Dagur - 26.11.1985, Page 4
4 - DAGUR - 26. nóvember 1985
Fjögur ráð tO að gera
konur hamingjusamar!
Að gera konur ánægðar og hamingjusamar
er miklu auðveldara en flestir karlmenn
halda. Þetta segja tveir ónefndir sérfræð-
ingar. Og hér koma fjögur óbrigðul ráð til
að gera konur hamingjusamar:
Númer 1: TALAÐU VIÐ HANA. Láttu
hana vita hvað þú ert að hugsa. Talaðu við
hana um vini þfna, fjölskyldu eða áhuga-
mál! Taktu frá nokkra tíma á viku bara til
að tala, það skilar árangri.
Númer 2: HLUSTAÐU Á HANA. Og
hlustaðu! Ekki bara þykjast hlusta, sífellt
segjandi ha! Spyrðu spurninga til að sýna
að þú hefur áhuga á því sem hún er að
segja. Hafðu áhuga á skoðunum hennar.
Númer 3: KOMDU HENNI TIL AÐ
HLÆJA. Hlátur er góður og gerir fólk
ánægt. Spilið og hafið gaman. Saman.
Reyndu að hlæja með henni að minnsta
kosti einu sinni á dag. Lítið á spaugilegu
hliðar tilverunnar eða rifjið upp eitthvað
skemmtilegt úr fortíðinni.
Númer 4: SNERTU HANA - MIKIÐ. Að
snerta konu kemur henni til að finnast hún
þráð. - Og þetta getur leitt til mikillar
hamingju. Sérstaklega er mælt með að
strjúka henni aftan á hálsinum og niður
eftir baki, halda í hendur hennar, eða
sparka góðlátlega í hana undir borðum
(svokallaður ,,fætingur“). Þetta allt eru
frábærar leiðir til að gera konur hamingju-
samar - að áliti sérfræðinga sem rannsakað
hafa málið gaumgæfilega.
Er sjónvarpið byrjað að sýna Löður aftur? En gaman. Muniði
eftir Jessicu, þegar hún . . . Eða þegar Burt varð ósýnilegur
óg . . . Nei, því miður. Sjónvarpið ætlar ekki að sýna Löður
aftur. Myndin er bara af einhverju óþekktu leikaraliði í ein-
hverri óþekktri sápuóperu. Það virðist samt vera dálítið gaman
í þessari óþekktu sápuóperu . . .
„Hann er fullkomlega ham-
ingjusamur svo lengi sem
hann heldur að fótboltinn sé
á.“
„Þetta var páfagaukurinn að
kenna honum í dag.“
• Eins dauði
er annars
brauð
Hér eru smá upplýsingar
handa Dallassjúkllngum.
Upphaflega var ekki á
dagskrá að láta Jock
gamla deyja í þyrluslysi.
En leikarinn sem lék
hann, gerðist svo ósvífinn
að deyja drottni sfnum -
og þáttaröðin ekki
hálfnuð. Nú voru góð ráð
dýr. Á meðan handrfts-
höfundarnir voru að
hugsa sig um var pabba
gamla haldið volgum með
símtölum við miss Ellý
við og við. Og svo kom
snjallræðið. Þyrluslys! Og
allir þeir þættir sem komið
hafa síðan tengjast þessu
slysi á einn eða annan
hátt. Og allt þetta vegna
þess að lelkarinn dó!
Svona má lengi telja. Nei,
má ég þá heldur biðja um
íslensku hljóðfræðiþætt-
ina...
• Albert
Albert hvítþvoði sig af
Hafskipsmálinu á Alþing)
á dögunum. Hann þvertók
fyrir, að hann hafi setíð
beggja vegna borðsins,
sem stjórnarformaður
Hafsklps og bankaráðs-
formaður Útvegsbankans.
Síðan er hann nefndur
Engilbert.
# Af hverju...?
„Mamma, af hverju er
pabbl sköllóttur?“
„Það er vegna þess að
hann hugsar svo mikið,
elskan min. Skalli er
merki um gáfur.“
„Af hverju er þú þá með
svona sítt hár?“
„Þegiðu stelpa og haltu
áfram að borða!“
Helgarpósturinn segir frá
því á tveimur stöðum í
síðustu viku, að Erna Ind-
riðadóttir eigi að verða
fulltrúi Sjónvarpsins á Ak-
ureyri. Þetta er ekki rétt,
þar sem Ólafur H. Torfa-
son hefur verið ráðinn í
starfið. Ólafur er flinkur
fjölmiðlamaður og fengur
fyrir Sjónvarpið að fá
hann í fréttaslaginn. Að
öllum líkindum mun Sam-
ver áfram sjá um hljóð- og
myndatöku. Því má svo
bæta við, að Ema Indriða-
dóttir mun að líkindum
verða aðili að „magasin-
þætti“, sem Ómar Ragn-
arsson og Agnes Braga-
dóttir hefja vinnslu á eftir
áramótin. Sá þáttur verð-
ur með blönduðu efní, að
einhverju leyti i beinum
útsendingum af vettvangi.
Þessi þáttur verður
klukkustundar langur og
mun hann verða á dag-
skrá vikulega.
_á Ijósvakanum.
Morgunstund barnanna: „Elvis, Elvis“, eftir
Mariv Gripe. Þriöjudaginn 26.11.
