bæjarráði og eftir að
skólanefnd og íþróttaráð höfðu
ályktað um þetta mál var ljóst að
þessi leið yrði farin og jafnframt
að gert yrði ráð fyrir fjárveitingu
til þessara framkvæmda við gerð
næstu fjárhagsáætlunar.
Sigurður Jóhannesson sagði að
ekki hefði tíðkast hingað til að tí-
unda hver ætti heiðurinn af af-
greiðslu einstakra mála í bæjar-
ráði en ljóst væri að tillaga Sig-
urðar J. Sigurðssonar um að láta
hanna þessa sundlaug hafi ekki
gért annað en að flýta afgreiðslu
málsins um einhverjar vikur.
„Kannski er skýringin á þessu
frumhlaupi nafna míns sú að
kominn sé kosningaskjálfti í
sjálfstæðismenn", sagði Sigurður
Jóhannesson að lokum. BB.
byrja með og er ástæðan sú að
verð á skelfiski hrapaði nýlega
á erlendum mörkuðum og því
þótti ekki ráðlegt að senda
fleiri báta á þessar veiðar að
sinni, að sögn Hreins Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra
Meleyrar hf.
Hreinn sagði að þeir hefðu
munnlegt vilyrði fyrir því að þeir
mættu veiða ótakmarkað af skel-
fiski það sem eftir er af árinu þar
sem fyrirsjáanlegt er að ekki
verður veitt upp í þann heildar-
kvóta sem ákveðinn hafði verið
fyrir Húnaflóasvæðið. Þetta kem-
ur Meleyri til góða þar sem að-
eins 3 tonn voru eftir af upphaf-
legum kvóta verksmiðjunnar fyr-
ir þetta ár.
Fimm bátar frá Hvammstanga
eru á rækjuveiðum á Húnaflóa og
leggja þeir rækjuna upp hjá Mel-
eyri. Rækjuveiðarnar ganga
mjög vel um þessar mundir og
liggur rækjan öll austan megin í
flóanum sem er óvanalegt. Ekki
er almennilega vitað hvernig
stendur á þessu háttalagi rækj-
unnar en menn geta sér þess til
að hún hafi flúið inn á firðina að
austanverðu undan þorski sem
var óvenju mikill í Húnaflóa í
haust. -yk.
Loðnubræðsla og heilsugæslustöð
Miklar framkvæmdir eru í
gangi á Þórshöfn og í nágrenni
um þessar mundir. Þar er haf-
inn undirbúningur aö byggingu
loðnuverksmiðju sem áætlað
er að taki til starfa næsta haust
og á hún að anna 500 tonnum
á sólarhring að meðaltali.
Einnig er hafin bygging heilsu-
gæslustöðvar, 440 fermetra að
flatarmáli, og er vonast til að
byggingu hennar ljúki á tveimur
árum. Með tilkomu heilsugæslu-
stöðvarinnar vonast Þórshafnar-
búar til að betra lag komist á heil-
brigðismál staðarins.
Þriðju stórframkvæmdirnar
sem vert er að minnast á er lagn-
ing vegar að væntanlegri ratsjár-
stöð NATO á Gunnólfsvíkur-
fjalli. íslenskir aðalverktakar sjá
um lagningu vegarins en heima-
menn hafa fengið vinnu við vega-
gerðina fyrir bæði vörubíla og
vinnuvélar og er áætlað að vinna
um 3 mánuði í vetur við lagningu
vegarins. Hvernig það gengur fer
að vísu nokkuð eftir veðri. -yk.