Dagur - 28.11.1985, Blaðsíða 16
D&CKJE
Akureyri, fímmtudagur 28. nóvember 1985
ar - Kuuainaar - Knuuinaar -
AKUREYRI
Skipagötu 12 ■ Sími 21464
Kjúkímgar
eru gceðafceða
í gær var opnaöur nýr gæsluvöllur á Akureyri, sá áttundi sem á að halda opnum allt árið. Völlurinn er austast á
Eiðsvelli. Völlurinn verður opinn kl. 13.00 til 16.00 virka daga. Krakkarnir í hverfinu voru orðnir óþreyjufullir að
komast á nýja völlinn og stilltu sér hinir ánægðustu upp með gæslukonunum þcgar Ijósmyndara Dags bar þar að í
gær. Mynd: KGA
Hefur heiðagæsinni
fjölgað stórlega?
- Harðnandi
„Ég er nú ekki mjög gamall
maður, en frá því aö ég fór aö
fara í göngur um 1960, hef ég
ekki séð jafn mikið af gæs og
eins nauðbitið land eftir hana
og í sumar,“ sagði Björn
Yngvason bóndi á Skútustöð-
um í Mývatnssveit í samtali við
Dag.
I ár var fallþungi dilka af af-
rétti Bárðdælinga og Mývatns-
Geysi-
harður
árekstur
Geysiharöur árekstur tveggja
japanskra fólksbifreiða varð í
hádeginu í gær á mótum Þing-
vallastrætis og Dalsgerðis.
Annarri bifreiðinni var ekið
vestur Þingvallastræti en hinni
suður Dalsgerði. Á gatnamótun-
um skullu bifreiðarnar saman og
er talið að ísing hafi valdið því að
bifreiðin sem kom suður Dals-
gerði hafi ekki náð að stöðva í
tæka tíð.
Bifreiðarnar voru báðar mjög
mikið skemmdar og voru fluttar í
burtu meö kranabifreið. Hins
vegar sluppu allir sem í þeim
voru án meiðsla og verður það að
teljast mildi eins harður og
áreksturinn var. gk.-
samkeppni um stráin á afréttum
sveitarbænda mun minni en í
fyrra og vilja sumir kenna aukn-
um ágangi heiðagæsar á beiti-
löndum, ásamt rysjóttri tíð.
Björn benti á að þegar spretta
væri lítil eins og í sumar ykist
álagið á grösunum og þess vegna
hefði verið meira áberandi en
ella hversu landið var nauðbitið.
„Ég veit að á smábletti hér rétt
sunnan við sveitina skiptu gæsa-
hreiðrin hundruðum í vor og út
frá því gæti ég giskað á að fugl-
arnir hafi skipt nokkrum þúsund-
um á öllu svæðinu í sumar,“ sagði
Björn.
Ævar Pedersen hjá Náttúru-
fræðistofnun sagði að það væri
ákaflega misjafnt á milli ára
hversu mikið kæmist upp af ung-
um en ekki ættu að vera stórar
sveiflur frá ári til árs hvað varð-
aði fjölda fullorðinna fugla.
Ævar sagði að heiðagæsinni hefði
fjölgað hér á landi á síðustu
tveim áratugum en engar
ákveðnar tölur væru fyrirliggj-
andi til þess að spá út frá.
„Þetta svæði hefur ekki talist
til stórkostlegra gæsabyggða
hingað til og ég gæti giskað á að
á þessu svæði væru 250-300 pör
fullorðinna fugla í eðlilegu ári.
Ég dreg það því stórlega í efa að
gæsin sé völd af miklum sveiflum
á fallþunga dilka á milli ára,
nema beinlínis að stór hópur
fugla hafi flutt sig um set annars
staðar frá, en það er ekki heldur
mjög sennilegt, “ sagði Ævar
Pedersen.
Pess má að lokum geta að sú
tilgáta hefur komið fram meðal
Þingeyinga að gæsin sé í stórum
stíl að flýja af hálendinu sunnar
vegna virkjanaframkvæmda og
ýmiss ónæðis og þar sé e.t.v'.
komin skýring á hinum gífurlega
gæsafjölda á þessum slóðum.
- BB
Önnur bifreiöin mikið skemmd á árekstursstaö í gær.
Mynd: - KGA.
