Dagur - 25.11.1985, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 25. nóvember 1985
Pað er nokkuð vinsælt um þessar mundii
að frægar konur úr kvikmynda- eða tón-
listarheiminum velji til fylgilags við sig sér
yngri menn. Jafnvel hálfgerða gutta.
Byrjum á Britt Ekland hinni sænsku.
Feriliinn í stuttu máli: Giftist Peter Sellers
sem var þó nokkuð mikið eldri en hún, á
með honum 21 árs gamla dóttur. Son,
Nicolai 12 ára með Lou Adler. En nú hef-
ur hún alfarið snúið sér að lambakjötinu,
því 41 árs að aldri gifti hún sig „Slim Jim“
McDonell 23 ára gömlum trommuleikara.
Pað var allt saman voða skemmtilegt, allir
í bleiku og svoleiðis. Einhverjum varð að
orði að hún gæti verið móðir hans og að
dóttir hennar ætti nú heldur að vera í spor-
um hennar. En Britt svarar slíkum hug-
leiðingum: „Þegar þú verður ástfangin,
Frægar konur
og ungir strákar
þá skiptir aldurinn engu máli. Petta er
bara eitthvað sem við ráðum ekki við.“
Viðhorf Jims: „Britt er sú kona sem ég
elska, ekkert annað skiptir máli.“
Pá er það Joan hin fræga Collins, 52 ára
og trúlofuð Peter Holm 37 ára. Hefur ver-
ið gift þrisvar áður og vonar að ganga fljót-
lega upp að altarinu í fjórða sinn.
„Mér hefur aldrei liðið betur,“ segir
hún. „Nú hef ég einhvern sem virkilega
elskar mig og er jafnframt besti vinur
minn.“ Um Peter segir Joan: „Hann er
mjög góður við mig, er sexy, sterkur og
hefur góðan húmor.“ Er aukin heldur fyrr-
verandi poppstjarna frá Svíþjóð og þau
eru bæði sammála um að aldurinn skipti
engu máli.
Olivia Newton John og Matt Lattanzi
eru bæði sæt og góð. Um samband þeirra
sagði Olivia við vin sinn: „í fyrstu var ég
ákaflega áhyggjufull um hvernig fólk
myndi bregðast við því að Matt er svona
miklu yngri en ég. Eg hélt að fólk yrði
óvinsamlegt, en það var þvert á móti.“
Pau Olivia og Matt hittust við gerð
myndarinnar Xanadu, Matt er 25 ára, en
Olivia 36, þau hafa sömu áhugamál.
„Ég hef aldrei fundið að neinn aldurs-
munur væri á okkur,“ segir Matt hinn
ungi. „Meira að segja finnst mér stundum
að ég sé eldri en hún.“
Við endum þessa upptalningu á Raquel
Welch og hennar manni Andre Weinfeld
38 ára gömlum.
„Ég ætlaði ekki að gifta mig,“ segir
hann.
Raquel: „Á okkar aldri skiptir ekki máli
þó maðurinn sé nokkrum árum yngri en
konan, og ég kalla það ekki að ég sé með
mér yngri manni. Ándre er það mikilvæg-
asta í lífi mínu, ég er ákaflega mikið hrif-
in af honum.“
# Jafnrétti
Félagsmálaráðuneytið
hefur sent frá sér frétta-
tilkynningu þar sem skýrt
er frá skipan Jafnréttis-
ráðs til næstu tveggja ára.
Það vekur oneítanlega at-
hygli þegar sú liðsskipan
er skoðuð að i ráðinu sitja
nú sex konur og einn karl-
maður. Hlutfall karlanna
er örlftið betra þegar vara-
mannaiiðið er skoðað, því
þar eru karlmennirnir tveir
að tölu en konurnar ekki
nema fimm.
Ég veit ekki hvað þér
finnst um þetta „jafnréttí“
lesandi góður, en skrifara
þessara lína finnst þetta
skondið jafnrétti og jafn-
vel gys.
• Flóðáflóð
ofan
Það eru vfðar flóð en úti í
hinum stóra heimi. Flóð
þau sem nú ganga yfir ís-
land eru ekkí mjög alvar-
legs eðlis og valda varla
manntjóni. En mikil hætta
er híns vegar á því að fjár-
hagur einhverra verði fyrir
skakkaföllum. Hér er verið
að tala um þau flóð sem
eru árlegir gestir hér á
landi, nefnilega jólabóka-
flóðið og hljómplötuflóð
með sama forskeyti.
Það síðarnefnda er
óvenjulega stórt f sniðum
í ár. Nú þegar er búið að
tilkynna útgáfu um 40 fs-
lenskra hljómplatna og
Hafnfirðingar eru farnir að
ganga reglulega á fjörur,
því það sagði þeim ein-
hver að jólabókaflóðið
hæfist alitaf um þetta leyti
árs.
Ætli sumir útgefendur séu
ekki farnir að sjá eftír þvf
nú þegar að hafa ekki val-
ið sér annan útgáfutíma?
# lllgirni
Þegar talað er um jóla-
bókaflóðið rifjast upp fyrir
ritara S&S góð saga af
„jólabókaútvarpsauglýs-
ingu“ sem lesin var oft á
dag á hverjum degi í
gömlu góðu gufunni fyrir
nokkrum árum.
Þannig var að út kom bók
sem fjallaði um náttúru-
hamfarir á íslandi. Bókin
bar það ágæta nafn
„Skriður og snjóflóð“. (
auglýsingunni var fólk
hvatt til að láta þessa bók
ekki fram hjá sér fara og
auglýsingin endaði alltaf á
hvatningarorðunum:
„Skriður og snjóflóð inn á
hvert heimílí.“
Þokkaleg jól það, eða hitt
þó heldur!
