Dagur - 25.11.1985, Blaðsíða 1
Vatnstaka Raufarhafnarhrepps í landi Hóls:
„Hreppurinn ekki verið
tilbúinn að semja“
- segir lögmaður bændanna - ekki verið
farið fram á lögbann ennþá
„Það er ekki rétt sem fram
hefur komið í Degi að Raufar-
hafnarhreppur hafi verið tilbú-
inn að greiða umbjóðendum
mínum á Hóli í Presthóla-
hreppi fyrir vatnstökuna þar.
Þeir hafa aldrei verið reiðu-
búnir til þess að setjast niður
með samningsgerð í huga,“
sagði Sigurður I. Halldórsson
lögmaður í Reykjavík, en hann
rekur mál bænda að Hóli gegn
Raufarhafnarhreppi. Við
skýrðum frá því á dögunum að
krafist hafi verið lögbanns á
vatnstöku hreppsins og því
gæti svo farið innan tíðar að
Raufarhafnarbær yrði vatns-
laus.
„Við höfum ekki farið fram á
lögbann ennþá hvað sem síðar
verður,“ sagði Sigurður. „Það fór
fram mat á þessari vatnstöku í
fyrra að ósk lögmanns Raufar-
hafnarhrepps. Það mat kom fram
í sumar og að sjálfsögðu eru þessi
réttindi metin þar til peninga,
leigan, bætur fyrir landspjöll og
fleira. Ég held að menn hljóti 'að
skilja það í dag að það þarf að
greiða fyrir þessa hluti. Mínir
umbjóðendur buðu upp á samn-
ing fyrir einu og hálfu ári síðan
og það gjald var mun lægra en
matið núna segir til um.
Ég fæ ekki séð að það verði
samið um neitt minna en matið
segir til um og einnig skaðabæt-
ur. Samningur eins og sá sem
gerður yrði þarf samþykki Jarða-
nefndar og ég fæ ekki séð að slík
nefnd myndi samþykkja lægri
greiðslu en matið segir til um,“
sagði Sigurður.
Samkvæmt heimildum Dags í
gær var haldinn fundur í Jarða-
nefnd á laugardag. Þorsteinn
Steingrímsson bóndi að Hóli sem
sæti á í nefndinni vék þá úr sæti
sínu enda tekið fyrir mál er snerti
hann. Niðurstaða fundarins var
sú að ekki væri hægt að víkja frá
matinu sem fram kom í sumar og
er því ljóst að Jarðanefnd myndi
ekki samþykkja samning sem
gerði ráð fyrir lægra gjaldi. gk-.
Bíll ofan í ai
Um hádegi á laugardag fór bíll
útaf veginum utan viö slátur-
húsiö á Húsavík. Ökumaður
bflsins sem var á leið suður úr
bænum missti stjórn á bílnum
við Þorvaldsstaðará og rann
hann vestur af veginum niður í
gilið en valt þó ekki. Bfllinn
skemmdist töluvert og öku-
maður hlaut minniháttar
skrámur.
Á föstudagskvöld var ekið á
gangandi vegfaranda á Hörgár-
braut á Akureyri, en hann slasað-
ist minna en á horfðist. Um helg-
ina valt jeppi við Hrafnagil í
Eyjafirði og bifreið fór út af veg-
inum við Eyrarland. Að sögn lög-
reglumanna á Norðurlandi var
helgin með rólegra móti.
-mþþ/IM Húsavík
Síðdegis á föstudag varð harður árekstur fólksbfls og jeppa á móts við Pálmholt í Reykjadal. Tvennt var flutt á
sjúkrahús, kona sem var í jeppanum fékk að fara heim að lokinni skoðun, en maður sem var í fólksbflnum fékk
þungt högg á brjóstkassa og höfuð. Báðir bflarnir skemmdust mikið og eru óökufærir. Mynd: KK.
Ágreiningur
kartöflubænda
þykkt fundarins, um að knýja á
um fullt verð fyrir innlagðar
kartöflur hjá Kaupfélagi Sval-
barðseyrar haustið 1984. Svcin-
berg telur, að formanninum
beri að framfylgja samþykkt-
inni, en Guðmundur telur það
vonlaust verk. Nánar er sagt
frá þessu máli á bis. 3.
