Dagur - 07.11.1985, Side 5
7. nóvember 1985 - DAGUR - 5
-jnyndböncL
Smash Palace
Smash Palace er ein af þessum
nýsjálensku myndum sem sífellt
koma á óvart. í þessari eins og
t.d. í Bad Blood er fjallaö um
einstaklinginn sem lendir í að-
stöðu sem rekur hann síðan til
óyndisaðgerða. Ekki er þessi þó
eins hörmuleg og Bad Blood.
Fyrrverandi kappaksturshetja
snýr til heimahaganna með
franskættaðri eiginkonu sinni.
Tekur við rekstri eins konar bíla-
partasölu eftir föður sinn. Unir
þar sínum hag en eitthvert óyndi
er í konunni. Pau skilja og þá
hefst baráttan um umgengnisrétt
hans við dótturina. Ekki meira
um það nema: „Hún er dóttir
mín og ég geri það sem mér
hentar," segir aðalsöguhetjan.
Þetta er mynd sem snertir svo-
lítið við fínu tilfinningunum, svo-
lítið hörkuleg en ekki um of.
- HS
Einkunnagjöf: ***Vi
Cotton Club
Einhver hafði sagt mér að ég
skyldi nú ekki reikna með of
miklu af þessari mynd, þannig að
ég vænti ekki of mikils. Varð
ekki fyrir vonbrigðum, því Cott-
on Club er mjög góð. Menn
skyldu ekki ætla að hér sé á ferð-
inni dæmigerð Mafíumynd frá
bannárunum í Bandaríkjunum.
Glæpaforingjar eru reyndar ekki
langt undan, en myndin snýst um
fjölmargt annað, m.a. tónlistina
og andrúmsloftið almennt sem
ríkti á þessum tímum millistríðs-
áranna. Myndin skilar þeim blæ
vafalaust mjög vel. Klippingar
milli tónlistar- og skemmtiatriða
annars vegar, og undirheima-
starfseminnar hins vegar eru
hreint frábærar. Tæknilega er
þessi mynd mjög vel gerð, leikur
með ágætum og engir veikir
hlekkir þar í. Mest áberandi er
Richard Gere, Diane Lane og
Gregory Hines.
Eins og áður sagði gerist
myndin á bannárunum í New
York. Jassinn er upp á sitt besta
og svertingjar eru í aðalhlutverk-
um í Baðmullarklúbbnum.
Áhorfendur eru hins vegar ein-
vörðungu hvítir. Leynivínsalar
berjast um völd og áhrif og gróða
og gengur á ýmsu. Francis Ford
Coppola og hans mönnum hefur
tekist mjög vel upp. í flestöllum
öðrum myndum frá þessum tíma
er aðeins sýnd ein hlið á mannlíf-
inu - glæpamenn með vélbyssur
sem brytja hver annan niður.
Sem betur fer er þessi ekki ein af
þeim.
Fyrirtæki sem heitir JB-mynd-
bönd hefur séð um fjölföldun á
myndinni. Þeir hafa nánast eyði-
lagt hljóðið, sem er þó svo mikil-
vægt í þessari mynd og fá lægstu
einkunn fyrir. Myndin hins vegar
allt annan dóm. - HS
Einkunnagjöf: ****
Arch of
Triumph
Arch of Triumph er gerð eftir
skáldsögu Eridi Maria Remar-
ques og mun áður hafa verið gerð
mynd eftir þessari sögu. Sögu-
þráðurinn er í stuttu máli sá, að
þýskur læknir neyðist til að flýja
Pýskaland nazismans nokkru fyr-
ir seinna stríð, þar sem hann er af
yfirvöldum talinn hafa of mikla
samúð með gyðingum. Hann er
pyndaður og leikinn heldur illa.
Sem flóttamaður í París fær hann
að stunda smávegis lækningar,
kynnist konu og sér erkióvininn
sem lék hann svo grátt. Hann
fórnar konunni fyrir hefndina.
Þetta er ekki átakamikil mynd,
en lýsir býsna vel því ástandi sem
ríkti í V.-Evrópu rétt áður en
stríðið skall á. Anthony Hopkins
fer með aðalhlutverk, auk Lesley
Anne Down, Donald Pleasence
og Frank Finley og ber sá síðast-
nefndi af. Nokkuð góð - þ.e. góð
með mínusmerki. HS
Einkunnagjöf: **Vi
Arlvll w™
TRIUMPH
ztn éhrif&ika&a a&'nni þðirb$$§víiki8rin<iar
Scum
Scum eða Óþokkar fjallar um
unglingafangelsi í Bretlandi.
Vart er hægt að greina á milli
hvorir eru meiri hrottar og
óþokkar fangaverðirnir eða
pörupiltarnir sem þarna eru
geymdir. Þetta er heldur óhugn-
anleg mynd, vegna þess að hún
lýsir, að sagt er, veruleikanum
sem dylst innan veggja ungl-
ingafangelsanna í Bretlandi.
Upphaflega ætlaði BBC að
kvikmynda söguna, sem er eftir
Roy Minton, en hörð gagnrýni
á samfélagið og opinská lýsing
á ofbeldinu sem ríkir á þessum
stöðum varð til þess að breska
ríkissjónvarpið heyktist á þess-
Einkunnastígi:
★★★★★ Frábær
★★★★ Mjög góö
★★★ Góð
★ ★ Sæmileg
★ Afleit
Myndirnar eru fengnar
að láni hjá Myndbandaleigu
kvikmyndahúsanna
í Glerárgötu.
ari fyrirætlan. Myndin hlaut
hins vegar mikla aðsókn í kvik-
myndahúsum.
Þetta er svolítið óhugnanleg
mynd og ekki fyrir þá sem ekk-
ert aumt mega sjá. - HS
Einkunnagjöf: ***Vi
IJrvals rafgeymar
á góðu verði
í alla bíla, líka vörubíla, vinnuvélar,
og dráttarvélar.
nestin
Tryggvabraut 14
Veganesti
Krókeyrarstöð
Jakkaföt
30%-50%
aísláttur aí jakkafötum.
Einstakt tækifæri til aö eign-
ast ódýr jakkaföt.
I <iL A mmin