Dagur - 28.11.1985, Side 5

Dagur - 28.11.1985, Side 5
28. nóvember 1985 - DAGUR - 5 —myndbönd— Bustin’ Loose Þetta er fjölskyldumynd með hin- um stórgóðu leikurum Richard Pryor og Cicely Tyson. Hún leik- ur skólastjóra í skóla fyrir vand- ræðabörn sem er lokað. Ákveður að taka börnin út í sveit. Þarf til þess bílstjóra sem getur gert við skrjóðinn sem notast á við í ferðalaginu. Sá sem verður fyrir valinu er smáglæpamaður sem nýlega hefur verið dæmdur og er á skilorði. Barnahópurinn er hinn furðulegasti samsöfnuður og margt gerist áður en yfir lýkur. Ágætis afþreying fyrir fjölskyld- una. HS Einkunnagjöf: *** No Small Affair Engin smá-ást segir frá 16 ára táningi með ljósmyndadellu. Fyr- ir hálfgerð mistök lendir fögur kona inn á myndfleti ljósmynda- vélar hans og þegar hann stækkar myndina verður hann yfir sig hrifinn. Konan er töluvert eldri og upprennandi poppstjarna. Hún hefur lítinn áhuga á stráknum, en honum tekst að vekja athygli hennar - notar væg- ast sagt nokkuð tvíeggja aðferð- ir. Myndin er fyndin og skemmti- leg, en jafnframt nærfærin. Jon Cryer sem leikur strákinn gerir það frábærlega og leikur Demi Moore söngkonunnar er einnig mjög góður. Skemmtileg lög eru í myndinni og ekki sakar að geta að þau njóta sín vel í Hi-Fi Stereo. - HS Einkunnagjöf: ***V2 Djass í Mánasal Sjallans í kvöld Björn Thoroddsen og félagar ræður ríkjum í Mánasalnum. í leika djass í Mánasal Sjallans í lokin má búast við einni allsherj- kvöld kl. 21.00. Þar mun Björn ar djassveislu og eru djassarar m.a. kynna nýútkomna hljóm- hvattir til að mæta - já og jafnvel plötu sína, en víst er að sveiflan taka með sér hljóðfærin. Hvað er „Högni“ að meina? - Athugasemd Kára Elísonar við skrif „Högna“ Kárí Elíson hafði samband við blaðið og vildi gera athugasemd við grein „Högna“ í síðustu viku. Þar segir „Högni“, að „Kári, sá sterki maður, hafi ekki haft er- indi sem erfiði á heimsmeistara- mótinu í kröftum". Kári Elíson sagðist ekki átta sig fyllilega á því, hvað „Högni“ væri að fara. „Ég varð að vísu ekki heims- meistari, en ég náði í silfrið, þannig að m er finnst ég hafa haft erindi sem erfiði,“ sagði Kári. Jafnframt taldi Kári gæta lítils- virðingar í skrifum „Högna“ í garð lyftingamanna. „Þess vegna langar mig að biðja „Högna“ að gera nánari grein fyrir því hvað hann er að meina,“ sagði Kári. Haga-innréttingar seldar hjá Skapta - Sýning á innréttingunum um helgina Fyrirtækið Skapti hf. Furuvöllum 13, hefur nú tekið í umboðssölu Haga-innréttingar frá Bygginga- félaginu Brúnás hf. á Egilsstöð- um. Innréttingar þessar eru þær sömu og Hagi hf. framleiddi, þ.e. eldhúsinnréttingar, baðinnrétt- ingar, fataskápar og þvottahús- innréttingar. Þeir hjá Skapta hf., munu að sjáifsögðu halda uppi góðri þjón- ustu, ábyrgjast stuttan afgreiðslu- tíma og selja á sama verði og frá framleiðanda. Nú um helgina verða innrétt- ingarnar kynntar og gefst þá Ak- ureyringum kostur á að líta þær augum og kynna sér verð í húsa- kynnum Skapta hf. að Furuvöll- um 13. The Bawdy Ad- ventures of Tom Jones Dónalegu