Dagur - 26.11.1985, Blaðsíða 5

Dagur - 26.11.1985, Blaðsíða 5
26. nóvember 1985 - DAGUR - 5 _orð í belg___________________ Eiga skoðanir íslendinga þátt í efnahagsvanda þeirra? Pað hefur varla farið framhjá neinum að íslendingar hafa átt við umtalsverða efnahagsörðug- leika að stríða undanfarin ár. Fiskigengd hefur minnkað og því orðið að taka upp skömmtunar- kerfi á veiðar sem þó á trúlega eftir að skila árangri í meiri land- burði innan fárra ára. Bændur geta nú framleitt mun meiri mat en landsmenn þurfa að láta ofan í sig og þar sem ekkert útlit er fyrir að útflutningur landbúnaðar- afurða verði ábatasamur í náinni framtíð, nema þá að litlu leyti. Því verður að beina hluta bænda- stéttarinnar til annarra fram- leiðslugreina eða hreinlega til annarra starfa sem getur þýtt að þeir verði að flytja af jörðum sínum. Iðnskólar og verk- menntabrautir mala jafnt og þétt og skila úr kvörn sinni húsasmið- um, skipasmiðum, mublusmið- um, alls konar smiðum. En ekki er endalaust hægt að byggja hús þegar enginn er til að búa í þeim. Ekki heldur skip þegar takmark- anir eru á veiðum, fiskiskipaflot- inn þegar of stór og kaupskipin falla í verði á heimsmarkaði. Við verðum eflaust að fara að fram- leiða eitthvað sem hægt er að selja útlendingum. Launþegar hafa ekki misst af því að skynja þessa þróun. Laun- in sem dugðu fyrir daglegu vana- bundnu lífi í 25 daga samfellt fyr- ir nokkrum árum duga nú aðeins fyrir sama lífsstíl í 18 daga og þá er eftir að brúa hina 13 af mánuð- inum þótt alveg sé sleppt að reikna með að viðkomandi heim- ili þurfi að borga af verðtryggðu láni. Hér skal ekki gert lítið úr þeim vanda sem steðjað hefur að okkur síðustu árin. Minnkandi framleiðsluverðmæti er stað- reynd. En er ekki slík staðreynd orðin að umhugsunarefni um af hverju þetta stafi, hvað sé að og hvort nauðsynlegt sé að búa endalaust við sveiflukennd lífs- skilyrði. T aprekstrarstefnan Sá hugsunarháttur hefur lengi tíðkast hér að rekstur megi ekki skila hagnaði. Slíkur hagnaður yrði ekki til að bæta reksturinn, byggja upp og auka velmegun í þjóðfélaginu. Heldur renni hann mestmegnis til einkaneyslu og óhóflegra lífsskilyrða einhverra fárra sem „ættu“ hin ábatasömu fyrirtæki. Sjálfsagt hefur lífsmáti einhverra framkvæmdamanna orðið til þess að skapa þessar hugmyndir, í það minnsta að ýta undir þær. Þó er langt í frá að núllrekstrarhugsunarhátturinn sé séríslenskt fyrirbæri. Á síðasta áratug fór alda um Vestur-Evr- ópu og Norðurlönd sem kynnti verulega undir þessum hugmynd- um og óbeinar afleiðingarnar blasa víða við. Ein af afleiðingum núll- eða öllu heldur taprekstrarstefnunnar er sú að ríkið þarf oft að koma fyrirtækjum á fót með því að út- vega stofnfé til þeirra en það hef- ur ekki legið á lausu á frjálsum markaði. Og síðan þegar tap- reksturinn hefur étið höfuðstól- inn jafnt og þétt, verði það opin- bera aftur að koma til skjalanna og bjarga rekstrinum þó ekki sé nema til að halda atvinnu starfsmanna sem illa geta lifað af vinnu hjá gjaldþrota fyrirtæki. Hræðsla við útlendinga Útflutningur frá íslandi hefur alltaf búið við mikil reglugerðar- ákvæði. Öll útflutningsverðmæti fara í gegnum hönd hins opin- bera sem síðan skákar fjármun- um út aftur til innkaupa og fram- kvæmda. Ekki er hægt að sjá annað en að útflytjendum sé ekki treyst til að fara með fjármál sín. Þeir „steli“ verðmætum, fjárfesti e.t.v. í útlöndum sem samkvæmt viðteknum íslenskum hugsunar- hætti jaðrar við landráð. Hér á landi eru ríkjandi nei- kvæð sjónarmið varðandi við- skipti við önnur lönd. Þeir geta keypt af okkur fiskinn. Lengra nær hugsunarháttur margra ekki enn þann dag í dag þótt einhverj- ar breytingar hafi átt sér stað á síðustu tímum. Mikil hræðsla ríkir við fjárfest- ingar útlendinga hér á landi. Þær eru af mörgum talinn vafasamur kostur og jafnvel beinlínis þjóð- hættulegar þótt þær sem slíkar flyttu í flestum tilfellum fjármagn inn í landið og þannig ykjust um- svif og atvinnustarfsemi fyrir ís- lendinga auk þess að opna við- skiptasambönd sem oft eru smá- þjóð með óþróað atvinnulíf lokuð. „íslendingar geta ekki enda- laust lifað á landslagi," sagði Guðbergur Bergsson, rithöfund- ur í Tómasi Jónssyni metsölubók og hann bætir síðan við „við étum ekki jökla, við drekkum ekki fjallavötnin fagurblá,“ Við höfum þó gert tilraun til þess með því að virkja árnar. En hvað stoðar að byggja virkjanir