„Ég hygg að þessi ádeila
Sveinbergs Laxdal og félaga
á stjórnina, sé fyrst og fremst
af persónuleguni toga
spunninn, en ekki málefna-
Iegum,“ sagði Guðmundur
Þórisson, formaður Félags
kartöflubænda við Eyjafjörð,
í samtali við blaðið.
í fimmtudagsblaði Dags
deildi Sveinberg á Guðmund
vegna yfirlýsingar þess síðar-
nefnda á fundi í félaginu í síð-
ustu viku. Þá sagðist Guðmund-
ur ekki ætla að framfylgja sam-
Vinveitingaleyfin:
„Gefumst
ekki upp“
- segir eigandi Svartfugls sem fékk
neitun hjá áfengisvarnanefnd
Á fundi Áfengisvarnanefndar
Akureyrar sl. miðvikudag var
tekin fyrir beiðni um umsögn
vegna endumýjunar á vínveit-
ingaleyfi Hótels KEA.
Áfengisvarnanefnd samþykkti
að mæla ekki gegn endurnýjun
leyfisins, þar sem ekki væru fyrir-
liggjandi neinar upplýsingar urn
misnotkun á leyfinu.
Svo sem skýrt var frá í Degi á
föstudaginn taldi nefndin sig ekki
geta mælt með að Friðjóni Árna-
syni veitingamanni yrði veitt leyfi
til vínveitinga í húsi Svartfugls
s.f. að Skipagötu 14 á Akureyri.
Friðjón Árnason sagði í sam-
tali við Dag að hann teldi mjög
eðlilegt og sjálfsagt að Hótel
KEA fengi endurnýjun á vínveit-
ingaleyfi sínu.
„Hvað mig varðar er ég mjög
ánægður með að fundur
hafi verið haldinn. Um af-
greiðslu áfengisvarnanefndar er
það að segja að bókunin er nijög
væg og í henni felst hvorki játun
né neitun. Áfengisvarnanefnd
mælir aldrei með neinu, hún
mælir ýmist gegn einhverju eða
ekki og ég er því ekkert ósáttur
við þessa bókun.“
Friðjón sagðist jafnframt vera
mjög hlynntur virku og ströngu
eftirliti með vínveitingahúsum,
en slíku hefði ekki verið til að
dreifa hér á Akureyri.
„Við höfum eytt miklum tíma
og fjármagni í þetta fyrirtæki
okkar og okkur finnst því hart ef
bæjaryfirvöld ætla að standa í
vegi fyrir okkur. Mér sýnist ekki
veita af að fá ný fyrirtæki í
bæinn."
Friðjón benti á að boltinn væri
nú kominn til dómsmálaráðherra
og spurningin væri hvernig hann
brygðist við.
„En við erum ekkert á því að
gefast upp og eigum ennþá
nokkra leiki eftir í þessari leyfis-
skák. Það má segja að afgreiðsla
áfengisvarnanefndar hafi verið
biðleikur,“ sagði Friðjón Árna-
son veitingamaður. BB.
Málið í
biðstöðu
„Það er ekkert að frétta, má
segja að málið sé í biðstöðu, en
við stefnum að því verði lokið
fyrir áramót,“ sagði Tryggvi
Finnsson stjórnarformaður Is-
hafs h.f. um helgina.
Tryggvi var ásamt Bjarna
Aðalgeirssyni bæjarstjóra og
fleiri ráðamönnum í Reykjavík
fram á föstudag til að ræða kaup
á Kolbeinsey við ýmsa aðila.
Næstu daga mun skýrast hvort
tekst að útvega starfsfólki Fisk-
iðjusamlags Húsavíkur einhverja
vinnu fram að áramótum. Verið
er að vinna að því að finna verk-
efni fyrir starfsfólkið. m.a. átti
Kolbeinsey eftir að veiða smá-
vegis af kvóta sínum, aðallega er
um grálúðu, ufsa og karfa að
ræða. Það þarf að fá togara til að
veiða þennan fisk. 1M Húsavík