Jólaverslun á Akureyri:
Fólk farið
að huga að
innkaupum
- Búist við að verslun aukist veru-
lega strax eftir helgina
Nú er ekki nema tæpur mán-
uður til jóla og þrír kaupmenn
sem við ræddum við í gær voru
á einu máli um að fólk væri
þegar farið að huga að jólainn-
kaupunum í einhverjum mæli.
Annars kváðust þeir eiga von
á því að verslunin tæki fyrst
verulega við sér eftir helgina.
„Ég myndi segja að jólaversl-
unin væri byrjuð þótt hún eigi
eftir að taka verulegan kipp eftir
helgina,“ sagði Árni Þorvaldsson
hjá Vöruhúsi Kaupfélags Eyfirð-
inga. „Við erum þegar farnir að
merkja aukningu í versluninni í
hinum ýmsu deildum hér í Vöru-
húsinu og eflaust spilar eitthvað
inn í að nú erum við með afslátt-
ardaga fyrir félagsmenn okkar og
standa þeir yfir til 4. desember.“
Þorbergur Aðalsteinsson hjá
Bókvali á Akureyri sagði að fólk
væri farið að kíkja eftir jólabók-
unum þótt aukningin væri ekki
veruleg ennþu. Þannig var t.d.
fyrsta sendingin af bókinni „Birt-
an að handan" eftir Sigrúnu í
Torfufelli uppseld í versluninni í
gær og einnig sagði Þorbergur að
góð hreyfing væri á bókinni um
meistara Kjarval.
„Það er kominn smákippur í
þetta, mikið skoðað og athugað,"
sagði Birkir Skarphéðinsson hjá
versluninni Amaro er við slógum
á þráðinn til hans. „Verslunin
tekur þó mun seinna við sér en
áður var þegar allt var komið á
fullt um 10. nóvember. Ég reikna
með að úpp úr helginni fari jóla-
verslunin virkilega af stað og
auðvitað byggist það á veðri og
færð hvernig hún verður. Ef færð
verður góð verður meiri verslun
hér því þá fáum við viðskiptavini
allt frá Langanesi og vestur í
Húnavatnssýslur,“ sagði Birkir.
Opið á
laugar-
dögum
- í desember
Eins og fram kemur hér að ofan
eiga kaupmenn von á því að jóla-
verslunin taki verulega við sér
strax eftir helgina. Opið verður
á laugardögum í desember lengur
en venjulega, einnig fimmtudag-
inn 19. desember og á Þorláks-
messu.
Laugardaginn 7. desember
verður opið kl. 10-16. Laugar-
daginn 14. desember kl. 10-18,
fimmtudaginn 19. desember kl.
9-22, laugardaginn 21. desember
kl. 10-22 og á Þorláksmessu kl.
9-23. Á aðfangadag og gamlárs-
dag verður opið kl. 9-12.
Samvinnubankinn með útibú á Akureyri?
„Kemur vissulega
til greina“
- segir Geir Magnusson bankastjóri
„Það kemur vissulega til
greina að Samvinnubankinn
setji á stofn útibú á Akur-
eyri. Margir hafa spurt um það
af hverju Samvinnubankinn er
ekki með útibú í þessum mikla
samvinnubæ,“ sagði Geir
Magnússon bankastjóri I sam-
tali við Dag.
Um áramót ganga í gildi ný lög
sem gera bönkum hægara um vik
að ákveða sjálfir hvar þeir starf-
rækja útibú en áður en um leið
eru þeim sett skilyrði um að
bankarnir megi ekki leggja meira
húsnæði undir starfsemi sína en
sem nemur 65% af eigin fé bank-
anna. Eins og er eru flestir bank-
anna yfir þessum mörkum og það
eitt gerir Samvinnubankanum
óhægt um vik með stofnun nýrra
útibúa.
Ýmsar vangaveltur eru nú í
gangi um framtíð Kaupfélags
Svalbarðseyrar og meðal þess
sem nefnt er í því sambandi er
framtíð útibús Samvinnubankans
á Svalbarðseyri. Geir sagði að
ekki væru uppi nein áform um að
leggja niður starfsemi bankans á
Svalbarðseyri. Hins vegar væri
það vissulega athugandi að sett
yrði á stofn útibú á Akureyri og
útibúi bankans á Svalbarðseyri
yrði breytt í afgreiðslu frá því.
-yk.