fyrir dýrt erlent lánsfé, sem við verð- um í öllu falli að endurgreiða þegar ekki eru til kaupendur að orkunni. Þeir eru ekki til m.a. vegna þess að þeir eru ekki nægi- lega velkomnir inn f landið með framleiðslutæki og markaðssam- bönd. Það er viðtekin skoðun að við verðum sjálfir að hafa eignar- höldin. Byggja iðjuver, sennilega fyrir viðbótar lánsfé, og við trú- um því að við komumst inn á heimsmarkaði þar sem ákveðin samskiptalögmál þeirra sem þar eru fyrir hafa lengi verið ríkj- andi. Menn hafa reynt að halda því fram að erlent fjármagn sé óhollt fyrir íslenskt efnahagslíf eins og m.a. hefur verið gert vegna hug- mynda um byggingu stóriðju í Eyjafirði þegar rökin um mengun og náttúruspjöll höfðu þrotið. íslendingar ættu að vera minnugir þess sem gerðist hér á 5. og 6. áratugnum þegar hingað barst fé annars staðar frá og ís- landsbyggð breyttist úr þúsund- árabasli í velferðarþjóðfélag. ís- lendingar ættu einnig að minnast þess að sæmileg lífsskilyrði í landinu hafa alltaf byggst á sam- skiptum við önnur lönd. Það er kominn tími til að Is- lendingar fari að átta sig á því að einangrunarstefnan og taprekstr- arhagfræðin bjóða þjóðinni upp á sífelldan óstöðugleika, efna- hagsörðugleika og samdrátt og ef ekki þá óðaverðbólgu. Það er kominn tími til að átta sig á sam- henginu á milli eyðslu og öflunar og gera sér grein fyrir því á hvern hátt mætti gera öflunina auðveld- ari. Eyðsluna þarf víst ekki að kenna á íslenskri grund. —bækuL Skrítnar skepnur - Skopsögur eftir Ephraim Kishon Hörpuútgáfan á Akranesi sendir nú frá sér nýja bók eftir spéfugl- inn og húmoristann Ephraim Kishon, í þýðingu Ingibjargar Bergþórsdóttur. Þessi bók Kis- hons er eins og aðrar bækur hans kjarnyrt og leiftrandi af kímni. í henni eru bráðsmellnar skopsög- ur um fjölskylduna og „atvik“ sem flestir þekkja. Á síðasta ári kom út hjá Hörpuútgáfunni bókin Hvunn- dagsspaug eftir sama höfund. Kishon er höfundur sem kitlar hláturtaugarnar og gerir óspart grín að sjálfum sér. Yfir 50 bækur hans hafa verið þýddar á 28 tungumál og seldar í 30 milljónum eintaka. Umsagnir um bókina Hvunn- dagsspaug: „Ég hafði mjög gaman af að lesa Hvunndagsspaug. Það er gaman að vita að til eru menn sem hafa kímnigáfu á þessum síðustu og verstu tímum.“ Sig- urður Helgason - DV. „Þegar Kishon er í essinu sínu er hann óneitanlega bráð- skemmtilegur . . . Þýðing Ingi- bjargar Bergþórsdóttur er vönd- uð og smekkleg." Árni Berg- mann - Þjóðviljinn. „Fjölskylduþættir Kishons, sem hér eru gefnir út á bók, eru alls tuttugu og fjórir. Hver öðrum i listilegar uppdregnir og bráð- fyndnir. Þýðing Ingibjargar Bergþórsdóttur virðist slík, að ekkert fer forgörðum af Kishon- kímninni.“ Jóhanna Kristjóns- dóttir - Morgunblaðið. Bókin Skrítnar skepnur er 159 bls. Prentverk Akraness hf. ann- aðist prentun og bókband. Frá Heimaey k Fl I \ Kaupmenn - Kaupfélög 1 1 Birgið ykkur upp af hinum %i' Þ frábæru Heimaeyjarkertum. Látið hinn hreina loga sd&BKKR^SjfaHeimaeyiarkertanna veita ofir HEIMAEY, kertaverksmiðja, Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905. Iðntölvukynning - Námskeið Kúlulegusalan hf. - Tölvusalan hf. standa fyrir kynn- ingu og námskeiði á iðntölvum dagana 28., 29. og 30. nóv. n.k. í samkomusalnum Áin, Skipagötu 13. Fimmtud. 28. nóv. frá kl. 13-18. Kynning. Föstud. 29. nóv. Námskeið á Tl 100 iðntölvum. Laugard. 30. nóv. frá kl. 9-12 og 13-17. Kynning. Þetta er einstakt tækifæri til að kynnast og sjá það' nýjásta á þessu sviði. Námskeiðsþátttaka tilkynnist Árna Friðrikssyni Raf- tákni hf. sími 96-24766 eða til Tölvusölunnar hf. sími 91-84779 Kúlulegusalan hf. - Tölvusalan hf. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík. Framtíðarstarf Afgreiðslumaður á efnislager Slipp- stöðvarinnar óskast til starfa sem fyrst. Æskileg starfsreynsla við afgreiðslustörf. Nánari upplýsingar um starfið gefur starfsmanna- stjóri í síma 96-21300. Sölumaður Óskum að ráða hæfan starfsmann til sölu- og skrifstofustarfa. Framtíðaratvinna. Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Dags, merkt: „Sölumaður". auglýsir eftir blaðamanni á Sauðárkróki. Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst á næsta ári. Til greina kemur fullt starf eða hlutastarf. , Lysthafendur hafi samband við ritstjóra, helst bréflega. Strandgötu 31, 600 Akureyri Sími 24222.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.