ævintýrin hans Tom Jones er ærslaleikur um ungan mann sem nýtur mikillar kven- hylli, enda liggja þær flatar fyrir honum nánast hvar sem til hans sést. Sagan gerist á Englandi á átjándu öld og kvenmenn þess tíma virðast samkvæmt þessari mynd hafa haft mjög ákveðnar skoðanir á því til hvers þær væru nýtar. Þetta er bráðfyndin mynd og tæpast hægt að segja að hún sé klúr, þótt hún snúist um bólfarir að mestum hluta. Falleg- ar konur koma við sögu, jafnvel Dynasty-dísin Joan Collins. - HS Einkunnagjöf: *** Body Double Þessi mynd vekur manni nokkra eftirvæntingu vegna þess hver hefur gert hana. Sá er Brian de Palma sem gert hefur margar ágætar spennumyndir, m.a. Dressed to Kill, Scarface og Carrie. De Palma er framleið- andi, leikstjóri, höfundur sögu og kvikmyndahandrits. Það voru Einkunnastigi: ★★★★★ Frábær ★★★★ Mjög góð ★★★ Góð ★★ Sæmileg ★ Afleit Myndirnar eru fengnar að láni hjá Myndbandaleigu kvikmyndahúsanna í Glerárgötu. engin vonbrigði að horfa á þessa mynd. Hún byrjar fremur hægt en í henni er stígandi sem endar með mikilli spennu og hápunkti. í myndinni er ógeðslegt atriði sem hvorki börn né þeir sem við- kvæmir eru ættu að sjá. Myndin fjallar um ungan at- vinnulausan leikara. Hann fær til afnota íbúð og kemst strax að því að handan götunnar getur hann með sterkum kíki séð nekt- ardans gullfallegrar konu sem þar býr. Hann er haldinn innilokun- arkennd sem kemur nokkuð við sögu. Hann verður vitni að morði í íbúðinni handan við - leitar morðingjans og kynnist heimi spillingar og kláms. Þetta er mjög vel gerð mynd. HS Einkunnagjöf: ****+ Föstudagur 29. nóvember: Husið opnað kl. 20.00. 15 verslanir á Akureyri halda stórglaesilega sýningu á vörum þeim er þær bjóða upp á nú fyrir þessi jól. Sýningin hefst kl. 23.00. Sýningarfólklft er fró Módeisamtökunum og héSan úr bænum. Pa5 hefur œft úndir stjórn Unnar Arngrimsdóttur og Alice Jóhannsdóttur. Kynnir: Inga Hronn frá Módelsamtökunum. SuitnuhliA 12 Síml 2R7§?. ' MiiiHari perfect PARIÐ iBrtkkugotu 3 - Slmi 24989 ||errobodio Kápusalan Hljómsveltin MatseðUU Rjómaloguft spergilsupa. Sinnepsgljaftursvioavö^yi: v m. Robertssosu, y gufvsoftnu Qraenmeti feraku salatl. og <ÖisKötak. lejka fyrlr dansl tll kl. 03.00. ís meft perum og súkkulaftisósu. Verft kr. 650,- Skotfélag Eyjafjarðar og Sjallinn efna til villibráðarkvölds laugardaginn 30. nóvember, Borðhald hefst kí. 20.00. Húsið opnað kl. 19.00. /Á Skemmtiatriðl: Besta vaxtarrœktarfólk á landinu í dag: . Siguröur Gestsson og Hrafnhildur Vaibjórnsdóttir. Þau eru einmitt nykomin helm frá Norðurlandamótinú í Finniandi þar sem þau svo sannartega slógu i gegn. Hvaö gerist að loknu boröhaldi í Sjallanum? Htjómsveitin Veislustjóri hinn víðfrægi •V Óttar Einarsson. Matreiðslumeistarar Sjallans töfra fram frábæra villibráðarrétti úr rjúpum, gæsum, öndum, svartfuglum, hreindýri, heiðarlambi, laxi, sjóbirtingi og fjölda annarra smárétta. Borðapantanir i síma 22970 milli kl. 14 og 20 alia daga. leikur fyrir dansi. Sporthúyd

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.