á Ijósvakanum
Mánudaginn 25. nóvember klukkan 14.00
byrjar Þorleifur Hauksson að lesa minningar
eftir sænska fræðimanninn Sven B. F.
Jansson, „Sögur úr lífi rnínu". Bók þessi
kom út í Svíþjóð árið 1982 og hefur Þorleifur
sjálfur þýtt hana á tslensku.
Sven B. F. Jansson er mörgum íslending-
um að góðu kunnur. í heimalandi sínu er
hann þekktur sem sérfræðingur í rúnaristum
og hefur unnið gríðarmikið starf á þeim vett-
vangi. Hann var þjóðminjavörður og prófess-
or við bókmenntaakademíuna þar til 1971
þegar hann fór á eftirlaun. Mestallt ævistarf
hans hefur verið unnið í Svíþjóð. Samt er
það svo að þegar hann skrifar þessa endur-
minningabók sína gerist hún að meira en
hálfu leyti á Islandi.
\sjónvarp[
MANUDAGUR
25. nóvember
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 20.
nóvember.
19.25 Barnaþáttur.
Tommi og Jenni, Hananú,
brúðumynd frá Tékkó-
slóvakíu og Dýrin í Fagra-
skógi, teiknimyndaflokkur
frá Tékkóslóvakíu.
19.50 Fróttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Móðurmálið -
Framburður
Sjöundi þáttur: Um
tvíhljóð, það er hljóð eins
og Æ, EI, AU, Á og Ó.
Umsjónarmaður: Árni
Böðvarsson.
21.00 Pokadýrið með
bangsasvipinn.
(Koalas - Out on a Limb).
Áströlsk heimildamynd
um hina fallegu og vinsælu
kóalabimi en skæður sjúk-
dómur ógnar nú stofni
þeirra.
Þýðandi: Óskar Ingimars-
son.
21.55 íþróttir.
22.30 í leit að sól.
(Pá jakt efter solen í
-r30°C).
Finnskt sjónvarpsleikrit.
Leikstjóri: Per-Olof
Strandberg.
Aðalhlutverk: Eero Saarin-
en og Lilli Sukula-
Lindblom.
Veturinn í Finnlandi er
bæði kaldur og dimmur og
ungum manni finnst langt
að bíða vorsins. Hann þráir
að komast í sól og yl - og
óbeint rætast óskir hans.
Þýðandi: Kristín Mántylá.
(Nordvision - Finnska
sjónvarpið).
23.20 Fróttir í dagskrárlok.
\útvarp\
MANUDAGUR
25. nóvember
11.10 Ur atvinnulífinu -
Stjómun og rekstur.
UmsjÖn: Smári Sigurðssoi
og Þorleifur Finnsson.
11.30 Stefnur.
Haukur Ágústsson kynni
tónlist. (Frá Akureyri).
12.00 Dagskrá • Tilkynning
ar.
12.20 Fróttir.
12.45 Veðurfregnir • Til
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Sam
. vera.
Umsjón: Sverrir Guðjóns
son.
14.00 Miðdegissagan: „Sög
ur úr lífi mínu'1 eftir Sver
B. F. Jansson.
Þorleifur Hauksson byrjai
lestur eigin þýðingar.
14.30 íslensk tónlist.
15.15 Á ferð
með Sveini Einarssyni.
(Endurtekinn þáttur frá
laugardagskvöldi).
15.50 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
17.00 Barnaútvarpið
Meðal efnis: „Ivik bjam-
dýrsbani" eftir Pipaluk
Freuchen.
Sigurður Gunnarsson
þýddi. Guðrún Guðlaugs-
dóttir les (2).
Stjómandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.40 íslenskt mál.
Endurtekinn þáttur frá
laugardegi í umsjá Ásgeirs
Blöndal Magnússonar.
17.50 Síðdegisútvarp
- Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál.
Margrét Jónsdóttir flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn.
Kristín Waage félags-
fræðingur talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a. Ég á crðið einhvern
veginn ekkert föðurland.
Ágúst Vigfússon flytur
síðari hluta frá9agnar
sinnar.
b. Kórsöngur.
Sunnlenskir karlakórar
syngja.
c. Úr endurminningum
Árna Jónssonar á Akur-
eyri.
Jómnn Ólafsdóttir frá
Sörlastöðum les.
Umsjón: Helga Ágústs-
dóttir.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Ðorgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson.
Helga Þ. Stephensen les
(21).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 Rif úr mannsins síðu.
Þáttur í umsjá Sigríðar
Árnadóttur og Margrétar
Oddsdóttur.
23.10 „Frá tónskáldaþingi."
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
ÞRIÐJUDAGUR
26. nóvember
7.00 Veðurfregnir • Fróttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin,
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fróttir • Tiikynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Malín og gler-
brúða gömlu konunnar."
Vilborg Dagbjartsdóttir les
þýðingu sína á ævintýri
eftir Knut Holten.
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfróttir.
10.00 Fróttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Mar-
grétar Jónsdóttur frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugrein-
um dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð."
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
ámm.
\rás 21
MANUDAGUR
25. nóvember
10.00-10.30 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustenduma frá barna-
og unglingadeild útvarps-
ins.
Stjómandi: Hildur Her-
móðsdóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur.
Stjómandi: Ásgeir Tómas-
son.
Hlé.
14.00-16.00 Út um hvippinn
og hvappinn.
Stjómandi: Inger Anna
Aikman.
16.00-18.00 Allt og sumt.
Stjómandi: Helgi Már
Barðason.
3ja mín. fréttir kl. 11, 15,16,
og 17.