Sagan Elvis! Elvis! eftir Maria Gripe er sjálf-
stætt framhald bókarinnar Elvis Karlsson.
En hann er ári eldri en hann var þegar sagan
hófst. Eftir að hafa setið einn dag í skólanum
ákveður hann að hætta skólagöngu að sinni,
hann hafi alls ekki byrjað í skóla sjálfur held-
ur mamma.
Elvis heldur áfram baráttunni fyrir sjálf-
stæði sínu, réttinum til að vera hann sjálfur -
ekki Elvis í litasjónvarpinu og ekki heldur
eftirlíking af íþróttahetjunum hans pabba.
Maria Gripe er með þekktustu og virtustu
barnabókahöfundum Svía og hefur skrifað á
þriðja tug barna- og unglingabóka.
sjonvarpi
ÞRIÐJUDAGUR
26. nóvember
19.00 Aftanstund.
Endursýndur þáttur frá 18.
nóvember.
19.25 Ævintýri Olivers
bangsa.
13. þáttur.
Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur í 13 þáttum
um víðförlan bangsa og
vini hans.
Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fróttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.45 Heilsað upp á fólk.
Brandur í Vík.
Sr. Sigurjón Einarsson á
Kirkjubæjarklaustri heim-
sækir Brand Stefánsson í
Vík, brautryðjanda í sam-
göngum um vegi og veg-,
leysur í Skaftafellssýslum.
Stjóm upptöku: Óli Öm
Andreassen.
21.35 Til hinstu hvíldar.
(Cover Her Face).
Þriðji þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur í sex þáttum gerð-
ur eftir sakamálasögu P.D.
James.
Aðalhlutverk: Roy Mars-
den.
Adam Dalgliesh rannsakar
dauða manns sem grunað-
ur er um fíkniefnasölu.
Hann rekur slóðina heim
á sveitasetur þar sem ekki
reynist allt með felldu.
Þýðandi: Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.35 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður: Guðni
Bragason.
23.05 Fréttir í dagskrárlok.
\útvarp\
ÞRIÐJUDAGUR
26. nóvember
11.10 Úr atvinnulífinu -
Iðnaðarrásin.
Umsjón: Gunnar B. Hinz,
Hjörtur Hjartar og Páll Kr.
Pálsson.
11.30 Úr söguskjóðunni -
Upphaf vélbátaútgerðar
1902-1910.
Umsjón: Sumarliði ísleifs-
son. Lesari með honum:
Þóra Sigurðardóttir.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Tónleikar.
13.30 í dagsins önn -
Heilsuvernd.
Umsjón: Jónína Bene-
diktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Sög-
ur úr lífi mínu“ eftir Sven
B. F. Jansson.
Þorleifur Hauksson les eig-
in þýðingu (2).
14.30 Miðdegistónleikar.
15.15 Barið að dyrum.
Einar Georg Einarsson sér
um þátt frá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar • Tón-
leikar.
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér.
- Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið.
Stjórnandi: Kristín Helga-
dóttir.
17.50 Síðdegisútvarp.
- Sverrir Gauti Diego.
Tónleikar • Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál.
Sigurður G. Tómasson flyt-
ur þáttinn.
19.50 Lestur úr nýjum
barna- og unglingabók-
um.
Umsjón: Gunnvör Braga.
Kynnir: Sigurlaug M. Jón-
asdóttir.
20.30 Aðdragandi sprengj-
unnar.
Flosi Ólafsson les fyrri
hluta erindis eftir Margar-
et Gowing um ástæður
þess að kjamorkusprengj-
um var varpað á japönsku
borgimar Hírósíma og
Nagasakí 1945.
Þýðandi: Haraldur Jó-
hannsson hagfræðingur.
20.05 íslensk tónlist.
21.30 Útvarpssagan: „Saga
Borgarættarinnar" eftir
Gunnar Gunnarsson.
Helga Þ. Stephensen les
(22).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir • Orð
kvöldsins.
22.25 Berlínarútvarpið
kynnir unga tónlistar-
menn
á tónleikum 25. apríl í vor.
24.00 Fróttir • Dagskrárlok.
MIÐVIKUDAGUR
27. nóvember
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fróttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Finnski úlfurinn
og rússneski refurinn".
Vilborg Dagbjartsdóttir les
fyrri hluta þýðingar sinnar
á ævintýri eftir Christinu
Andersson.
9.20 Morguntrimm • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál.
Endurtekinn þáttur Sig-
urðar G. Tómassonar frá
kvöldinu áður.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugrein-
um dagblaðanna.
10.40 Land og saga.
Ragnar Ágústsson sér um
þáttinn.
I rás 21
ÞRIÐJUDAGUR
26. nóvember
10.00-10.30 Kátir krakkar.
Dagskrá fyrir yngstu
hlustendurna frá barna-
og unglingadeild útvarps-
ins.
Stjómandi: Hildur Her-
móðsdóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur.
Stjómandi: Páll Þorsteins-
son.
Hlé.
14.00-16.00 Blöndun á
staðnum.
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00-17.00 Frístund.
Unglingaþáttur.
Stjómandi: Eðvarð Ing-
ólfsson.
17.00-18.00 Sögur af svið-
inu.
Stjórnandi: Þorsteinn G.
Gunnarsson.
3ja mín. fréttir kl. 11, 15, 16
og 17.